Við erum að taka fast á málefnum varðandi innflytjendur og viljum að það sé sjáanlegt að hér ríki festa og að við höfum yfirlit og eftirlit með hlutunum. Lausung í þessum málum bitnar fyrst og fremst á þeim sem standa veikast. Hluti af þessu er að efla lögregluna sem í auknum mæli þarf að kljást við vopnaða brotamenn. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Tuttugu skipulagðir hópar, glæpahópar á Íslandi, allir með alþjóðlegar tengingar. Þetta er komið til að vera. Við þurfum að geta lifað með þessu og haft hemil á þessu. Við getum ekki upprætt þetta eða hvað?
„Þetta er góð spurning. Auðvitað vill maður vera í þeirri stöðu að stjórnvöld séu með yfirhöndina en ég meina, ég hugsa að það sé erfitt að finna það land sem að getur sagt: Heyrðu, við útrýmdum glæpastarfsemi.
Í því samhengi skipti líka máli og það tengist líka útlendingamálum og þá er ég alls ekki að segja að það séu bara útlendingar í afbrotum því það er eiginlega ekki þannig. En að við séum ekki með innbyggða veikleika í okkar kerfum, að við séum ekki með eitthvað regluverk sem er á skjön hvað varðar löggæslu, hvað varðar útlendingamál, hvað varðar svona innri varnir okkar.
Og ég er eiginlega með hugann við það að það sjáist að við erum með augun á boltanum og ætlum að gera allt sem við getum til þess að ná betra gripi þarna. Svíar tala um þetta. Ég var á fundi bara í gær þar sem ég var meðal annars að tala við sænska útlendingamálaráðherrann og sænska dómsmálaráðherrann með svona whole of government approach eins og þeir tala um. Að ef þú getur truflað glæpahóp í tengslum við skattsvik þá færðu þá leiðina. Að nota öll þau verkfæri sem við eigum í kistunni.“
Ég man að Viðreisn talaði dálítið mikið um það fyrir kosningar að það væru of fáir lögreglumenn. Það hefur verið bætt í þar. En erum við komin á góðan stað eða er enn á brattann að sækja í þessu?
„Ef ég væri ekki svona mikil vinkona fjármálaráðherrans þá lægi ég í honum núna um meiri fjármuni inn í þetta verkefni. En þegar ríkisstjórnin fór af stað þá voru settir 1,2 nýr milljarður inn í löggæsluna, varanleg aukning sem skilaði því að það var fjárfest í því að 50 lögreglumenn kæmu inn sem til viðbótar við þá sem þá þegar voru starfandi. Það breytir ekki því að í mjög langan tíma hefur það blasað við að lögreglumenn á Íslandi gætu verið fleiri. Þannig að við erum á betri stað en ég myndi mjög gjarnan vilja komast í færi til þess að halda áfram að fjölga. Það á til dæmis ekki síst við um fjöldann í sérsveitinni.“
Það mæðir alltaf meira og meira á henni.
„Það gerir það og það er auðvitað líka spegill á þetta ástand að það eru fleiri og fleiri útköll þar sem vopn eru í spilinu. Þannig að öryggisumhverfi lögreglumannsins á Íslandi, það hefur líka breyst til mikilla muna. Og auðvitað er manni annt um það að lögreglumenn séu öruggir í sínu starfi. Við erum svona í norrænum samanburði og horfum á hvað eru margir lögreglumenn á hvern íbúa. Þá erum við enn þá lág þar og mér hefur svona fundist vanta upp í það bara á liðnum árum af því við erum að tala um framlínustarfsemi og kjarnastarfsemi. Ég meina, hvað er efst á blaði? Það er hlutverk ríkisins að tryggja öryggi fólksins í landinu. Að lögregla, mér hefur fundist vanta upp á það að lögregla sé hliðsett heilbrigðisþjónustu svona í forgangsröðun stjórnvalda. Og mér finnst niðri á þingi að það sé aðeins að breytast viðhorfið hvað þetta varðar.“
Þetta er náttúrlega eins og þú segir réttilega, þetta er svona ein af grunnþjónustum ríkisins.
„Já. Og eiginlega bara efst af öllu. Því að ef þetta er ekki í lagi, þá getur ekkert annað verið það. Ég hef stundum verið að nefna að það er ákveðinn spegill á öryggistilfinningu fólksins í landinu og öryggi fólksins í landinu að þetta hefur ekki verið stórt kosningamál, að við höfum getað verið að ræða efnahaginn og hvernig við höldum áfram að bæta kjör fólksins í landinu. En þetta geta til dæmis Svíar sagt okkur að um leið og þessi tilfinning rofnar, að þú upplifir þig óöruggan í þínum heimastað, þá er það öryggið sem trompar efnahagsmálin.“
Og þeir hafa lent í því á svona vissum svæðum í Svíþjóð að þar hefur lögreglan misst ákveðin tök.
„Já, og þeir misstu auðvitað tök á svona ákveðnum málaflokkum. Ég held að, og þeir eru heiðarlegir og hreinskilnir með það sjálfir, að svona á tíu ára tímabili þá hafi kannski verið helst til bláeygir einmitt í útlendingamálum, hafa tekið mjög skarpa beygju þar núna. Danir og Svíar eru með mjög skýra stefnu í þessum málaflokkum og hafa einmitt nefnt það í samtölum þegar maður er að ræða við þá að við séum í þeirri stöðu að geta komið í veg fyrir það að endurtaka þeirra mistök. Þess vegna held ég að það sé mikilvægt núna að segja það bara fullum fetum. Ja, við erum að taka dálítið stór skref. Við erum að herða tökin. Í því felst ekki annað en það að vera með stjórn á þessum málaflokki. Viðreisn á ekkert að vera feimin við að ræða það þannig. Við viljum vera með stjórn á ríkisfjármálunum. Við ætlum að vera með stjórn á útlendingamálum. Þetta er almannahagsmunamál að svo sé í mínum huga. Og það er ekki þannig að það eigi að leyfa þeim flokkum sem að hæst láta alla daga að eiga þennan málaflokk. Hér er bara unnið eftir skýrri stefnu.
Það sem ég reyndar trúi á líka er að skýrt regluverk, skýrt eftirlit til dæmis, sé í reynd meira mannúðarmál heldur en að hafa allt opið og eftirlitslaust af því það bitnar alltaf á þeim sem eru í veikustu stöðu í samfélaginu. Það sjáum við til dæmis bara í því að lögregla er í dag með nokkrar stórar vinnumansalsrannsóknir. Þar eru það ekki Íslendingar sem eru brotaþolar heldur útlendingar. Þau eru fórnarlömb og þolendur þess að reglur voru allt of opnar, eftirlit var ekki neitt. Að settar voru reglur um það til dæmis að menn gætu komið hérna, fengið atvinnuleyfi sem sérfræðingar án þess að nokkuð væri á bak við það hugtak. Brotaþolarnir í stóru hérna vinnumansalsmáli, þeir voru sérfræðingar og unnu við það að steikja núðlur. Eins og ég segi, mér finnst það ekki spegla mestu mannúðina að vera með opnustu reglurnar og allt eftirlitslaust af því það bitnar á þeim sem veikastir standa.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.