Á dögunum þegar rökleysan í efnahagsumræðunum gekk fram af fjármálaráðherra vísaði hann í „þetta lið.“
Ýmsir hrukku við þegar sá háttprúði ráðherra tók þannig til orða. Einhverra hluta vegna tóku þingmenn sjálfstæðismanna þetta sérstaklega til sín. Fyrstu dagana á eftir kölluðu þeir stöðugt eftir áfallahjálp.
Ég veit þó ekki hvort sneiðin var sérstaklega ætluð þeim. En hitt er víst að þingmenn hinna stjórnarandstöðuflokkanna hefðu gjarnan mátt taka hana til sín líka.
Og þá ekki síður þeir sem sitja við stjórnarborðið í Samtökum atvinnulífsins. Litlar spurnir fara af öðrum sambærilegum samtökum norðan Alpafjalla, sem eru jafn mikið í flokkspólitík og jafn lítið í ábyrgri vinnumarkaðs- og efnahagspólitík.
Háttvísi og einstök nærgætni fjármálaráðherra
Hagspeki stjórnarandstöðuflokkanna og Samtaka atvinnulífsins er einhvern veginn svona í hnotskurn:
- Aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins hækka laun langt umfram kjarasamninga og verðmætasköpun í þjóðarbúinu. Verðbólguafleiðingin er hins vegar ýmist sök ríkisstjórnarinnar eða verkalýðshreyfingarinnar, eftir því hverjir eru í ríkisstjórn hverju sinni.
- Þegar rauð vísitölustrik bresta vegna einhliða launahækkana fyrirtækjanna sjálfra umfram kjarasamninga heimta þau að ríkissjóður bæti starfsmönnum þeirra skaðann. Hugmyndafræðin byggir á því að niðurgreiða verðbólguna fremur en að draga úr spennu í atvinnulífinu.
- Til að krydda hagspekina segja þau að niðurgreiðsla verðbólgunnar megi bara gerast með hallarekstri því hvorki megi auka tekjur né skera niður útgjöld. Þetta eru kallaðir barnaskattar.
- Eftir dapra reynslu af þess konar pólitík síðustu ríkistjórnar vita allir að með þessu er einungis verið að blása að glæðum verðbólgu til lengri tíma.
- Síðan apa talsmenn stjórnarandstöðuflokkanna þessa hagspeki eftir.
Að þessu virtu finnst mér samheitið „þetta lið“ lýsa bæði háttvísi og einstakri nærgætni fjármálaráðherra gagnvart stjórnarandstöðupólitík í viðkvæmri sálrænni stöðu. Hún er viðkvæm af því þetta er pólitíkin, sem kjósendur höfnuðu í síðustu þingkosningum.
Tilbeiðsluskattur SA og stjórnarandstöðunnar
Þá komum við að ranghverfunni í allri skattaumræðunni. Stjórnarmenn í Samtökum atvinnulífsins og talsmenn stjórnarandstöðunnar eiga sér nefnilega sérstakan tilbeiðsluskatt. Það er sér íslenski krónuskatturinn. Í þeirra huga hefur hann sömu stöðu og heilagar kýr á Indlandi.
Við honum má ekki hrófla. Samt dregur þessi skattur meir en aðrir skattar úr samkeppnishæfni atvinnulífsins. Og enginn annar skattur dregur jafn mikið úr samkeppnishæfni velferðarkerfisins.
Ríkissjóður sækir nú að minnsta kosti sjötíu milljarða króna í vasa skattborgaranna til þess að standa straum af vaxtagreiðslum umfram það sem vera þyrfti ef Ísland væri með samkeppnishæfan gjaldmiðil. Enginn skattur bítur atvinnulífið og almenning fastar en þessi tilbeiðsluskattur SA og stjórnarandstöðunnar.
Þörf á sálfræðingi eða þjóðsagnafræðingi
Frá aldamótum hafa heildartekjur ríkissjóðs verið nánast fast hlutfall af þjóðarframleiðslu, um 42%. Það er talsverð skattheimta en sambærileg við það sem á sér stað í þeim velferðarríkjum, sem við berum okkur helst saman við.
Sumir tekjustofnar hafa hækkað í gegnum tíðina en aðrir lækkað. En heildarumsvifin hafa að mestu verið stöðug. Þetta hefur verið birtingarmynd á velferðarstefnu hægri miðjunnar í pólitíkinni.
Að öðrum ólöstuðum eiga þingmenn sjálfstæðismanna mestan þátt í því að festa ríkisumsvif af þessari stærðargráðu í sessi. Núverandi ríkisstjórn hefur ekki hróflað við þeirri stefnumörkun.
En þá ærast stjórnarmenn í Húsi atvinnulífsins og talsmenn stjórnarandstöðunnar springa af vandlætingu og tala um öfga vinstri skattastefnu. Vel færi á því að fá sálfræðing eða kannski öllu heldur þjóðsagnafræðing til að setja svona hamskipti í eitthvert skiljanlegt samhengi við furðusögur fyrri alda.
Siðferðismælisnúra SA og stjórnarandstöðunnar
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að afnema undanþágu frá virðisaukaskatti, sem þeir einir hafa notið sem hafa efni á að borga tíu þúsund krónur eða meira fyrir að fara í baðlón.
Afleiðingin er sú að talsmenn Samtaka atvinnulífsins og stjórnarandstöðunnar hrópa sig hása. Boðskapur þeirra er að allt muni hrynja. Þetta er eins og þegar þeir kölluðu úlfur, úlfur í fyrra vegna leiðréttingar veiðigjalda. Reyndin sýnir að sjávarútvegurinn hefur ekki blómstrað betur í annan tíma.
Það þarf ekki sérfræðing til að sjá að þessi leiðrétting á skatti, sem betur settir íslenskir neytendur og erlendir ferðamenn borga, hefur hverfandi áhrif á rekstur þeirra fyrirtækja, sem í hlut eiga. Úlfur, úlfur herópið er nákvæmlega jafn trúverðugt núna og hjá talsmönnum Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi í dýrustu auglýsingaherferð allra tíma í fyrra.
Hitt segir svo nokkuð um siðferðismælisnúruna að hrópendunum þykir sjálfsagt að láglaunakonurnar, sem gera hreint fyrir dyrum þeirra, borgi fullan virðisaukaskatt þegar þær fara út í búð að kaupa kuldaúlpu fyrir veturinn.
Silkihanskana á að nota við betri tækifæri
Sannarlega þarf enga sérfræðinga til að sjá pólitíska tómið á bak við þennan málflutning.
Stundum velti ég því fyrir mér hvers vegna fréttamenn gera ekki meira af því að láta þá færa rök fyrir máli sínu, sem láta dæluna ganga daginn inn og daginn út með þessum innantóma hætti.
Hitt skil ég þó síður að þingmenn stjórnarflokkanna taka of sjaldan á þessum hrokafulla og óprúttna málflutningi af fullum þrótti. Silkihanskana á að nota við betri tækifæri.
Það er lýðræðislegt hlutverk stjórnarþingmanna að sjá til þess að öflugustu hagsmunasamtökin í landinu og talsmenn stjórnarandstöðunnar afvegaleiði ekki umræðuna eins og nú er reynt með aðferðafræði bandarísku MAGA-hreyfingarinnar.