Eyjan

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Slakar reglur draga að umsóknir og breyta samsetningu hópsins

Mynd

Við höfum verið með miklu rýmri reglur um dvalarleyfi útlendinga hér á landi en t.d. hin Norðurlöndin. Hér á landi hefur verið hægt að fá ótímabundið dvalarleyfi án þess að geta sýnt fram á framfærslu. Þetta hefur ekki bara áhrif á fjölda umsókna heldur líka hvernig umsækjendur við fáum. Nú er verið að breyta þessu og ekki seinna vænna. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Við höfum náttúrlega séð það í gegnum tíðina að það hafa komið upp mál þar sem hefur verið mótmælt þegar þurft hefur að vísa fjölskyldum úr landi sem eru kannski búnar að vera hérna í einhver tvö ár. Það er engum greiði gerður með því að hleypa fólki inn sem á ekki að vera hér og hafa það í tvö ár og fara svo að bregðast við. Það er miklu betra að segja bara: „Nei, hingað komið þið ekki.“

„Já, einmitt, og ég held að allir fái í magann við að heyra þessar sögur. Og þær eru mjög sárar og erfiðar en þar finnst mér við líka þurfa að horfast í augu við það að það er ekki hægt að reka heilu kerfin eða mynda stefnurnar á grundvelli þess sem viðbrögð við svona fréttum. En eins og þú segir líka, það þarf svolítið að horfa til þess hvað hefur þá gerst ef heil fjölskylda hefur verið hér á landinu og það hefur blasað við frá fyrsta degi að rétturinn var ekki fyrir hendi til þess að vera hér. Svo getur maður haft skoðun á því hvort að svo eigi að vera. En þegar að reglurnar eru skýrar, upplýsingagjöf er góð þá eiga auðvitað væntingar fólksins frá upphafi ekki að hafa verið þær að hérna yrði stoppað mjög lengi.“

Nei, nei og ef reglur eru skýrar og þeim er fylgt og það eftirlit er virkt og skipulagt þá náttúrlega spyrst það út og fólk hættir að freista gæfunnar.

„Það er þannig og það er auðvitað þannig líka í nútímaheimi að fólk er ágætlega upplýst um það hvernig reglur á hverjum og einum stað líta út. Í dag erum við til dæmis eitt Norðurlanda um það að hér er hægt að sækja um svona ótímabundið dvalarleyfi án þess að þú getir sýnt fram á það að þú getir framfleytt þér. Þetta spyrst út. Spyrst út og hefur áhrif, ekki bara á fjölda umsókna heldur hvernig umsóknir þú færð. Þannig að það er sjálfstætt element í því eða sjálfstæð breyta. Að vilja komast út úr þeim fasa. Að vera með reglur sem eru áberandi á skjön við hin Norðurlöndin.“

Þú kemur þarna inn á einmitt mjög mikilvægt atriði. Að regluverkið og svona framfylgnin, hún hefur áhrif, ekki bara á það hvað koma margir heldur hún hefur áhrif á það hvernig samsetning hópsins er. Og það getur bara skipt okkur gríðarlega miklu máli.

„Það skiptir atvinnulífið máli, það skiptir samfélagið öllu máli að við höfum skoðun á þessu. Og við höfum ekki verið feimin við að segja það. Auðvitað hefur þetta áhrif. Svona regla hefur mikil áhrif. Við getum ímyndað okkur líka ef við værum eina Norðurlandið sem horfði ekkert til þess hvort þú ert með sakaferil þegar þú sækir um dvalarleyfi. Þarna viltu ekki vera á skjön.

Þannig að ég hef verið í því núna, eins og ég segi, við erum búin að fara í gegn með fjögur útlendingafrumvörp. Þetta eru stærstu breytingar í næstum tíu ár í þessum málaflokki sem við erum að taka núna. Það er mjög margt undir í þessum dvalarleyfiskafla en ég trúi því að með afgreiðslu þess frumvarps þá erum við komin á þann stað að vera með stjórn á málaflokknum. Hafa smíðað eitthvað regluverk sem nær því vonandi fram að vera klassískt. Þetta er ekki viðbragð við einhverjum einstökum málum heldur að það er búið að rýna kaflann í heild sinni. Og ég vona að Alþingi vinni vel úr þessu máli og geri það svo að lögum.

Síðan er þá næsti fasi að skoða það hvernig við veitum ríkisborgararétt. Þar sé ég líka, af því ég er með hóp af störfum sem er að rýna regluverkið fyrir mig, þar sé ég líka að það eru lægri kröfur á Íslandi en á Norðurlöndunum hinum um hvað þarf til að koma til þess að þú ávinnir þér ríkisborgararétt, hvað þarftu að hafa verið lengi á landinu og svo framvegis. Núna heyrir maður svolítið í umræðu eins og með glæpi, kröfu um það að það hafi verið hægt að afturkalla ríkisborgararétt fólks. Það á auðvitað ekki að vera sjálfsagt að afturkalla ríkisborgararétt, þetta eru grundvallarréttindi.

Þar vil ég þá frekar horfa til þess og ég er að nefna þetta vegna þess að það er ekkert sjálfsagt mál að fá ríkisborgararétt. Það á auðvitað að byrja á þeim endanum, Íslendingar þekkja það mjög vel. Við flytjum mörg til annarra landa hvort sem er vegna vinnu eða námsmenn eru jafnvel búsettir árum saman í því landi, en þeir fá ekki ríkisborgararétt.

það er allt önnur skuldbinding og allt annað samtal og það er bara alls ekki sjálfgefið að fólk fái ríkisborgararétt. Það er engan hallað með því að fá ekki ríkisborgararétt. Það eru forréttindi að fá íslenskan ríkisborgararétt og það á að nálgast málið þannig með einhverju skynsömu regluverki. Og þá getum við líka sagt að við ætlum að fara að velja það að svipta fólk ríkisborgararétti. Svíar til dæmis standa frammi fyrir því af því að þeir eru þá með töluverðan hóp manna sem eru eða fólk sem er með sænskan ríkisborgararétt. En fólk sem að upplifir sig í reynd ekkert sem Svía. Og eru jafnvel að vinna gegn sænsku samfélagi, sem eru orðnir ríkisborgarar, það er auðvitað galið.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.