fbpx
Fimmtudagur 06.mars 2025
Eyjan

Segir erfiða tíma fram undan hjá nýjum formanni – flokkseigendur misstu völdin og vilja þau á ný

Eyjan
Miðvikudaginn 5. mars 2025 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á landsfundinum um síðustu helgi misstu flokkseigendur, sægreifar, Moggaklíkan og ríka fólkið í kringum Bjarna Benediktsson völdin í Sjálfstæðisflokknum þegar Guðrún Hafsteinsdóttir bar sigurorð af Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur í kosningu til formanns.

Áslaug Arna var frambjóðandi ofangreindra afla en Guðrún Hafsteinsdóttir tilheyrir engri klíku eða fylkingu heldur var hún kjörin út á eigin verðleika. Stjórnmálaferill hennar sé stuttur en öflugur en hún býr yfir mikilli og mikilsverðri reynslu úr atvinnulífinu. Auk þess að vera iðnrekandi hefur hún gegnt formennsku í Samtökum iðnaðarins, verið varaformaður Samtaka atvinnulífsins, stjórnarmaður í lífeyrissjóðum og Háskólanum í Reykjavík, auk þess að hafa verið formaður Landssamtaka lífeyrissjóða. í nýjum Náttfarapistli á Hringbraut skrifar Ólafur Arnarson að þessi reynsla hljóti að hafa ráðið úrslitum á móti reynsluleysi mótframbjóðandans sem fór beint úr háskóla inn á þing.

Í pistli Ólafs kemur líka fram að líklegt sé að þau öfl sem töpuðu völdum í flokknum um helgina muni reyna að rétta hlut sinn á næsta landsfundi sem halda á árið 2027. Einnig kemur fram að þegar af því fréttist að Guðrún væri að íhuga framboð til formanns hafi útsendarar úr herbúðum Áslaugar Örnu og flokkseigenda nálgast Guðrúnu og varað hana við að fara í framboð. Hún ætti þess í stað að gefa kost á sér sem varaformaður. Það hafi Guðrúnu hins vegar ekki þótt áhugavert.

Ólafur rifjar upp átakasögu Sjálfstæðisflokksins, sem líkast til náði hámarki þegar Gunnar Thoroddsen, varaformaður flokksins, myndaði ríkisstjórn með Framsókn og Alþýðubandalagi ásamt fjórum öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins eftir að Geir Hallgrímssyni hafði mistekist að mynda stjórn veturinn 1979-80.

Hann telur að tíminn fram að næsta landsfundi geti orðið Sjálfstæðisflokknum og nýkjörnum formanni hans erfiður. Á næsta ári verða sveitarstjórnarkosningar og eins og staðan er nú bendir margt til þess að flokkurinn ríði ekki feitum hesti frá þeim í Reykjavík og víðar, auk þess sem Framsókn, samstarfsflokkurinn í Kópavogi og Hafnarfirði, á mjög undir högg að sækja og getur ólíklega leitt Sjálfstæðismenn í meirihluta á ný. Ólíklegt sé að aðrir flokkar séu til í að hlaupa undir bagga með Sjálfstæðisflokknum.

Ólafur segir mikla pólitíska reynslu hverfa úr forystu Sjálfstæðisflokksins með brotthvarfi Bjarna Benediktssonar og Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur. Samtals hafi þau átt sæti á þingi í 30 og verið í ríkisstjórn í tæp 20 ár. Nýr formaður sé með þriggja ára þingreynslu og hafi verið ráðherra í tæp tvö ár. Nýr varaformaður hafi enga þingreynslu.

Hann víkur að því að margir telji Þórdísi Kolbrúnu hafa flutt bestu ræðuna á landsfundinum um helgina. „Hún talaði af ábyrgð og yfirvegun um meðal annars ástandið í heimsmálum sem hún hefur góða yfirsýn yfir eftir að hafa gegnt stöðu utanríkisráðherra um árabil. Þórdís Kolbrún reyndi ekki að slá um sig með aumum fimmaurabröndurum sem ættu að vera fyrir neðan virðingu þeirra sem vilja vera í forystu fyrir næststærsta stjórnmálaflokk landsins. Skens á kostnað Ingu Sæland er aumt og heldur er lágkúrulegt að hrauna yfir Vinstri græna þegar þeir liggja óvígir eftir, en þeir voru þó nógu góðir fyrir Sjálfstæðisflokkinn til að leiða þá vinstri stjórn sem flokkurinn sat í síðustu sjö árin þar sem ráðherrar flokksins létu fara vel um sig í mjúkum ráðherrastólum vinstri stjórnar Katrínar Jakobsdóttur, sósíalistaleiðtoga. Þórdís Kolbrún fór ekki niður á þetta plan. Flokkurinn hefur misst mikið þegar hún yfirgefur æðstu forystu flokksins.“

Náttfara í heild má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Formaður Samtaka íslenskra auglýsingastofa: Í grunninn erum við alltaf fólk að tala við fólk – gott væri að hafa fleiri íslenska miðla

Formaður Samtaka íslenskra auglýsingastofa: Í grunninn erum við alltaf fólk að tala við fólk – gott væri að hafa fleiri íslenska miðla
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins: Óánægja með nýjar reglur sem vængstýfa málefnanefndir – formanni fengið fordæmalaust vald

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins: Óánægja með nýjar reglur sem vængstýfa málefnanefndir – formanni fengið fordæmalaust vald
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Baráttan um Sjálfstæðisflokkinn: Áslaug Arna með naumt forskot en Guðrún sögð líklegri til að auka fylgið

Baráttan um Sjálfstæðisflokkinn: Áslaug Arna með naumt forskot en Guðrún sögð líklegri til að auka fylgið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Orðfæri

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Orðfæri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðrún Hafsteinsdóttir: Forystan hefur fjarlægst flokksmenn – fleiri fái að kjósa forystuna en bara landsfundarfulltrúar

Guðrún Hafsteinsdóttir: Forystan hefur fjarlægst flokksmenn – fleiri fái að kjósa forystuna en bara landsfundarfulltrúar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Einar Bárðar hirtir þingmenn og minnir þá á hlutverk sitt – „Flestir á Alþingi enda of gamlir til að skrá sig í slíka keppni“

Einar Bárðar hirtir þingmenn og minnir þá á hlutverk sitt – „Flestir á Alþingi enda of gamlir til að skrá sig í slíka keppni“