fbpx
Laugardagur 22.mars 2025
Eyjan

Orðið á götunni: Ofstæki og heift ræður för – Sá ykkar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum

Eyjan
Föstudaginn 21. mars 2025 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að aðfarir Morgunblaðsins gegn Ásthildi Lóu Þórsdóttur, fráfarandi ráðherra, og Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, staðfesti að erindi blaðsins sé ekki lengur miðlun upplýsinga heldur grímulaus hagsmunagæsla fyrir eigendur sína og Sjálfstæðisflokksins.

Þrátt fyrir að fram hefði komið í gærkvöldi að í fundarbeiðni til forsætisráðherra um málefni Ásthildar Lóu var sérstaklega tekið fram að Ásthildur Lóa gæti setið þann fund heldur leiðarahöfundur Morgunblaðsins því blákalt fram í blaðinu í morgun að forsætisráðuneytið hafi brotið trúnað gagnvart fundarbeiðanda með því að upplýsa Ástu Lóu um fundarbeiðnina.

Ætla má að leiðarahöfundur dagsins sé Davíð Oddsson. Hann gerir mikið úr því að orð forsætisráðherra verði „ævinlega að vera hafin yfir allan vafa.“ Orðið á götunni er að honum hefði sjálfum verið hollt að hafa þessi orð hugföst er hann fyrir aldarfjórðungi réðist að og hrakyrti Hæstarétt Íslands fyrir niðurstöðuna í öryrkjamálinu, sem var honum ekki að skapi. Hann gekk jafnvel svo langt að fá löglærðan vin sinn til að skrifa annan „dóm“ sem honum var betur að skapi og leggja að jöfnu við niðurstöðu æðsta dómstóls þjóðarinnar.

Þá rifjast einnig upp fyrir fólki er Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, lagði fram drög að fjölmiðlafrumvarpi á ríkisstjórnarfundi vorið 2004 sem voru svo fráleit að formaður samstarfsflokksins hafnaði þeim á þeim sama fundi. Úr varð að soðin var saman málamiðlun sem Alþingi samþykkti gegn vilja þjóðarinnar og forseti Íslands neitaði að staðfesta. Forsætisráðherrann lagði ekki í að bera lögin undir þjóðina og lét Alþingi fella þau úr gildi. Eru þau honum engu að síður til fullkominnar háðungar um aldur og ævi og voru upphafið að því að hann hrökklaðist úr pólitík rúmu ári síðar.

Orðið á götunni er að framganga blaðamanna Morgunblaðsins, Ríkisútvarpsins og Stöðvar 2 á blaðamannafundi að loknum ríkisstjórnarfundi í hádeginu í dag hafi beinlínis verið ósæmileg. Í engu var hirt um staðreyndir og spurningar til ráðherra ítrekað endurteknar þrátt fyrir að löngu væri búið að svara þeim og það oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.

Orðið á götunni er að þegar öllu er á botninn hvolft hafi Ásta Lóa Þórsdóttir ekki brotið af sér á nokkurn hátt. Barnsfaðir hennar fyrir 35 árum var orðinn 16 ára þegar ástarsamband þeirra hófst og Ásta Lóa var ekki í neinum skilningi í trúnaðarstöðu gagnvart honum. Fréttaflutningur Morgunblaðsins hafi byggst á rangfærslum sem blaðið hefur ekki leiðrétt þrátt fyrir betri vitund

Orðið á götunni er að gagnrýni Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, á Ásthildi Lóu og Kristrúnu Frostadóttur byggi á rangfærslum Morgunblaðsins og séu ámátleg tilraun til að fella pólitískar keilur. Guðrún fyrirgefur Ásthildi Lóu seint fyrir að hrifsa fyrsta þingsæti Suðurkjördæmis í þingkosningunum 30. nóvember sl.

Orðið á götunni er að allt tal fjölmiðla og andstæðinga ríkisstjórnarinnar um hugsanlega afsögn Ásthildar Lóu af þingi byggist á illkvittni og draumórum. Fráleitt sé að manneskja sem ekkert hefur af sér brotið annað en að hafa Sjálfstæðisflokkinn undir í Suðurkjördæmi þurfi að segja af sér þingmennsku. Hún hafi þegar axlað meiri ábyrgð en þörf sé á með því að afsala sér ráðherrastól.

Orðið á götunni er að mörgum æruverðugum Sjálfstæðismönnum blöskri framganga formanns flokksins og málgagnsins. Þá er einnig haft á orði að allt í einu hafi „alheilögum“ og „syndlausum“ andstæðingum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur fjölgað ótrúlega mikið og margir mættu minnast orða Krists: Sá ykkar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar ósáttur við þaulsætni Rósu í stjórnum og nefndum – „Algjör hagsmunaárekstur og trúnaðarbrestur“

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar ósáttur við þaulsætni Rósu í stjórnum og nefndum – „Algjör hagsmunaárekstur og trúnaðarbrestur“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Runólfur Ólafsson: Ríkisfjármögnun getur lækkað kostnað um 30-40 prósent – erum allt of mikið í „þetta reddast“

Runólfur Ólafsson: Ríkisfjármögnun getur lækkað kostnað um 30-40 prósent – erum allt of mikið í „þetta reddast“