fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
Eyjan

Stóra herbergjamálið á Alþingi – Sjálfstæðisflokkurinn hótar setuverkfalli en hvað segja reglurnar?

Eyjan
Fimmtudaginn 30. janúar 2025 12:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjálfstæðisflokkurinn hefur hótað setuverkfalli verði gerð tilraun til að bera flokkinn út úr þingflokksherbergi sínu, en Samfylkingin er sögð hafa gert kröfu um herbergið þar sem flokkurinn er nú sá stærsti á Alþingi.

Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks segir kröfuna fáránlega enda hafi herbergið sögulegt og tilfinningalegt gildi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hildur segir í samtali við Vísi að engar forsendur réttlæti það að flokknum verði gert að víkja. Flokkurinn hafi notað sama herbergið frá árinu 1941. Hún segist hafa sagt þingflokki sínum í tvígang að tilraun verði gerð til að gefa Samfylkingunni herbergið muni þingmenn Sjálfstæðisflokks skipuleggja setuverkfall. Hildur bendir á að samkvæmt reglum þingsins skuli flokki aðeins gert að víkja fyrir öðrum þegar nauðsyn krefur. Samfylkingin er með 15 þingmenn og Sjálfstæðisflokkurinn 14, einn aukaþingmaður þýði varla að Samfylkingin þurfi nauðsynlega stærsta herbergið. Þó er ljóst að Samfylkingin mun þurfa stærra herbergi enda bætti flokkurinn við sig 9 þingmönnum í kosningunum. Þá er spurningin hvort það sé ekki eðlilegt að Samfylkingin fari fram á að fá stærsta herbergið fremur en að krefjast þess að fá næst stærsta herbergið.

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, segir í samtali við Vísi óbilgirni Sjálfstæðismanna koma flatt upp á sig. „Það kemur svolítið á óvart að fólk upplifi að það eigi fundaraðstöðu í opinberum byggingum. Ég kannast ekki við að fólk telji sig geta haft eignarhald á slíku.“

Háttvirtur þingmaður

Um þingflokksherbergi er fjallað í handbók um þingstörfin, Háttvirtur þingmaður 2024. Þar segir:

„Hver þingflokkur hefur þingflokksherbergi í Smiðju og Alþingishúsi eða Skála, ef þess er kostur, samkvæmt reglum sem samþykktar voru á fundi forsætisnefndar 17. ágúst 2016.

Þingflokksherbergin eru miðuð við stærð þingflokka. Miðað er við að gerðar séu breytingar eftir hverjar alþingiskosningar sem eru nauðsynlegar og leiða af stærð þingflokka þannig að hver þingflokkur fái rými sem nægi honum að lágmarki til fundarhalda. Almennt skal stefnt að því að þingflokkur haldi þingflokksherbergjum sínum nema nauðsyn annarra og stærri þingflokka kalli á breytingar.“

Áður deilt um herbergi

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem deilur koma upp vegna þingflokksherbergja þegar flokkar hafa bætt við sig þingmönnum milli kosninga, en hefur þá einkum komið til átaka annarra flokka við Framsóknarflokkinn. Árið 2016 höfðu Píratar bætt við sig mörgum þingmönnum og vildu fá svokallað grænt herbergi, en það herbergi hafði áður tilheyrt Framsóknarmönnum. Vinstri græn gerðu kröfu um sama herbergi enda hafði flokkurinn áður haldið sig í gula herberginu sem þótti þá nokkuð þröngt. Árið 2009 varð gerð krafa um að Framsókn léti Vinstri grænum eftir græna herbergið, enda þeirra eigið herbergið þá orðið of lítið. Birgitta Jónsdóttir, þáverandi þingflokksmaður Borgarahreyfingarinnar, sagði af því tilefni við fjölmiðla að tvær blokkir hefðu til þessa fengið sínu framgengt á Alþingi en nú þyrftu Framsóknarmenn að horfast í augu við breytta tíma. Nýta ætti þingflokksherbergi út frá stærð þingflokka en ekki út frá ímynduðu eignarhaldi stjórnmálaflokka.

Herbergið endurheimti Framsókn í kosningunum 2013 en þáverandi skrifstofustjóri Alþingis, Helgi Bernódusson, tók þá fram í samtali við Morgunblaðið að val á þingflokksherbergjum ráðist af stærð þingflokka, miðað við fylgi. Þannig fái stærsti flokkurinn stærsta herbergið og síðan koll af kolli. „Þetta er regla sem sett var hér fyrir nokkrum árum. Við erum heldur ekki að færa til þingflokka nema þörf sé á því, eins og gerðist 2009 þegar þingflokksherbergi VG varð of lítið. Núna er óhjákvæmilegt að gera breytingu þar sem herbergið sem Framsóknarmenn hafa haft er of lítið fyrir þá.“

Það má horfa enn lengra aftur en í maí árið 1999 lýsti Guðni Ágústsson því yfir í fjölmiðlum að Framsóknarflokkurinn ætlaði sér ekki að víkja úr þingflokksherbergi sínu að kröfu Samfylkingarinnar. Sighvatur Björgvinsson, þáverandi þingmaður Samfylkingar, sagði aftur á móti að enginn flokkur eigi herbergi. Það sé hlutverk Alþingis að úthluta vinnuaðstöðu.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur frá upphafi haft til afnota stærsta þingflokksherbergið, sem líklega mætti kalla bláa herbergið fremur en Sjálfstæðisherbergið þar sem ekkert útilokar að flokkurinn neyðist til að víkja þaðan fyrr eða síðar. Samfylkingin þarf stærra herbergi og miðað við það sem að ofan er rekið er ekki óeðlileg krafa að sækjast eftir stærsta herberginu sem stærsti flokkurinn á Alþingi. Handbók þingmanna segir að herbergjum sé úthlutað eftir stærð flokka, en að þó eigi ekki að hrófla við skipaninni nema nauðsyn krefji. Hér er nauðsyn – Samfylkingin þarf stærra herbergi. Samkvæmt reglunum ætti flokkurinn því að fá stærsta herbergið. Sjálfstæðisflokkurinn virðist þó túlka reglurnar svo að Samfylkingin þurfi ekki nauðsynlega stærsta herbergið – flokknum nægi næststærsta herbergið og eigi að gera sér það að góðu út af venjuhelguðu eignarhaldi Sjálfstæðismanna á sínu flokksherbergi. Það þýddi þó lítið fyrir Framsókn að malda í móinn árið 2009.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Ísland mætir Færeyjum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Inga Sæland: Stórkostleg kjarabót öryrkja – allt tal um „svikin loforð“ er kjánaskapur og röfl!

Inga Sæland: Stórkostleg kjarabót öryrkja – allt tal um „svikin loforð“ er kjánaskapur og röfl!
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Sögulegt tækifæri, sem verður að grípa

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Sögulegt tækifæri, sem verður að grípa
Eyjan
Fyrir 1 viku

Helga Vala segir stórri spurningu ósvarað hvað varðar styrkjamál Flokks fólksins – „Er það ekki ögn sérstakt?“

Helga Vala segir stórri spurningu ósvarað hvað varðar styrkjamál Flokks fólksins – „Er það ekki ögn sérstakt?“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Wolt í samstarf við Domino´s

Wolt í samstarf við Domino´s