Eyjan

Óttar Guðmundsson skrifar: Blessað internetið

Mynd
Mynd

Þórólfur bægifótur í Eyrbyggjasögu er ein leiðinlegasta persóna Íslendingasagna. Í ellinni gerði hann börnum sínum allt til óþurftar og vann gegn þeim í innansveitarátökum á Snæfellsnesi. Bægifótur kórónaði leiðindi sín með því að ganga aftur og verða erfiður draugur. Eftir mikið stímabrak tókst að ráða niðurlögum karlsins og koma honum fyrir í haugi sínum í Þjórsárdal.

Íslendingasögur greina frá fleiri erfiðum gamalmennum sem gerðu börnum sínum lífið leitt. Egill afi minn Skallagrímsson flutti í fússi í ellinni frá Borg á Mýrum vegna fjölskyldudeilna.

Ég hitti Þórólf bægifót haltrandi á tveimur hækjum í sjúkraþjálfun á dögunum, og spurði hann almennra frétta. „Ég sit mest heima,“ sagði hann. „Leiðist þér ekki?“ svaraði ég. „Nei, alls ekki,“ sagði Bægifótur, „því að núna hef ég netið og facebook mér til skemmtunar. Ég sit frá morgni til kvölds við tölvuna og skrifa um fótbolta, umgengni á sundstöðum, upptöku evrunnar og lausagöngu sauðfjár o.fl. Fjölmargir mínir líkar sitja yfir netinu svo að ég fæ mikil viðbrögð við öllu sem ég skrifa. Ég bíð við lyklaborðið í viðbragðsstöðu og svara öllum sem andmæla mér. Þannig líða dagarnir. Ég sit og rífst við einhverja menn úti í bæ sem þekki ekki neitt. Þetta bjargar dögunum.“ Skömmu síðar rakst ég á Egil þar sem hann sat á þrekhjóli. Hann var með símann í hendinni og skrifaði skilaboð í gríð og erg. „Hverjum ertu að skrifa, afi minn?“ sagði ég. „Það hef ég ekki hugmynd um. Ég er að rífast við einhvern mann um kviður Hómers í Hollywood.“ „Veistu eitthvað um þetta?“ „Nei, ekki neitt en það er svo gaman að æsa fólk upp. Geri lítið annað.“ Hann ýtti á send-takkann með illkvittnislegu glotti.

Á leiðinni út hitti ég Arnkel goða son Bægifótar og Þorstein hvíta son Egils. Þeir voru að sækja feður sína. „Netið hefur bjargað fjölskyldufriðnum,“ sögðu þeir báðir. „Þessir geðstirðu kallar fá útrás fyrir alla sína reiði, beiskju og ósætti við lífið á netinu. Þeir láta okkur í friði á meðan. Hvílík blessun!“

Arnkell goði bætti við: „Við þökkum forsjóninni fyrir facebook þar sem samfélag þrætubókarlistamanna

blómstrar. Ástandið minnir reyndar á gamla vísu eftir Grím Thomsen um Guðmund á Glæsivöllum:

Á Glæsivöllum aldrei
með ítum er fátt
allt er kátt og dátt;
en bróðernið er flátt mjög og gamanið er grátt,
í góðsemi vegur þar hver annan.