Eyjan

Sveinn Andri Sveinsson: „Troddu þessum helvítis tjakki upp í rassgatið á þér“

Mynd

Neikvæðnin og bölmóðurinn í nei-sinnum minnir helst á manninn sem fór upp að bóndabæ til að fá lánaðan tjakk vegna þess að það var sprungið hjá honum og engan hafði hann tjakkinn.Á leiðinni upp að bænum tekst honum að sannfæra sjálfan sig um að bóndinn vilji alls ekki lána honum ytjakk og að lokum biður hann ekki um tjakkinn heldur hreytir ókvæðisorðum í bóndann. Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Eyjan - Sveinn Andri - 4

„En talandi um Breta þá segja þessir snillingar eins og sem harðast mælast gegn þessu á Morgunblaðinu og víðar hérna, það er ekki til sem heitir undanþágur frá reglum Evrópusambandsins. Bretar náttúrlega voru með viðvarandi undanþágu frá Schengen og frá myntsamstarfinu og síðan höfum við fjölda undanþága, þannig að svona þetta er svo mikið kjaftæði í gangi með þetta.“

Já, það hefur verið samið um varanlegar sérlausnir við hvert einasta ríki sem hefur farið þarna inn.

„Íslendingar eru mjög sér á báti að mörgu leyti. Við erum dálítið langt frá meginlandinu. Við höfum fordæmi með Möltu sem eyland þarna á milli. Eða eins og Vigdís Hauksdóttir sagði, talsmaður Heimssýnar, að Malta væri ekki sjálfstætt ríki, eins og frægt er orðið, þar eru ákveðnar sérlausnir.

„Það hefur aldrei ríki sem er í fyrsta lagi eyja sem er jafn langt í burtu og er síðan sko gersamlega eða að mjög miklu leyti háð fiskveiðilögsögunni og auðlindinni, slíkt ríki hefur aldrei áður sótt um aðild að Evrópusambandinu. Þannig að þetta er í fyrsta sinn sem ríki í viðlíka stöðu sækir um, þannig að við vitum ekkert hvernig þetta endar og það má vel vera að það bara náist ekki samningar við Evrópusambandið, þá bara „so be it“.“

Þá bara verður það þannig.

„Eins og krakkinn segir, maður verður að prófa.“

Já, það er nú fræg sagan af tjakknum og ég man nú eftir að hafa lesið þá sögu í skýrslu sem Davíð Oddsson var skráður fyrir. Þetta var vinna innan Sjálfstæðisflokksins, rýni, og þar var niðurstaða hans að það væri algjörlega fráleitt annað en að láta á það reyna hvort við komumst að ásættanlegum aðildarsamningi við Evrópusambandið.

„Manstu, það voru nú margir líka, þegar við gerðum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sem náttúrlega hefur verið okkur algjörlega til mikillar farsældar. Þegar við vorum að gera það, þá skiptust gagnrýnendurnir í tvö horn. Annars vegar þeir sem töldu okkur vera að framselja fiskveiðilögsöguna okkar. Þar var Framsóknarflokkurinn fremstur í flokki og svo voru menn eins og Ólafur Ragnar Grímsson sem töldu betra að vera með í klúbbnum, vera innan Evrópusambandsins, heldur en að fara í þennan samning.

Í tengslum við það má líka minna á það, af því menn eru náttúrlega að tala um framsal á fullveldi. Norska ríkisstjórnin, hún skipaði einhvern tímann hundrað manna hóp sérfræðinga sem var falið að rannsaka það sem sé og gefa umsögn um það hvort að hvort það væri um að ræða óheimilt framsal á fullveldi við inngöngu í Evrópusambandið samanborið við Evrópska efnahagssvæðið. Það var niðurstaða þessara sérfræðinga, sem mér finnst vera rétt, að það væri meira framsal fullveldis sem fælist í EES-samningnum heldur en í að ganga alla leið inn í Evrópusambandið.“

Það má hæglega færa rök fyrir því vegna þess að áhrifaleysið er nær fullkomið.

„En það sem hins vegar stendur upp úr, af því það er nefnilega ansi góð saga þarna með tjakkinn, svo við bara förum yfir það, bara ef einhver færi að spyrja um þessa sögu með tjakkinn. Þá gekk hún náttúrlega, svo við rifjum það upp, að það er bílstjóri sem er að aka úti á landi og það springur og hann er ekki með tjakk í bílnum. En hann sér bóndabæ þarna í fjarska og hugsar, já heyrðu, þarna get ég fengið tjakk og labbar áleiðis að bóndabænum og svo hugsar maðurinn sig: Já, já, hann hlýtur að hafa tjakk. Jú, hann hlýtur að hafa tjakk. Ég spyr hvort hann vilji ekki lána mér hann. Kannski á hann tjakk og bara vill ekki lána mér hann, hugsaði hann þegar hann nálgast bóndabæinn og svo hugsaði hann áfram: „Helvítis bóndinn, ég er viss um að hann á tjakk og tímir ekki að lána mér.“ Og hann er svo orðinn brjálaður þegar hann álgast bæinn. „Helvítis maðurinn vill ekki lána mér þennan tjakk, djöfulsins ósanngirni.“ Svo bankar hann upp á og bóndinn kemur til dyra og bílstjórinn segir: „Troddu þessum helvítis tjakki upp í rassgatið á þér.“

Þetta er dálítið þessi bölmóður og þessi bölsýni sem ríkir hjá neikvæða liðinu í áfram Ísland, sem er náttúrlega mesta öfugheiti sem ég get hugsað mér, vegna þess að þarna er bara fólk að gefa sér það fyrir fram að samninganefnd á vegum Íslands í viðræðum við Evrópusambandið muni ekki ná neinum árangri. Það er það fyrsta. Svo tala þeir um: „Þetta er bara aðlögun að Evrópusambandinu. Það er kjaftæði, það er búið að fá það staðfest að meðan á þessum viðræðum stendur verður ekki um að ræða neinar lagabreytingar sem tengjast þessum viðræðum.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.