Eyjan

Nína Richter skrifar: Hver vill sofa hjá Justin Timberlake?

Mynd
Mynd/GettyImages
Mynd

Ég var að lyfta um daginn með vinkonu og þar sem ég var í félagsskap var ég ekki með heyrnartól. Ég neyddist því til að hlýða á lagalistann sem ómaði úr hljómtækjum líkamsræktarstöðvarinnar. Í þetta sinn var „Gettin’ Jiggy wit It“ með Will Smith í boði. Ég var að gera svokallaðar „hip thrust“ æfingar þar sem maður tekur svona Elvis-múv liggjandi á bakinu með hundrað kíló á grindinni. Sumum gæti þótt þetta sexí, en manni líður alls ekki sexí á meðan.

Ég hlustaði á Will Smith og benti vinkonu minni á að einhverju sinni hefði fólki þótt bara sjálfsagt að stunda kynlíf við þetta lag. Þegar þetta var nýtt og ferskt. Þegar Will Smith var öðruvísi menningarleg breyta en hann er í dag.

Næsta lag var „Summer Love“ með Justin Timberlake. Ekki skánaði það. Lög með Justin Timberlake þóttu mjög viðurkennd kynlífstónlist upp úr aldamótum og fólk sem spilaði þau gat hækkað sitt kynferðislega kapítal í alls konar aðstæðum.

Myndin af Timberlake þessara ára sveif fyrir hugskotssjónum eins og gömul minning um gubbupest. Hatturinn, varasleikjurnar, hvíslið. Einhverra hluta vegna virkaði þetta á fólk. Karlar vildu líkjast honum og konur vildu fá hann. Vorum við öll í geðrofi? Britney Spears var með honum en lýsti síðar reynslunni af því í sjálfsævisögu sem hefði mátt seljast betur. Eða verr. Ég veit ekki hvað það er sem Britney þarf á að halda í augnablikinu. En hún mælir víst ekki með.

Við erum stöðugt að tjá okkur í gegnum tísku og poppmenningu, en tölum merkilega lítið um hversu meðvitað við gerum það. Það er einhver svakalegur samningur í gangi um að tala aldrei um það. Samfélagssáttmáli bara. Með klippingunni, fötunum, húsgögnunum, bílnum og tónlistar- og kvikmyndasmekknum segjum við fólki hvernig við erum og hvernig við viljum að það sjái okkur. Þetta er ekkert leyndarmál og ekkert nýtt.

Það er auðvitað glæpsamlegt að viðurkenna að maður negli ákveðnu lagi á fóninn til að virðast áhugaverður, fágaður eða kynþokkafullur. Þekktir Íslendingar telja upp sín „guilty pleasures“ í ímyndarskapandi viðtölum við poppmenningarblaðamenn, en oft grunar mig að þetta sé bara tilraun til að búa til flippvinkil á misáhugavert fólk. Algjör flippari, rokkari í eldhúsinu.

Hugsaðu um tónlistina sem þú hlustar á þegar þú ert aleinn heima og enginn heyrir til. Hugsaðu svo um lagið sem þú setur á í partýi með manneskjunni sem þú ert skotinn í. Á bilinu milli þessara tveggja laga er eitthvað ógeðslega merkilegt í gangi. Einhver skömm sem væri hægt að kryfja á námskeiði. Óskrifaða reglan virðist vera að smekkurinn megi vera úthugsaður, svo lengi sem hann virðist ósjálfráður. Þú valdir plötuna í búð, en þú fórst í réttu plötubúðina af því að þú býrð í rétta hverfinu.

Þegar kemur að fatnaði er þetta aðeins einfaldara og augljósara. Við höfum öll stillt fötum upp á kynþokkaskalanum. Öðrum megin eru sjúkrahúsnáttföt eða eitthvað sem fólk klæðist í frystihúsum. Ljósgul pollastígvél. Hinum megin er fatnaðurinn sem fólk birtist í eftir að hafa sagt lágri röddu í bíómynd: „Leyfðu mér að klæða mig í eitthvað þægilegra.“ Svo kemur það aftur í einhverju efnislitlu og eggjandi. Ekki frystihúsafötum. Og aldrei einhverju sem er raunverulega þægilegra. Þessi tjáning er augljós.

En með tónlist, bókmenntum og kvikmyndum fer mökunardansinn við samfélagið og valdið meira fram undir rós. Við getum gefið til kynna að við séum djúp, hættuleg eða vitum eitthvað sem aðrir vita ekki. Á samfélagsmiðlum þarf svo lagið að passa við myndina og hvort tveggja við ímyndina, söguna, ferðalagið, fólkið.

Ég klæði mig stundum í tónlist sem er vandræðalega kúl, sérstaklega þegar ég er eitthvað buguð. Svo er líka til tónlist sem ég hlusta á í laumi af því að hún fellur ekki að ímyndinni minni. Það er til fólk þarna úti sem segist ekki skammast sín fyrir neina tónlist sem það hlustar á. Þetta eru allt saman lygarar.

Tónlist getur gert eina manneskju töff og aðra asnalega. Virkað í einum aðstæðum en ekki öðrum. Vigdís Finnbogadóttir að blasta Villa Vill er ekki það sama og lögfræðingurinn Villi Vill að blasta Villa Vill. Samhengið gerir eitthvað við lagið og lagið gerir eitthvað við manneskjuna.

En þetta kynferðislega kapítal eldist yfirleitt eins og mjólk á ofni.

Lagið er óbreytt. Justin Timberlake hefur verið frystur í stafrænu formalíni og gamli kynþokkinn er aðgengilegur með einum smelli á Youtube. Hatturinn ofan í augum. Hvíslið. 

Samhengið er hins vegar orðið allt annað. Það sem átti einu sinni að segja „ég er sexí“ getur núna þýtt „ég var sexí árið 2006“. Það er mögulega verra að hafa verið sexí og vera það ekki lengur, en að hafa aldrei verið það.

Samt dansa tvítugir krakkar enn við Justin á klúbbnum. Ég veit ekki hvort þeim er alvara, hvort þeim finnist hann sexí eða hvort þau séu að gera grín að þúsaldarkynslóðinni. Kannski finnst þeim sexí að vera asnaleg. Ég kann ekki þessar reglur. Ég ætla heim að hlusta á eitthvað annað en Summer love. Ef ég hlusta á það segi ég engum frá því.