Eyjan

Haraldur Ólafsson skrifar: Eigendur útgerða hagnast á aðild að ESB

Mynd

Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar skrifar: 

Í málefnafátækt hefur verið brugðið á það ráð að tengja þá sem vilja afþakka aðild að Evrópusambandinu við hina og þessa hópa samfélagsins, sem líklega eru taldir njóta takmarkaðra vinsælda. Þar eru meðal annars stórútgerðarmenn.

Við inngöngu í Evrópusambandið hverfa höft á eignarhaldi í sjávarútvegi. Þá opnast leið fyrir eigendur hlutabréfa í útgerðarfélögum að selja hluti sína á stórum markaði í útlöndum sem sífellt leitar tækifæra til fjárfestinga. Næsta víst er að verð bréfanna yrði hærra, en á hinum litla íslenska hlutabréfamarkaði. Kannski miklu hærra. Þegar útgerðin er komin í eigu erlendra aðila yrði þess varla langt að bíða að skoðað yrði hvort ekki mætti spara með því að skipta um áhöfn á skipunum og landa aflanum nær þeim sem ætla að flaka og borða fiskinn.

Næsta skref yrði svo líklega að reyna að koma veiðigjöldum, sem Alþingi Íslendinga hefur lagt á, fyrir kattarnef. Veiðigjöld af því tagi sem eru á Íslandi tíðkast almennt ekki í Evrópusambandinu og spænsku fyrirtæki sem kaupir íslenska útgerð þætti eflaust undarlegt að þurfa að greiða veiðigjald fyrir aflaheimildir sem koma í gegnum Ísland, en ekki fyrir aflaheimildir sem koma frá öðrum stjórnvöldum, en gilda fyrir fisk úr sama sjó. Erfitt er að spá hvernig framvinda yrði í veiðigjaldatafli, en víst er að Evrópudómstóllinn hefur aðrar reglur til viðmiðunar, en Hæstiréttur Íslands hefur í dag og hann gæti fengið þetta mál til meðferðar, eins og t.d. Hreinn Loftsson hefur bent á í Morgunblaðinu 6. maí sl. Fyrir íslensk stjórnvöld er ekki á vísan að róa varðandi veiðigjöld til allrar framtíðar ef Ísland gengi í Evrópusambandið. Í dag ræður Alþingi og það er óumdeilt. Hví skyldum við rugga þeim báti?

Látum ekki skoðun okkar á einstökum flokkum eða stéttum manna stjórna því hvernig við greiðum atkvæði. Veljum að halda völdunum í höndum þeirra, sem við ráðum og rekum sjálf, í stað þess að færa þau til útlanda, þar sem hagur Íslendinga vegur lítið sem ekkert. Kjósum NEI þann 29. ágúst.