Eyjan

Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Bókun 35 – Höfum við efni á meiri óvissu og veikari samkeppnisstöðu?

Mynd

Ísland þarf meiri erlenda fjárfestingu, fleiri alþjóðleg fyrirtæki og fleiri vel launuð þekkingarstörf. Við þurfum að lækka fjármagnskostnað og styrkja samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja. Höfum við þá efni á að bæta enn einum óvissuþættinum við – óvissu um þær leikreglur sem eiga að gilda á EES-markaðnum?

Þetta er efnahagslega spurningin sem mér finnst vanta inn í umræðuna um bókun 35.

ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, vísaði Íslandi til EFTA-dómstólsins vegna þess að stofnunin telur Ísland ekki hafa tryggt með fullnægjandi hætti framkvæmd þeirrar forgangsreglu sem leiðir af bókun 35.

Hvað snýst bókun 35 um?

Bókun 35 hefur verið hluti af EES-samningnum frá upphafi. Ágreiningurinn snýst um hvernig við tryggjum þessa skuldbindingu í íslenskum lögum. Í einföldu máli snýst málið um hvað gerist þegar réttilega innleidd EES-regla rekst á annað almennt íslenskt lagaákvæði.

Markmiðið er að tryggja að einstaklingar og fyrirtæki geti treyst þeim réttindum sem Ísland hefur þegar samþykkt með aðild sinni að EES.

Athyglisverð ábending Björns Bjarnasonar

Í þessu samhengi er fróðlegt að skoða afstöðu Björns Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Björn var formaður utanríkismálanefndar þegar EES-samningurinn og EES-lögin voru afgreidd 1992–1993. Hann hefur bent á að við séum ekki að samþykkja nýja skuldbindingu. Bókun 35 hafi verið hluti samningsins allan tímann.

Hann hefur jafnframt sagt að við setningu EES-laganna „mistókst okkur að orða 3. gr.“ með þeim hætti sem ætlunin hafi verið. Þetta er mikilvæg ábending.

Spurningin er þá ekki hvort við viljum nú afhenda Evrópusambandinu nýtt vald.

Spurningin er: Ætlum við að tryggja með skýrum hætti framkvæmd skuldbindingar sem Ísland samþykkti fyrir meira en 30 árum?

Sömu leikreglur – sömu samkeppnisskilyrði

Á fundi um bókun 35 sem ég sótti nýlega lagði Dóra Sif Tynes, sérfræðingur í EES-rétti, áherslu á annað lykilatriði.

Eitt af grundvallarmarkmiðum EES er að einstaklingar og fyrirtæki njóti sambærilegra réttinda og búi við sömu samkeppnisskilyrði á þeim hluta innri markaðarins sem samningurinn nær til. Hér liggur hinn efnahagslegi kjarni málsins.

Ef íslenskt fyrirtæki er að keppa við norskt, danskt eða sænskt fyrirtæki á sama markaði eigum við ekki sjálf að skapa íslenska fyrirtækinu meiri réttaróvissu en nauðsynlegt er.

Þetta snýst því ekki fyrst og fremst um Brussel. Þetta snýst um hagsmuni íslenskra fyrirtækja.

EES er hluti af samkeppnisstöðu Íslands

Við breytum því ekki að við Íslendingar erum rétt um 400 þúsund manns. En með EES-samningnum urðum við þátttakendur í miklu stærra efnahagssvæði.

Það er ein mikilvægasta efnahagslega stoðin undir alþjóðlegri starfsemi íslenskra fyrirtækja. Þess vegna er mikilvægt að EES virki.

Við höfum þegar ýmsa samkeppnisgalla sem við þurfum að vinna úr.

  • Háan fjármagnskostnað.
  • Lítinn fjármagnsmarkað.
  • Lítinn heimamarkað.
  • Sjálfstæðan lítinn gjaldmiðil og gengisáhættu.

Við þurfum því að fækka óvissuþáttum – ekki fjölga þeim.

Hvað sér fjárfestirinn?

Setjum okkur í spor alþjóðlegs fyrirtækis sem ætlar að fjárfesta 50 milljarða króna í nýrri starfsemi í Norður-Evrópu.

Ísland kemur til greina. En líka Danmörk, Svíþjóð eða Finnland.

Stjórnin spyr:

  • Hvað kosta peningarnir?
  • Hver er gengisáhættan?
  • Hvernig er skattkerfið?
  • Hversu skilvirk er stjórnsýslan?
  • Getum við treyst lagaumhverfinu og þeim leikreglum sem eiga að gilda á EES-markaðnum?

Þetta er ekki pólitík fyrir fyrirtækið. Þetta er áhættumat og vantraust kostar. Þegar áhætta eykst hækkar arðsemiskrafan. Þegar áhættan verður of mikil fer fjárfestingin annað.

Við getum ekki keppt á stærð – en við getum keppt á trausti

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur lagt áherslu á að bókun 35 sé réttindamál fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Það verður ekki síður mikilvægt eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst.

Þjóðin hafnaði því að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. En við erum áfram í EES. Það hlýtur því að vera sérstaklega mikilvægt að sá samningur virki eins vel og mögulegt er fyrir Ísland.

  • Við getum ekki boðið fyrirtækjum stærsta heimamarkaðinn.
  • Við getum ekki boðið sterkan fjármagnsmarkað.
  • Við bjóðum fyrirtækjum og einstaklingum hæstu vextina.
  • En við verðum að bjóða skýrar og fyrirsjáanlegar leikreglur ef við ætlum að nýta tækifærin sem EES samningurinn getur gefið okkar vel menntaða fólki og til að geta nýtt sem allra best okkar auðlindir á EES-markaðnum.

Fyrir litla þjóð er mikilvægt að njóta trausts til að aðrar þjóðir innan EES vilji eiga viðskipti við okkur. Bókun 35 snýst því ekki aðeins um lagatækni.

  • Hún snýst um réttindi fólks.
  • Hún snýst um hagsmuni íslenskra fyrirtækja.
  • Hún snýst um EES-samninginn og um samkeppnisstöðu Íslands.

Við kusum að fara ekki lengra í átt að ESB að sinni. En við erum áfram í EES. Er þá ekki lágmarkskrafa að við tryggjum að sá samningur virki eins vel og mögulegt er fyrir Íslendinga, íslensk fyrirtæki og framtíðarhagsmuni Íslands?

Höfundur er viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun, áhugamaður um leiðtogastjórnun og kennir Qigong – lifsraekt.is