Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambandsins og fyrrverandi þingmaður, tjáir sig um umtalaðan þátt af Silfrinu sem var á dagskrá RÚV á mánudagskvöld, þar sem tekist var harkalega á um Evrópumálin.
Margréti fannst umræðan í þættinum vera vanstillt og gagnrýndi m.a. Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins, fyrir fullyrðingar um að deilur um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB sundri fjölskyldum:
„Í fyrsta lagi hvað umræðan var yfirdrifin og allt að því hysterísk á köflum og eiginlega engum til sóma, þótt mér hafi fundist bæði Kristrún og Þorgerður standa sig vel þá sjaldan þær komust að, og hefði haft gaman að Ingu. Ég hef reyndar verið á þeirri skoðun að þegar málum er vísað til þjóðarinnar, hvort sem það er af forseta eða meirihluta þings, þá eigi atvinnustjórnmálamenn heldur að halda sig til hlés. Því fannst mér fáránlegt að sjá Guðrúnu Hafsteinsdóttur krefja Ingu Sæland svara um hvernig hún ætlaði að kjósa því hún væri að leiða flokk. Mér fannst hún gefa til kynna að sem formaður flokks ætti hún að segja sínu liði hvernig ætti að kjósa. Talaði um "að leiða" ef ég man rétt. Þessi skilningur á lýðræði er mér mjög framandi. Þeir stjórnmálaflokkar sem ég hef tekið starfað í (og þeir eru allmargir) eru þannig að það er grasrótin sem leggur línurnar og mótar stefnuna. Þeirri stefnu ber forystunni að fylgja eftir eins vel og hægt er.
Ummæli Guðrúnar um að fjölskyldur væru að sundrast eru mér algjörlega óskiljanleg og mér finnst hún gera lítið úr landsmönnum, eins og þeir ráði ekki við að ræða alvöru mál. Nú tilheyri ég fjölskyldu sem gjarna tekst á um stjórnmál (sem meðlimum hennar finnst sennilega misskemmtilegt) en aldrei hefur það valdið illindum á milli okkar þótt við séum ekki sammála.“
Margrét segir ótta við að missa ítök og völd einkenna málflutning formanna stjórnarandstöðuflokkanna, miklu fremur en ótta við ESB, enda sé þar ekkert að óttast.
Gera lítið úr breyttri heimsmynd
Margrét segir að það valdi henni áhyggjum hvað formenn stjórnarandstöðuflokkanna geri lítið úr þeirri breyttu heimsmynd sem blasi við, ekki síst vegna framferðis Rússa og Bandaríkjamanna. Þó að eðlilega séu skiptar skoðanir um varnarmál þá sé afneitun þar ekki í boði:
„En það sem situr mest í mér og veldur mér hreinlega áhyggjum er hve formenn stjórnarandstöðuflokkanna gerðu lítið úr þeirri breyttu heimsmynd sem Kristrún ræddi um. Nú þegar Trump ásælist Grænland, Pútin hefur ráðist á Evrópskt ríki og Bandaríkin og Ísrael standa í stríðsreksti í Miðausturlöndum, svo eitthvað sé nefnt, finnst mér það galið. Á meðan hin Norðurlöndin eru að yfirfara sín varnarmál af alvöru og þunga þá er látið eins og allt sé í himnalagi í heiminum, svo lengi sem við lokum bara á umheiminn.
Við getum haft allskonar skoðanir á varnarmálum en afneitun er ekki ein þeirra.“