Eyjan

Guðmundur jarðar lífseiga söguskoðun: „Þetta stenst ekki sögulega skoðun“

Mynd
Guðmundur Hálfdánarson. Skjáskot/Youtube

Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, segir að það komi á óvart hversu lengi söguskoðun margra lifi um að Ísland eigi allt sitt að þakka að losna við erlend yfirráð. Guðmundur ræddi söguskoðanir í Rauða borðinu á Samstöðinni í tengslum við umræðuna um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við Evrópusambandið. 

Guðmundur segir það ekki standast skoðun að velgengni Íslendinga megi rekja til þess að við höfum loks verið laus við erlend yfirráð. Bendir hann á að það hafi ekki verið Danir sem hafi helst kúgað Íslendinga, það hafi frekar verið stórbændur. Í raun hafi Danir verið að mestu afskiptalausir þegar þeir hafi haft tækifæri til að koma upp iðnaði og nýta auðlindir Ísland.

Græddum á síðari heimsstyrjöldinni

Það sé enn lífsseig sú söguskoðun að Ísland hafi gengið vel á þjóðveldistímabilinu, svo hafi hallað undan fæti þegar Noregskonungur tók völdin og allt hafi farið á versta veg þegar Danir hafi tekið öll völd eftir siðaskipti. Glæsitímabil Ísland hafi svo hafist þegar Ísland fór að öðlast meira sjálfstæði.  

„Lærdómurinn sem menn draga af því er að það sé æðsta hlutverk allra stjórnmálamanna að sjá til þess að Ísland lendi ekki aftur undir yfirráðum útlendinga því það leiði til hörmunga fyrir Íslendinga. Vandinn er sá að þetta stenst ekki sögulega skoðun,“ segir Guðmundur.

„Ef við lítum jákvæðum augum á nútímasamfélag með heilbrigðiskerfi og almennri velmegun þá er síðari heimsstyrjöldin tíminn þegar við tökum skrefin í þá átt, það er akkúrat tíminn sem að Íslendingar eru undir, ef að Íslendingar hafi einhverntíma verið undir, valdi erlendrar þjóðar.“

Þessi söguskoðun hafi spilað stórt hlutverk í umræðum um inngöngu Íslands í Atlantshafsbandalagið, EFTA og svo EES. „Alltaf kostaði þetta ofboðslegar deilur,“ segir Guðmundur. 

Þá horfi Íslendingar öðrum augum á Evrópusambandið en aðrar þjóðir. „Við lítum á síðari heimstyrjöldina allt öðrum augun heldur en Evrópuríkin vegna þess að við gengum í gegnum hremmingar 20. aldarinnar með allt öðrum hætti heldur en þau ríki. Við græddum á síðari heimstyrjöldinni á meðan hin löndin voru sprengd upp,“ segir hann.

„Íslendingar eiga oft erfitt með að horfa á þetta öðruvísi en með spurningum um evru og vexti. Á meðan í Evrópu er þetta líka miklu meira spurning um hvernig við ætlum að lifa friðsamlegu lífi í álfunni.“

Lógísk afstaða að segja upp aðild að EES ef fullveldið er svona mikilvægt

Guðmundur ræddi einnig um fullveldismál en umræðan um fullveldi landsins hefur verið áberandi í umræðunni í sumar.

„Varnarmál eru gríðarlega stór þáttur í fullveldinu. Það er stundum sagt að fullveldið eigi sér þrjár meginstoðir,“ segir hann. Það er hið efnahagslega fullveldi, það er menningarlegt fullveldi og svo öryggisfullveldi. „Það skiptist í tvennt, það er annars vegar innra öryggið þannig að fólk sé ekki að skera hvort annað á háls, líf og eignir séu varðar frá öðrum íbúum, síðan einnig að verja landamærin fyrir árásum utan frá. Sá hluti fullveldisins hefur aldrei verið í höndum Íslendinga. Hafið var okkar vörn en það reyndist ekki alltaf vel. Við höfum yfirleitt verið látin í friði af utanaðkomandi árásum, með undantekningum.“

Fáir tali nú um að segja upp aðild að EES, Evrópska efnahagssvæðinu, nema þá helst öfgamenn. „Ef fullveldið er svona ofboðslega mikilvægt þá er það auðvitað lógísk afstaða. Þá verðum við bara að standa á okkar eigin fótum og gera þá tvíhliða samninga út og suður. Það getur vel verið að það sé hægt.“

Hér má horfa á viðtalið í heild sinni: