Eyjan

Sigmundur Ernir skrifar: Fullveldið eykst við aðild

Mynd
Mynd

Það má heita ráðgáta og miklu heldur þverstæða í huga neikvæðra Íslendinga að vilja vera innan regluverksins hjá Evrópusambandinu en telja sig samt ekki eiga heima þar. Og leggja raunar slíka fæð á þetta sama samband – og óttast þar að auki allt sem evrópskt er – á sama tíma og þeir ljá því ekki máls að segja skilið við evrópska efnahagssamninginn.

Það er af því að þeir vita sem er hver hagurinn af honum hefur reynst allt frá síðustu öld. Enginn annar alþjóðlegur samningur hefur fært Íslendingum meiri hagsæld en sá sem kenndur er við EES.

En þá skal einmitt barist gegn enn meiri samvinnu við helstu viðskiptaþjóðir landsins, segja neikvæðir sem margir hverjir hafa raunar barist gegn öllu samstarfi við önnur lönd frá því um miðja síðustu öld, og hafa ávallt talið það fara Íslandi best að vera einangrað hagkerfi sem geti verið sjálfu sér nægt.

Svo er það fullveldið.

Ísland megi ekki glata því. En kanntu annan? Því þar er líklega komin kómískasta mótsögnin í málflutningi andstæðinga evrópskrar samstöðu, sem vilja áfram bíða frammi á gangi í salarkynnum sambandsins og bíða þess hnípnir á milli vonar og ótta um hvers konar lagabálka og regluverk þeir muni fá yfir sig á komandi tímum.

Hér er við hæfi að minna á hvað danski vinstrimaðurinn Jens-Peter Bonde sagði í viðtali við Árna Snævarr fréttamann um árið, en með EES í stað ESB kysu Íslendingar „að lúta ljósritunarlýðræði þar sem stjórnvöld verða að láta sér nægja að ljósrita ákvarðanir eða fá þær sendar í tölvupósti. Þið hagið ykkur eins og þið séuð nýlenda ESB. Þetta er niðurlægjandi fyrir ykkur,“ sagði sá danski, gáttaður á þessu margra áratugalanga fullveldisframsali eyjarskeggja í norðri, en hann var raunar einn helsti leiðtogi danskra ESB andstæðinga á sinum tíma en snérist hugur þegar hann kynntist evrópsku samstarfi og sá hagsæld Dana dafna innan sambandsins.

„Nei-sinnar berjast fyrir áhrifaleysi innan álfu sinnar með kjafti jafnt og klóm og megi það verða fest í sessi um aldur og ævi.“

Það er nefnilega svo að fullveldisrökin falla um sjálf sig ætli menn áfram að þiggja regluverk sitt frá öðrum þjóðum án þess að geta haft áhrif á inntak þess og afleiðingar. Þau eru aftur á móti góð og gild ef hvatt er til úrsagnar úr EES svo landsmenn geti látið af þeim ósið að útvista utanríkisstefnu sinni til ákvarðana og stefnu annarra en sjálfra sín.

En nei, það þora andstæðingar frekari Evrópusamvinnu ekki fyrir sitt litla líf. Þeir vita það jafn vel og jákvæðir alþjóðasinnar uppi á eyjunni grænu að íslensk velmegun byggir stoðir sínar á fjórfrelsi efnahagssamningsins við Evrópu og væri ekki svipur hjá sjón ef og þegar honum yrði sagt upp.

Þetta eru helstu og mestu öfugmælin í málflutningi einangrunarsinna. Þeir fullyrða að fullveldið fjúki út í veður og vind við það að sitja við borðið og hafa þar atkvæðisrétt um lagasetningu sem hefur jafn mikið áhrif á Íslandi og annars staðar í Evrópu. Nei-sinnar berjast fyrir áhrifaleysi innan álfu sinnar með kjafti jafnt og klóm og megi það verða fest í sessi um aldur og ævi. Verum einmitt áfram nýlenda á norðurhjara.      

Þeir telja enn fremur að ekkert framsal valds sé fólgið í því að eftirláta seðlabönkum í Frankfurt og Washington að stýra vaxta- og gengisumhverfi allrar útflutningsframleiðslunnar, eða nærri helmings þjóðarframleiðslunnar eins og Þorsteinn Pálsson hefur bent á í skrifum sínum, en slíkt framsal sé bara fullveldisfórn ef það nái til litla mannsins og litlu fyrirtækjanna, sem ein sitja eftir í aðþrengdu krónuhagkerfi sem allar þjóðir í kringum okkur horfa á í forundran.

Ísland tekur nú upp allt að sjötíu og fimm prósent löggjafar ESB vegna aðildar að EES án þess að hafa neitt um málið að segja. Spurningin sem íslenskir kjósendur eiga að velta fyrir sér fram undir lokin á þeim mánuði sem nú er að líða, varðar fullveldi og sjálfsmynd þjóðarinnar. Ber henni að bíða áfram við dyrnar, eða er hún tilbúin að ganga inn og greiða atkvæði um framtíð sína og farsæld?

Og hvort er nú mynduglegra?