Eyjan

Svarthöfði skrifar: Samtök bænda eru enn gegn framförum – voru á móti ritsímanum 1905

Mynd

Þeir sem hafa lesið Íslandssöguna muna frásögn af því þegar bændur landsins risu upp árið 1905 og börðust harkalega gegn síma. Þeim þótti liggja svo mikið við að þeir riðu hópreið til Reykjavíkur sumarið 1905 til að mótmæla símanum. Hurfu frá búum sínum um hásláttinn til að koma þeim einlægu skoðunum sínum skýrt á framfæri að ekki yrði lagður sæstrengur til Íslands. Bændur vildu ekki símalínur til landsins. Þeir voru alfarið á móti þannig framförum, kusu einangrun.

Þessi atburður í Íslandssögunni rifjast upp fyrir Svarthöfða þegar hann fylgist dolfallinn með málflutningi Bændasamtakanna vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Samtökin halda uppi linnulausum hræðsluáróðri og framsýnin er alveg hreint á pari við framsýni bænda í símamálinu. Nú hefur bændaforystan pantað úrtöluskýrslu sem á að sýna fram á að vá sé fyrir dyrum ef við bara ræðum við ESB, þó það leiði ekki til annars en að við fáum samning á borðið sem þjóðin getur tekið afstöðu til. Svarthöfði hefur séð svona aðferðafræði áður og kannast við hana. Það hefur löngum verið hægt að panta niðurstöður úr margvíslegri skýrslugerð, hvort sem um er að ræða lögfræðiálit eða hagfræðilegar greiningar. Allt snýst þetta um það hvaða forsendur fólk gefur sér. Skýrsla Bændasamtakanna er einhliða og þess bersýnilega gætt að engin jákvæð sjónarmið kæmust. Hún er bara eins og besta lögfræðiálit sem tekur fullt tillit til þarf og óska þess sem borgar fyrir gerð hennar.

Einhvern veginn hafði Svarthöfði gefið sér það fyrir fram, að hræðsluáróðurinn í skýrslunni myndi ganga svo langt að samkvæmt honum mætti ætla að landbúnaður leggist að mestu af á Íslandi ef til inngöngu í ESB kæmi og að sveitir landsins verði hálfgerð eyðimörk þar sem engin starfsemi geti þrifist. Enda kom það á daginn. Talsmenn bænda sem mest hafa sig í frammi leggja fátt uppbyggilegt til. Þeir kvarta og kveina og tala um að opinberir sjóðir þurfi að leggja þeim til enn meiri styrki, en niðurgreiðslur til landbúnaðar nema nú árlega tugum milljarða af skattpeningum þjóðarinnar.

Eftir því sem Svarthöfði kemst næst er landbúnaður á Íslandi mjög mismunandi eftir því hvort um er að ræða gamaldags hokur eða stórhuga bændur sem hafa þorað og horft fram á veginn, fjárfest og byggt upp af myndarskap. Þeir eru sem betur fer margir hringinn í kringum landið. Víða er að finna stórbú í nautgriparækt þar sem fjöldi gripa er hundrað, tvö hundruð og allt upp í 500 talsins eins og dæmi eru til. Búskapurinn i Gunnbjarnarholti á Skeiðum er glæsilegt dæmi um það en verðlaunabændur eru þar að verki.

Svarthöfði minnist þess að á árunum í kringum síðustu aldamót fór að bera á stórhuga bændum sem þorðu að fjárfesta og byggja upp myndarbú, einkum í mjólkurframleiðslu og nautgriparækt og einnig hrossarækt en minna á sviði sauðfjárræktar. Ekki voru allir hrifnir af myndarlegu framtaki sumra þeirra og virtust halda að enn ætti að treysta á hokurbúskap fyrri tíma. Einhverjir nefndu þá „bankabændur“ í niðrandi tón því vitanlega þurftu menn stuðning fjármálastofnana til að geta fjárfest og byggt upp. Glæsilegan búskap er að finna hringinn í kringum landið.

Svarthöfði sér ekki betur en að þeir bændur sem reka myndarlegu búin einbeiti sér að rekstri sínum og glæsilegum búskap en láti öðrum í greininni eftir úrtölur og hræðsluáróður. Það vantar alveg meiri umfjöllun um jákvæðu hliðina á íslenskum landbúnaði. Sem betur fer er margt til fyrirmyndar þótt víða sé enn hokrað með fáa gripi og óarðbær bú þar sem menn þora ekki að horfa til framtíðar og framfara.

Svarthöfði er þeirrar skoðunar að samtök bænda þurfi að gera það upp við sig hvort greinin ætli að teljast alvöruatvinnuvegur eða vera eins konar lífsstíll. Það verður ekki bæði sleppt og haldið í þeim efnum.

Það er einnig mikið áhyggjuefni fyrir neytendur hér á landi að íslenskar landbúnaðarvörur skuli hækka mest þeirra helstu neysluvara sem landsmenn kaupa. Í umræðum um hækkun vísitölu hefur komið fram að þegar hækkunum vegna olíuverðs á heimsmarkaði sleppir sé það verð á íslenskum landbúnaðarvörum sem hækkar mest. Það kann ekki góðri lukku að stýra í þeim málatilbúnaði sem Bændasamtökin standa nú fyrir og byggist á hræðsluáróðri annars vegar og hins vegar hugmyndum um meiri opinberan stuðning. Mætti ekki að byrja á því að taka til heima hjá sér?

Svarthöfði er áhugamaður um sögu og eitt hefur hann lært í gegnum tíðina: Framtíðinni verður ekki slegið á frest. Bændasamtökin á Íslandi geta ekki stöðvað eðlilega framvindu og framþróun með gamaldags einangrunarstefnu. Mun farsælla er að taka sér þá stórhuga bændur til fyrirmyndar sem hafa þegar sýnt það að unnt er að byggja upp til framtíðar – jafnvel þótt bændum hafi ekki tekist að stöðva komu símans til Íslands árið 1905.

Mynd