Eyjan

Guðmundur Einarsson skrifar: Ólafur Ragnar er kominn heim

Mynd

Hvern skyldi hafa órað fyrir því að Ólafur Ragnar Grímsson yrði einn daginn helsti talsmaður Sjálfstæðisflokksins?

Fyrsti fundur Áfram Íslands byrjaði á innslagi hans með rómantísku spjalli um föðurlandið, vegleysur og einangrun.

Í leiðinni notaði hann tækifærið og kom því að hve langförull hann væri. Í konungsríki hans gengur jú sólin aldrei til viðar.

Og vegna hins langa ferðalags um íslenska flokkakerfið veit hann allt um vegleysur og einangrun.

En eftir flækinginn um alla veröldina var hann loksins kominn heim. Og hann var augljóslega aufúsugestur.

Á fundinum í Sjálfstæðishúsinu var hann maður meðal vina, raunar aðalmaðurinn. Salurinn var fullur af Sjálfstæðismönnum. Valhöll sagði þeim öllum að mæta.

Þar voru Guðrún Hafsteinsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson. Einn formaður og tveir næstum-því-formenn. Minna má nú gagn gera, hefði hún móðir mín sagt.

Og það voru fleiri að leita leiðsagnar. Framsóknarmenn sendu það sem eftir er af flokknum; fyrrverandi formanninn Guðna Ágústsson, núverandi utanþingsformanninn Lilju Alfreðsdóttur og Einar Þorsteinsson, einhverskonar forystumann í Reykjavík.

Framsókn hafði raunar verið fyrsti áfangi Ólafs Ragnars í leitinni að framtíðargistingu í stjórnmálum á Íslandi. Honum tókst næstum að kljúfa flokkinn í byrjun áttunda áratugarins. Forystan spúlaði loks dekkið og losaði sig við hann. Áhugafólk um stjórnmál getur gúgglað lykilorðið „Möðruvallahreyfingin“.

Á leiðinni frá Framsókn rakst hann á Samtök frjálslyndra og vinstri manna. Þar leitaði hann skjóls í dyragættinni um stund, en Samtökin kiknuðu undan álaginu og hættu 1976. Hann hélt áfram sínu pólitíska flakki og fann Alþýðubandalagið.

Þótt þú langförull legðir...

Þar á bæ var sjaldnast friður enda líkaði honum vistin vel og þar varð hans afdrep í næstum tvo áratugi, frá 1977 til 1996, þegar hann varð forseti. Það varð hans pólitíski bithagi og heimaland.

Hann glímdi löngum við Svavar Gestsson, formann flokksins og fljótt mældust jarðskjálftar þegar Svavarsflekinn og Ólafsflekinn rákust saman.

Kvikusöfnunin varð loks svo mikil að upp úr gaus, Ólafur Ragnar tók formennskuna af Svavari  og var í því hlutverki þegar hann barðist gegn samningnum um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu.

Þegar Alþingi greiddi atkvæði um samninginn þann 12. janúar 1993, greiddu allir þingmenn Alþýðubandalagsins, níu að tölu, atkvæði gegn honum undir skeleggri forystu Ólafs Ragnars.

Sama gerði helmingur þingmanna Framsóknarflokksins en afgangur þeirra sat hjá, enda opnir í báða enda að hætti flokksins.

Það er Sjálfstæðisflokki og Alþýðuflokki að þakka að EES samningurinn var samþykktur, samningur, sem allir flokkar vildu nú gert hafa, telja ómissandi og sumir jafnvel nægan fyrir ókomna framtíð.

En hvers vegna ætla Sjálfstæðismenn núna að treysta dómgreind Ólafs Ragnars og hlíta leiðsögn hans?

Gerðu þeir það varðandi aðildina að NATÓ?

Gerðu þeir það varðandi fjölmiðlalögin forðum, þegar hann neyddi ástsælan og nýlátinn formann þeirra, Davíð Oddsson, til að draga þau til baka?

Var það ekki hann sem sagði Davíð Oddsson hafa „skítlegt eðli“?

Fyrirgefning syndanna

Sjálfstæðismönnum virðist óþarfi að erfa þetta við Ólaf Ragnar nú, þegar þeir telja mikið í húfi, forréttindastöðu fyrirtækja og atvinnugreina sem þóknast flokknum og halda uppi Morgunblaðinu.

Ólafur Ragnar virðist vera búinn að taka Sjálfstæðisflokkinn yfir. Hann leggur honum orð í munn og er helsti málsvari Áfram Íslands, sem er verkfæri flokksins til að viðhalda stöðu sinni. Honum líður hvergi vel nema í félagsskap auðmanna og skeytir þá hvorki um skömm þeirra né heiður.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður flokksins fær hvergi að koma fram í baráttunni nema þar sem það er óhjákvæmilegt stöðu hennar vegna eins og í Silfrinu.

Guðrúnu væri hollt að muna hver afdrif formanna og flokka geta orðið þar sem Ólafur Ragnar millilendir. Hann treður sér alltaf fremst í röðina.

Höfundur er lífeðlisfræðingur og fyrrverandi alþingismaður