Eyjan

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Refhverf sléttubönd

Mynd

Talsvert er rætt um gervigreind þessa dagana. Margir þeirra sem vinna með höfðinu óttast að þeir verði úreltir og ónothæfir áður en langt um líður. Við lesum fréttir um að gervigreindin hafi leyst stærðfræðiþrautir sem prófessorar í háskólum víða um heim hafa lengi glímt við án árangurs. Hún skrifar skýrslur (meðal annars um sjálfa sig!), fræðigreinar, jafnvel heilu bækurnar, semur tónlist og skrifar skáldsögur margfalt hraðar en nokkur rithöfundur getur látið sig dreyma um.

Þessi tónlist og þessar sögur eru að vísu sagðar af misjöfnum gæðum, en svo er einnig um sögur og tónlist sem samin er af fólki af holdi og blóði. Það á líka við um fræðigreinar og bækur sem eru af misjöfnum gæðum, rétt eins og fræðigreinar og bækur sem skrifaðar eru af fólki. Lengi hefur verið vitað að ekki er allt rétt sem í bókum stendur þótt þær hafi verið skrifaðar löngu áður en gervigreindin var í heiminn borin.

Handverksfólk sleppur ekki frekar en aðrir því vélmennum er stjórnað af gervigreind sem fólk af holdi og blóði getur ekki keppt við. Vélmennin vinna meira, hraðar og af meiri nákvæmni en mannfólkið. Gervigreindin og vélmennin þurfa ekki frí, eru aldrei illa upplögð, verða ekki lasin eða þreytt og eiga ekki við kulnun að stríða. Loks þarf ekki að greiða í lífeyrissjóð vegna þeirra.

Ég hef eins og margir verið að hugsa um hvort ekki væri einhver sá hlutur sem gervigreindin ræður í raun ekki við svo vel sé. Ég fór að hugsa um skáldskap og þá varð mér hugsað sérstaklega til sléttubanda, sem er vandmeðfarinn bragarháttur. Svo sem kunnugt er þarf að vera hægt að lesa vísuna jafnt áfram sem aftur á bak án þess að bragarhátturinn raskist. Þá er líka gert ráð fyrir að vísan hafi merkingu á hvorn veginn sem lesin er. Mesta íþróttin felst í að snúa merkingunni eftir því í hvora áttina lesið er. Vísur gerðar af þeim hagleik nefnast „refhverf sléttubönd“.

Mér lék forvitni á að vita hvort gervigreindin gæti ort fyrir mig refhverfa sléttubandavísu. Ég bað hana því að yrkja átta svoleiðis vísur. Þetta tók smá tíma fyrir gervigreindina. Sjö af þessum vísum voru mjög vondar af mismunandi ástæðum og ekki hæfar til birtingar. Segja má að ein þeirra sleppi til þótt ekki sé um fullgilt refhverft sléttuband í strangasta skilningi að ræða. Er þá horft fram hjá því að hún verður seint talin mikilsverður skáldskapur að efni til og innihaldi. Hún er svona:

„Bjarta vonin veginn sér,
hljómar söngur inni.
Svarta nóttin undan fer,
ómar gleði minni.“

Og aftur á bak er hún svona:

„Minni gleði ómar,
fer undan nóttin svarta.
Inni söngur hljómar,
sér veginn vonin bjarta.“

Mér sýnist að þetta mikilvæga vígi mannlegra vitsmuna, sem gerð refhverfra sléttubandavísa er, sé enn ekki fallið þótt stutt kunni að vera í það.

Þá vitum við það.