Eyjan

Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús

Mynd
Svarthöfði og Sigurður Ingi Jóhannsson
Myndin er samsett

Ekki er laust við að margir hafi hreinlega verið búnir að gleyma Sigurði Inga Jóhannssyni, fyrrverandi formanni Framsóknar. Ugglaust héldu margir að hann væri sestur í helgan stein, hættur afskiptum af stjórnmálum, jafnvel fluttur úr landi, veikur eða kannski bara horfinn af sviðinu.

Einhver velviljaður honum hefur án efa bankað í öxl hans og bent honum á að hann yrði að gera eitthvað því hann væri algerlega orðinn svo ósýnilegur að margir héldu að hann væri horfinn til feðra sinna.

Og allt í einu birtist Sigurður Ingi í ræðustól Alþingis og kvartaði sáran yfir því hve stuttir þingfundir væru og að ríkisstjórnin gerði bara eiginlega ekki neitt. Svarthöfði klórar sér í hausnum yfir þessari umkvörtun Sigurðar Inga sem ætti að vera himinlifandi með meint aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar, en stjórnarandstæðingar með eitthvert lífsmark  hafa hrópað skelfingu lostnir að þessi ríkisstjórn sé óstöðvandi og ógni með stefnu sinni og aðgerðum lífsviðurværi þjóðarinnar.

Kannski hefur Sigurður Ingi bara verið sofandi og er nú í svefnrofunum, villuráfandi og veit ekki hvort hann er að koma eða fara eða hvort hann er í stjórnarliðinu eða stjórnarandstöðunni

Raunar er Svarthöfði hugsi yfir því hve illa er komið fyrir Framsókn. Hið eina sem spurst hefur til Framsóknar í haust er þegar Ingibjörg Isaksen, fyrrum þingflokksformaður Sigurðar Inga, skellti sér í nektarsundið á Vopnafirði með fjórum körlum úr stjórnarandstöðunni eftir matar- og fyllirísboð hjá Ratcliffe, breska milljarðamæringnum sem vinnur að því að kaupa Ísland

Dvergþingflokkur Framsóknar er nú þríklofinn þótt þau séu bara fimm sem náðu kjöri fyrir flokkinn í síðustu kosningum. Satt best að segja kemur það Svarthöfða ekki á óvart þótt reynt sé að beina athygli frá því. Von að reynt sé að beina athygli frá því.

Nýr formaður flokksins, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, nýtur einungis trausts 54% flokksmanna samkvæmt nýlegri Gallupkönnun. Formenn ríkisstjórnarflokkanna njóta trausts 93-96% sinna flokksmanna samkvæmt þeirri könnun

Svarthöfði hefur fullan skilning á því að Framsóknarmenn séu með böggum hildar þessa dagana. Flokkurinn þeirra virðist vera að deyja út. Ekki hægt og bítandi heldur með leiftrandi hraða og engan veginn öruggt að hann nái kjörnum fulltrúa á Alþingi í kosningunum eftir tvö ár. Það er ekki nema von að Sigurður Ingi skuli reyna að brölta eitthvað, bara eitthvað, jafnvel þótt það sé um eitthvað sem engu máli skiptir til eða frá.