fbpx
Mánudagur 03.febrúar 2025
Eyjan

Gunnar Dan Wiium skrifar: Við erum ekki ein og höfum ekki verið það lengi

Eyjan
Mánudaginn 3. febrúar 2025 15:01

Gunnar Dan Wiium.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðsend grein eftir Gunnar Dan Wiium:

Í síðustu viku hringdi vinkona mín í mig með athyglisverða sögu. Hún sagðist hafa verið í afmæli og hitt fyrir mann sem talaði ekki um annað en UFO. Afmælið var hins vegar ekkert venjulegt afmæli. Það var forseti ónefnds lands sem átti afmæli og stóð það yfir í heila 3 daga í miklum lúxus út í miðri eyðimörk.

Þessi UFO glaði sessunautur vinkonu minnar var fyrrum háttsettur starfsmaður öryggismála bandarísks lofthelgis og því vel tengdur. Á meðan á afmælinu stóð fékk hann símtal frá fyrrum kollega sem starfar í dag í ráðgjafaráði fyrir Donald Trump og eftir símtalið veðraðist vinurinn allur upp og sagði vinkonu minni enn eina söguna. Hann hélt því fram að á þessu ári muni á bilinu 7-800 uppljóstrar stíga fram í málaflokk UAP og NHI. Fyrir þau ykkar sem vita ekki hvað þessar skammstafanir standa fyrir stendur UAP fyrir „unidentified anomalous phenomenon“ og NHI fyrir „non-human intelligence.“

Í lok viðtals við fyrsta uppljóstrara ársins, Jake Barber, segir hann að viss klofningur sé í gangi þessa dagana innan djúpríkisherdeilda sem sérhæfa sig í „crash retrieval“ og „reverse back engineering“  á UAP.  Hann segir þessa einstaklinga vera á hlaupum inn í ljósið því það er farið að þrengja að hvað varðar uppgjör og opinberun.

Þessi starfsemi sem um ræðir er nefnilega ekki bara þess eðlis að þjóðaröryggis sé gætt heldur eiga líka miklir eiginhagsmunir, siðblinda, lögleysa og ofbeldi þar í hlut.

Einkarekin stór-fyrirtæki eins og Boeing, Lockheed Martin/ Skunk Works og Rathyon hafa unnið sem verktakar fyrir bandaríska ríkið í áratugi og samkvæmt þeim uppljóstrurum sem stigið hafa fram eru það þeir sem halda á spilunum og taka við þeim trilljónunum dollara sem hafa horfið úr vösum skattgreiðanda vestanhafs í óregluvæddan og eftirlitslausan djúpríkis iðnað vopna og orku í áratugi.

Það sem af er að þessu ári hafa um 10 uppljóstrar stigið fram með hreint alveg ótrúlegar frásagnir sem allar stemma við hvor aðra og staðfesta frásagnir sem áður hafa borist í gegnum árin. Ber að nefna frásagnir af flygildum sem búa yfir sköpun and-segulafls sem kallar á endurskilgreiningu á hugtakinu „ferðalag.“

Stærstu meginstraums fjölmiðlarnir hafa ekkert fjallað um það sem er að gerast og virðist það vera visvítandi þó svo að forsendurnar séu óljósar þrátt fyrir ótal samsæriskenningar. Í síðustu viku kom loks yfirlýsing frá talsmanneskju Trump að skýring væri loks komin varðandi þessa hrinu óútskýrðra dróna á New Jersey svæðinu og hún hljóðaði upp á að FAA (Federal Aviation Administration) hefði gefið leyfi á alla þessa drónaumferð.

Og að „drónarnir“ væru þeirra eigin og hafi verið  í rannsóknartilgangi.

Íbúar New Jersey, lögreglufulltrúar, ásamt hinum og þessum bæjar og borgarstjórum eru öskuíllir yfir þessum viðbrögðum, því fram að þessu hefur engin gengist við að vita nokkurn skapaðan hlut um hvað væri í gangi, sama hvað gengið var á hinar og þessar stofnanir og hve miklum fjármunum var varið í allskonar löggæslu og rannsóknir þessu tengt fyrir opinberu fé. Einnig segir fólk og þar að meðal margir opinberir starfsmenn að þeim þyki þetta undarlegt því hefðbundnir drónar skipta sér ekki í margar einingar í lofti, hverfa og birtast annars staðar nánast samstundis og glóa eins og litríkir orkuhnettir á himni svo eitthvað sé nefnt.

Það er augljóst að þetta er allt mjög dularfullt og maður þarf ekki einu sinni að vera með álhatt til að sjá það kristalskýrt. Ég vill meina að það sé aðeins spurning um tíma, vikur eða mánuði þar til einhver narratíva verður kynnt fyrir almenning sem mun velta allri okkar heimsmynd.

Spurningin er hins vegar hverjar raunverulegar forsendur þessarar narratífu er. Verður okkur sögð saga sem felur í sér bjartari framtíð eða er „djúpríkið“ loksins að nota loka trompið til þess eins að halda sýningunni gangandi með því að framkalla enn meiri ótta og klofning í garð ímyndaðra óvina, eins og svo oft áður nema í þessu tilfelli óvina handan okkar heims.

Höfundur: Gunnar Dan Wiium, starfar sem verslunarstjóri Handverkshússins, þáttarstjórnandi hlaðvarps Þvottahússins og umboðsmaður:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigríður Andersen: Stjórnmálin snúast orðið um skráningar og að haka í box – atvinnulífið fer ekki varhluta af því

Sigríður Andersen: Stjórnmálin snúast orðið um skráningar og að haka í box – atvinnulífið fer ekki varhluta af því
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Flosi ætlar í formanninn: „Við þurfum að vera stöðugt á varðbergi“

Flosi ætlar í formanninn: „Við þurfum að vera stöðugt á varðbergi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tilveruréttur fólks er ekki skoðun

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tilveruréttur fólks er ekki skoðun
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Sanngirnismál að sjálfstæðismenn fái áfallahjálp – lífsleikninámskeið til að takast á við nýjan veruleika

Svarthöfði skrifar: Sanngirnismál að sjálfstæðismenn fái áfallahjálp – lífsleikninámskeið til að takast á við nýjan veruleika
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sjálfstæðisflokkurinn sagður kasta grjóti úr glerhúsi – Þáði sjálfur 167 milljónir í styrk áður en skráningu var breytt

Sjálfstæðisflokkurinn sagður kasta grjóti úr glerhúsi – Þáði sjálfur 167 milljónir í styrk áður en skráningu var breytt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir auðlindir landsins hafa verið gefnar á silfurfati og fyrirtækjum sparaðir 85 milljarðar með dularfullri frestun – „Vegleg gjöf“

Segir auðlindir landsins hafa verið gefnar á silfurfati og fyrirtækjum sparaðir 85 milljarðar með dularfullri frestun – „Vegleg gjöf“