Eyjan

Segir ljóst að Jón hafi einn þorað að tala opinberlega um það sem sé altalað innan Viðreisnar

Mynd
Jón Gnarr. Skjáskot/Yotube

Össur Skarphéðinsson fyrrum formaður og ráðherra Samfylkingarinnar segir ljóst að úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar sé mikið áfall fyrir flokkinn og verði vart túlkuð öðruvísi en vantraust á forystu hans. Össur segir einnig að Jón hafi einn stjórnarþingmanna og liðsmanna Viðreisnar þorað að tala opinberlega um það sem sé altalað meðal stjórnarliða og ekki síst innan Viðreisnar, að illa hafi verið staðið að baráttunni fyrir því að já yrði ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst.

Össur fjallar um þetta á Facebook:

„Það er líka áfellisdómur yfir ráðherrum og forystu að þeir virðast ekki hafa verið í nægilegum tengslum við þingflokkinn til að skilja vanlíðan þingmanna. Þó ítrekar Gnarr þrisvar í viðtali við Vísi að Viðreisn sé eini flokkurinn sem hann eigi samleið með - og segist ekki ætla að hætta í flokknum!“

Össur segir gagnrýnivert að flokksforystan hafi ekki gefið helstu baráttumálum Jóns nægilega mikinn gaum:

„Þau mál sem Jôn Gnarr nefnir eru fjarri því að vera fallin til pólítisks ágreinings - barnaverndarmál, málefni barna í neysluvanda, áherslur á frelsi einstaklingsins. Það er nokkuð ljóst að þingmaðurinn hefur upplifað sig í algeru tómarúmi, forystan ekki nennt að sinna honum, hlusta á hann eða verið upptekin við annað mikilvægara. Úrsögnina er þvî varla hægt að túlka öðru vísi en sem vantraust á forystuna.“

Þjóðaratkvæðagreiðslan

Össur nefnir einnig sérstaklega þau orð Jóns að síðan að meirihluti kjósenda hafnaði frekari aðildarviðræðum við ESB hafi félagar hans í þingflokki Viðreisnar verið í áfalli:

„Eru réttu viðbrögðin að þegja tapið í hel? Í máli hans kemur fram fullkomlega réttmæt gagnrýni á framkvæmd og skipulagningu kosningabaráttunnar í sumar. Þetta er í fyrsta sinn sem einhver stjôrnarþingmanna gagnrýnir hversu frámunalega illa var að henni staðið.“ 

Össur segir að þetta sé hins vegar altalað í stjórnarliðinu og ekki síst innan Viðreisnar:

„Í röðum stuðningsmanna stjórnarinnar er þó talað um það í öllum hornum, ekki síst innan Viðreisnar,- en enginn vill rjúfa friðinn og segja það upphátt fyrr en Jón Gnarr. Hafi hann heila þökk! Mörgum finnst nefnilega þeir þurfa skýringar, lyktir, á framkvæmd baráttunnar sem felast í öðru en bara þeim að andstæðingar ESB hafi verið svo duglegir að ljúga. Það skýrir vitaskuld ekki hvernig tókst að snúa yfirburða fylgi upp í tap á tæpu sumri. Ólafur Ragnar og Sólveig Anna skýra það ekki heldur. Skýringanna er að leita miklu nær Viðreisn.“

Framtíðin

Össur bendir einnig á þau orð Jóns að eftir tapið þá hefði verið eðlilegt að Viðreisn skilgreindi stöðu sína upp á nýtt en því hafi forystan hafnað á þeim forsendum að Viðreisn væri ekki eins máls flokkur:

„Það má vel vera. Skortur á því að gera upp kosningabaráttuna, skilgreina hvað fór úrskeiðis og læra af því skaðar hins vegar Evrópuhreyfinguna til framtíðsr Eða er baráttunni lokið? Hefur Viðreisn gefist upp? Hræðsla Viðreisnar við að skilgreina stöðu sína í litrófi íslenskra stjórnmála er líka illskiljanleg því í nýjum aðstæðum felast líka tækifæri fyrir flokkinn. Í dag skilgreinir forystan sig til hægri en fylgið liggur mun lengra til vinstri.“

„Framtíðin felst ekki í því að sópa vandamálum dagsins undir teppið eða kaffæra sig með ferðalögum og annríki. Þá tapast að lokum meira en einn fyrrverandi borgarstjóri.“