Þorsteinn Siglaugsson, hagfræðingur og heimspekingur skrifar:
Í umræðu um fullveldi er oft gengið út frá því að það snúist aðeins um sjálfstæði ríkisins gagnvart öðrum ríkjum. Minna fer fyrir umræðu um hinn endanlega kjarna fullveldis, persónulegt fullveldi okkar sjálfra - frelsi okkar, jafnræði og réttaröryggi - og þá spurningu hvort ytra fullveldi ríkis nægi til að tryggja þetta. Gagnvart okkur sem einstaklingum innan ríkisins er þetta hins vegar ein af lykilspurningunum sem vakna þegar við vegum og metum mögulega aðild að ESB. Styrkir hún eða veikir persónulegt fullveldi okkar?
Þegar mestu skiptir hver þú ert
Í litlu samfélagi getur vald safnast á fáar hendur, bæði í atvinnulífi og stjórnsýslu. Persónuleg tengsl eru sterk, stofnanir smáar, sami hópur fólks getur komið fyrir aftur og aftur í ólíkum hlutverkum og starfsmenn innan ólíkra stofnana tengst sterkum böndum innbyrðis og gagnvart málsaðilum. Allt hefur þetta komið fram í rannsóknum, t.d. Elítu-rannsókn stjórnmálafræðideildar HÍ og einnig má benda á bók Hauks Arnþórssonar stjórnsýslufræðings, „Um Alþingi: Hver kennir kennaranum“. Þetta getur aukið hættu á hagsmunaárekstrum, óformlegum áhrifum og því að einstaklingar eigi erfitt með að fá ákvörðun endurskoðaða af óháðum aðila. Það þekkja því miður mörg þau sem lent hafa í þeirri stöðu að þurfa að gæta réttar síns gagnvart innlendum stjórnsýslustofnunum eða innan réttarkerfisins. Þá skipta lögmæti, réttlæti og vönduð málsmeðferð oft minna máli en hver þú ert, hvað þú átt, hverjum þú tengist og hver áhrif þín eru. Og oft ekki síst hvert kyn þitt er.
Eftirlit með réttarríkinu og varnir gegn spillingu
Framkvæmdastjórn ESB birtir árlega svonefnt Rule of Law Report fyrir hvert aðildarríki. Þar er meðal annars lagt mat á sjálfstæði og virkni dómskerfis, spillingarvarnir, fjölmiðlafrelsi og það kerfi mótvægis og eftirlits sem á að koma í veg fyrir misbeitingu opinbers valds.
ESB lítur ekki svo á að spilling felist aðeins í mútum. Reglur og stefna sambandsins ná einnig til hagsmunaárekstra, misnotkunar embættisvalds, viðskipta með áhrif, frændhygli og annarra aðstæðna þar sem persónulegir hagsmunir eða tengsl geta skert hlutlægni opinberrar stjórnsýslu.
Þessi áhersla á réttarvernd einstaklinga er ekki aukaatriði í ESB. Hún er í raun hornsteinn sambandsins og það er ekki að ástæðulausu. Spilling og hagsmunatengsl eru áhættuþáttur alls staðar og þess vegna er ytra aðhald svo mikilvægt. Í litlu samfélagi skiptir þetta enn meira máli. Tengsl milli starfsmanna eða stjórnenda mismunandi stofnana eru ekki sjálfkrafa vandamál, en þegar þau hafa áhrif á meðferð mála geta þau vegið að réttaröryggi og ýtt undir spillingu. Og þegar nátengdir einstaklingar eiga að meðhöndla mál á æðra stjórnsýslustigi birtist það gjarna í óeðlilegri málsmeðferð.
Réttur til raunhæfs úrræðis
Samkvæmt 47. gr. Sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi á einstaklingur, þegar réttindi hans samkvæmt ESB-rétti eiga í hlut, rétt á raunhæfu úrræði fyrir sjálfstæðum og óhlutdrægum dómstóli. Þetta er mikilvæg meginregla. Fyrir stjórnsýslustofnun er óháð endurskoðun takmörkun á valdi hennar. Fyrir einstaklinginn er hún leið til að setja valdi stofnunarinnar mörk af aðila sem hún ræður ekki yfir og tengist ekki. Innlendir dómstólar aðildarríkjanna starfa jafnframt innan sameiginlegs evrópsks réttarkerfis og geta leitað túlkunar Evrópudómstólsins á ESB-rétti. Þar með hefur innlenda kerfið ekki alltaf síðasta orðið um réttindi einstaklingsins, hann hefur möguleika á að vísa því til aðila sem er raunverulega óháður, ekki aðeins formlega.
Vernd gegn hefndaraðgerðum
Reglur ESB um vernd uppljóstrara byggja á þeirri hugsun að réttur til að tilkynna misferli sé lítils virði ef sá sem gerir það þarf að óttast hefnd.
Tilskipunin krefst meðal annars öruggra tilkynningarleiða og verndar gegn ýmiss konar hefndaraðgerðum. Hún nær ekki til allra stjórnsýslukvartana, en meginreglan er mikilvæg; einstaklingur á að geta bent á brot án þess að framtíð hans sé í höndum þeirra sem hann gagnrýnir. Hann á að geta gætt réttar síns í einu máli án þess að óformleg tengsl valdi því að brotið sé á honum í öðru máli.
Ef aðildarríki brýtur gegn ESB-rétti getur framkvæmdastjórnin hafið samningsbrotamál og eftir atvikum farið með málið fyrir Evrópudómstólinn. Þetta þýðir ekki að framkvæmdastjórnin verði almenn kærunefnd yfir íslenskri stjórnsýslu. En ef vandinn er kerfisbundinn og fellur undir ESB-rétt er ríkið ekki lengur eitt um að meta hvort þess eigin starfshættir standist.
Persónulegt fullveldi þitt er lykilatriðið
Þetta leiðir okkur aftur að grundvallarspurningunni:
Ef fullveldi ríkisins er aðeins skilgreint sem frelsi innlendra valdhafa til að taka ákvarðanir án ytra aðhalds, þá skerðir ESB-aðild það fullveldi að því leyti sem það tekur til samskipta við íbúa. En um leið styrkist persónulegt fullveldi einstaklingsins, frelsi og réttaröryggi. Þannig getur það farið saman að fullveldi innlendra valdhafa takmarkist um leið og persónulegt fullveldi okkar eykst.
Í litlu samfélagi, þar sem persónuleg tengsl og samþjöppun valds hafa miklu meira vægi en í stærri ríkjum, er óháð ytra aðhald ekki aukaatriði heldur lykilatriði í allri umræðu um fullveldi í víðum skilningi þess hugtaks. Kannski ein af sterkari röksemdunum fyrir því að láta á það reyna hvort við náum samningi um aðild að ESB sem síðan verður borinn undir okkur í þjóðaratkvæðagreiðslu.