Eyjan

Pawel Bartoszek: Gæðafólk bæði meðal nei-sinna og já-sinna – vildi alveg hafa marga nei-sinna í mínu liði

Mynd

Það er gott fyrir þjóðina að hafa stjórnmálamenn af þeim kalíber sem Kristrún Frostadóttir er. Það er mikilvægt að umræða fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB sé hófstillt og yfirveguð. Það er gott fólk í báðum fylkingum og fólk á ekki að koma sér fyrir í skotgröfum þótt það greini á um aðildarviðræðurnar. Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Eyjan - Pawel Bartoszek - 1

Það var að koma skoðanakönnun sem sýnir það að þeir eru fleiri og eru enn fleiri sem ætla að segja já. 29. ágúst heldur en hinir sem ætla að segja nei. Það hefur jafnvel fjölgað aðeins, það er kannski ekki marktækur munur en það er 53%, ætla að segja já á móti 52% fyrir hvað, einum og hálfum mánuði. Hvernig lestu í svona tölur?

„Ég náttúrlega bara fagna því að það sé meirihluti fyrir þeirri skoðun sem ég er á og ef ég myndi þurfa að taka því fyrir segjum ári síðan eða tveimur að við værum að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort við ættum að halda áfram eða hefja viðræður á ný við Evrópusambandið um hugsanlega aðild og mér stæði til boða að taka þeirri stöðu þar sem ég væri með 6% forskot mánuði áður en þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram, þá myndi ég alltaf stökkva á það tilboð. Þannig að ég er ánægður með að sjá þessar tölur.“

Já, af því nú hefur verið mikill hávaði í kringum nei-hreyfinguna, það voru stofnuð ný samtök og mikið látið með þetta til dæmis í Morgunblaðinu. Það hefur minna heyrst í já-sinnum enn sem komið er en samt virðist þetta hlutfall, svona að það er meirihluti sem vill segja já, það stendur óhaggað.

„Mér finnst þetta hlutfall hafa í rauninni verið dálítið svipað í nokkuð langan tíma. Þær kannanir sem við höfum séð seinustu 2-3 ár varðandi afstöðu til þessarar spurningar hafa verið nokkurn veginn á þessu róli. Það hefur alltaf mælst meirihluti fyrir því að hefja á ný viðræður eða halda þeim áfram undanfarin ár og þó svo að spurning um Evrópusambandsaðildina sjálfa, það hefur verið meiri svona hreyfing á þeirri, þeirri spurningu. En mér finnst þetta þá kannski bara gefa til kynna að allavega ákveðinn og töluvert stór hópur fólks telur að það sé þess virði að kanna til hlítar þessa kosti af því að við vitum auðvitað svona helstu umræðupunktana, ég hef mikið talað bæði um verðlag og vexti.

Við búum á landi þar sem við erum með 8 til 10% vexti á fasteignalánum, sem er eitthvað sem maður bara skammast sín fyrir að segja þegar maður hittir samstarfsfólk sitt og vini erlendis og við gætum breytt því með því að taka upp annan gjaldmiðil og fengið hérna stöðugri og hagfelldari vexti. En það eru auðvitað spurningar sem margir hafa varðandi lykilatvinnuvegina okkar og aðra þætti, en þeim spurningum verður í rauninni ekkert svarað nema að við förum í aðildarviðræður, fáum samning og getum þá tekið endanlega ákvörðun um aðild, já eða nei. Og allavega virðist vera þó nokkur hluti þjóðarinnar sem tekur undir það að það sé rétt leið að gera, sama þá hvaða skoðun menn hafa á aðildinni sjálfri endanlega.“

Á dögunum birtist viðtal við Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, úr hlaðvarpi, ensku hlaðvarpi, „The Rest Is Politics“. Þetta viðtal hefur vakið mikla athygli og þar var fyrst og fremst fjallað um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Þáttastjórnendurnir, þeir voru mjög, þeir voru mjög hrifnir af frammistöðu forsætisráðherra og hvernig hún setti mál sitt fram og hún lagði áherslu á það að vera ekki með einhver yfirboð heldur bara reyna að fjalla um hlutina á svona málefnalegan hátt. Þeir lýstu aðeins efasemdum um það svona í ljósi Brexit-reynslu Breta. Þá lýstu þeir smá efasemdum um að það væri endilega sigurvænleg aðferð að tala um staðreyndirnar og vera ekki í gylliboðunum. Hlustaðirðu á þetta viðtal?

„Já, ég geri það. Kristrún stóð sig bara frábærlega og var auðvitað bara landi og þjóð til sóma og gott að hafa stjórnmálamenn af þessum kalíber sem geta auðvitað komið og talað bara gott mál og, eins og þú segir, skýrt sýn sína mjög vel og ég held að hún hafi gert það, maður heyrir á viðbrögðum að jafnvel þeir sem eru kannski ekkert sammála henni eru nú, það er aldrei gott að neita augljósum staðreyndum, svona eins og til dæmis, ég meina menn tala um Ólaf Ragnar á fundi áfram Ísland, auðvitað er Ólafur Ragnar góður ræðumaður og það má aldrei taka það af fólki sem það hefur og Kristrún, eins og hefur komið fram, er auðvitað bara mjög góð í svona viðtölum og kemur hlutunum mjög skýrt fram. Og mér líkar vel við þennan tón.

Mér finnst að við eigum að reyna að komast í gegnum þetta með eins lítilli skautun og hægt er. Ég veit það er ekki fullkomlega raunhæft en ég kannski segi að núna er þessi tími í baráttunni þar sem maður hefur séð að fólk kemur fram og lýsir yfir að það ætli að kjósa já eða nei og þetta er oft einhverjir statusar á Facebook. Þeir eru oft víðlesnir af því það eru margir sem skrifa við þá og lýsa annaðhvort óánægju eða ánægju með viðkomandi. Þannig að algóritmar ýta þessum færslum upp og ég held að við ættum bara að virða við fólk þegar það sýnir hugrekki að stíga fram í málefni sem er svona pólariserandi og veldur svo mikilli skautun og kemur með sína sýn, sama hvort við séum sammála um það eða ekki og alls ekki að einhvern veginn afskrifa fólk eða mála það út í horn og ég segi þetta líka frá sjónarhorni okkar Já-sinna af því að við auðvitað vonumst til þess að vinna þessa atkvæðagreiðslu núna í ágúst en síðan taka þá vonandi við viðræður og síðan þurfum við líka þá að hafa aðra atkvæðagreiðslu og þá er ekki gott að vera búinn að segja við einhvern, ja þú hefur alltaf verið ómögulegur og svona. Því ef ég horfi bara á margt af þessu fólki sem fer fyrir Nei-hreyfinguna, ég er bara einlægur með það að ég myndi alveg vilja að þau væru með mér í liði. Ég myndi alveg vilja að Ólafur Ragnar væri með mér í liði þó það sé ekkert kannski raunhæft í þessu máli, en það er engu að síður þannig. Þetta er allt saman gæðafólk sem hefur stigið fram og ég ætla ekkert að draga heilindi þeirra í efa þó ég sé ekki sammála þeim í þessu máli.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.