fbpx
Laugardagur 22.mars 2025
Eyjan

Heiða Björg Hilmisdóttir: Þurfum hraðari uppbyggingu – lítið gerðist í tíð Einars sem borgarstjóra

Eyjan
Föstudaginn 21. mars 2025 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tíð Einars Þorsteinssonar sem borgarstjóra var margt látið sitja á hakanum sem mikilvægt hefði verið að framkvæma. Þetta voru fulltrúar Samfylkingarinnar í borgarstjórn ósáttir við. Rekstur borgarinnar gengur samt ekki bara út á hagtölur og peninga. Borgarfulltrúar fá lýðræðislegt umboð til að vinna að ákveðnum samfélagsbreytingum og halda vörð um gildi. Samfylkingin er mun hamingjusamari í núverandi meirihlutasamstarfi í borginni en fyrrverandi meirihluta undir stjórn Einars. Heiða Björg Hilmisdóttir, nýr borgarstjóri Reykvíkinga, er viðmælandi Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Eyjan - Heiða Björg - 1
play-sharp-fill

Eyjan - Heiða Björg - 1

„Auðvitað er kjörtímabil í sjálfu sér ekki langt, það er fjögur ár þannig að eitt og hálft er er svo sem ágætis tími af því, en það hefði verið gott að hafa lengri tíma, ég segi það ekki, og við þurfum bara að vinna að því að vinna traust kjósenda til þess að geta verið lengur og klárað stærri og meiri verkefni,“ segir Heiða Björg.

Hún segir að á þessu kjörtímabili hafi verið minni áhersla á félagslega innviði, fólkið í borginni og líðan þess og fulltrúar nýja meirihlutans í borginni hafi ekki verið sátt við það. „Í rauninni áttar maður sig kannski frekar á því eftir á, eftir að Einar sleit þessum meirihluta, að við vorum ekki að gera margt sem er mikilvægt og það er í rauninni það sem við viljum fara yfir núna með fólkinu í borginni; hvernig getum við betur tekið utan um samfélagið því ég held að það sjái allir að það er ekki að þróast í rétta átt núna ef við horfum sérstaklega á unglinga og ungmennamenningu. Þar berum við ábyrgð og við þurfum að stíga inn, við þurfum að veita …“

Þið eruð nærsamfélagið, sveitarstjórnirnar, þið eruð nærsamfélagið.

„Já, við erum nærsamfélagið og við getum ekki verið að horfa alltaf á hagtölur og fjármálin, við þurfum að horfa líka á fólkið og þess vegna erum við kosin af því að ef stjórnmálin væru bara um rekstur þá þyrfti ekki lýðræðislegt umboð til stjórnenda …“

Þá þyrfti bara að fá einhverja ráðningarskrifstofu til að finna hæfan rekstrarmann …

„Já, þá væri það þannig. Við erum auðvitað kosin af fólkinu til þess að vinna að ákveðnum samfélagsbreytingum; að hér séu ákveðin gildi. Það var bara mjög gaman þegar við settumst niður, þessar fimm oddvitar í þessum nýja meirihluta. Við ákváðum að kalla okkur samstarfsflokkana Af því að við bara fundum svo mikinn samhljóm í þessu, í þessum málum, í rauninni að reyna að finna einhverjar nýjar leiðir til þess að hraða uppbyggingu húsnæðis. Með verkalýðshreyfingunni, sem núna er komin reynsla á einmitt af því að Reykjavíkurborg, já, steig inn í það á sínum tíma af miklum myndarbrag þegar Dagur B. Eggertsson var borgarstjóri og við höfum náttúrulega úthlutað mikið af lóðum til Bjargs og við erum komin með góða reynslu af því að vinna með þeim og fleiri óhagnaðardrifnum aðilum.“

Heiða Björg segir að hlutirnir þurfi hins vegar að gerast hraðar. Við erum að leita leiða til þess að gera það og við erum líka búin að hefja, já, samtal við ríkisstjórnina eða þennan húsnæðishóp sem er á vegum hennar, hvort við getum við getum verið með hraðari uppbyggingu á ónotuðum ríkislóðum innan borgarinnar, mögulega tímabundið húsnæði sem gæti verið fyrir ungt fólk. Þetta er svona það sem að við finnum. Þetta eru náttúrulega grundvallarmannréttindi.“

Þetta tónar dálítið við hljóðið sem heyrist frá ríkisstjórninni.

„Já, mjög mikið, og auðvitað hjálpaði það til að Flokkur fólksins og Samfylkingin starfa saman í ríkisstjórn. Það er ekki spurning og það er mikið af málum þar og við eigum mjög margt sameiginlegt, þessir flokkar, stefnulega séð og síðan erum við auðvitað með Sósíalista og Vinstri græna sem eru vinstra megin við okkur, en það er líka alltaf gott að horfa út í vinstri, og svo erum við með Píratana sem eru kannski já frjálslyndari og mér finnst bara það er góð breidd í þessu.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar ósáttur við þaulsætni Rósu í stjórnum og nefndum – „Algjör hagsmunaárekstur og trúnaðarbrestur“

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar ósáttur við þaulsætni Rósu í stjórnum og nefndum – „Algjör hagsmunaárekstur og trúnaðarbrestur“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Runólfur Ólafsson: Ríkisfjármögnun getur lækkað kostnað um 30-40 prósent – erum allt of mikið í „þetta reddast“

Runólfur Ólafsson: Ríkisfjármögnun getur lækkað kostnað um 30-40 prósent – erum allt of mikið í „þetta reddast“
Hide picture