fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
EyjanFastir pennar

Svarthöfði skrifar: Sanngirnismál að sjálfstæðismenn fái áfallahjálp – lífsleikninámskeið til að takast á við nýjan veruleika

Svarthöfði
Miðvikudaginn 29. janúar 2025 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svarthöfði hefur áhyggjur af Sjálfstæðisflokknum, já og Morgunblaðinu líka. Hallast hann helst að því að nauðsynlegt reynist að veita þingmönnum og fyrrverandi ráðherrum flokksins áfallahjálp vegna þess hve þungt breytt staða leggst bersýnilega á þetta fólk.

Vitaskuld hefur Svarthöfði fullan skilning á því að það hlýtur að vera óbærilegt áfall að vakna einn góðan veðurdag upp við það að allt er farið, allt horfið sem gaf lífinu gildi. Völdin farin, aðstoðarmennirnir gufaðir upp, enginn ritari til að sinna manni allan liðlangan daginn, hvort heldur sem er til að ná í fólk í síma eða sækja kaffi og með því. Meira að segja ráðherrabíllinn er ekki lengur til staðar, enginn ráðherrabílstjóri á vakt allan sólarhringinn. Það er varla að þetta vesalings fólk fái boð í opnun myndlistarsýninga lengur. Enginn hringir í það vegna þess að það hefur engin völd lengur. Þetta er áfall.

Fólk bregst samt misjafnlega við áföllum og sjálfstæðismenn hafa tekið þetta alveg óskaplega mikið inn á sig. Birtist þetta í því að þeir geta ekki hamið bræði sína og gremju yfir því að skipta allt í einu engu máli, vera bara valdalaus peð, og því ráðast þeir nú allt hvað af tekur á ríkisstjórnina og ráðherra hennar. Árásirnar á Ingu Sæland og Flokk fólksins eru til að mynda mjög gott dæmi um andstyggilegt einelti.

Jafnvel prúðasta fólk missir sig. Forsætisráðherra sá sér ekki fært að þiggja fundarboð frá forsætisráðherra Danmerkur sem barst með nokkurra klukkustunda fyrirvara og þá sprettur fram fallinn utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sem jafnan er kurteis og varkár í yfirlýsingum, og sakar forsætisráðherra um að „skrópa“ í vinnunni. Svona málflutningur er fyrrverandi utanríkisráðherra til minnkunar.

Svarthöfði veltir því fyrir sér hvernig forsætisráðherra hefði átt að komast til fundar í kóngsins Kaupinhöfn með svo skömmum fyrirvara? Eitthvað hefðu nú sjálfstæðismenn og Mogginn sagt ef leigð hefði verið einkaþota undir íslenska forsætisráðherrann.

Auk þess áttar Svarthöfði sig á því að verkefnin eru ærin hér heima fyrir forsætisráðherra sem tekur við þannig búi eftir óstjórn Sjálfstæðisflokksins undanfarin sjö ár að verkefnið minnir á rústabjörgun. Fyrrverandi utanríkisráðherra hefði kannski mátt eyða meiri tíma hér á Íslandi, jafnvel í kjördæminu sínu, í stað þess að flandra út um allar mögulegar og ómögulegar trissur í „embættiserindum“. Þá hefði Þórdís Kolbrún e.t.v. ekki þurft að flýja sitt gamla kjördæmi og leita ásjár í kjördæmi formannsins. Hugsanlega væri hún ekki óbreyttur og valdalaus þingmaður í stjórnarandstöðu eins og nú stefnir í.

Þá telur Svarthöfði að betur hefði farið á því hjá sjálfstæðismönnum og skrímsladeild flokksins í Hádegismóum að telja upp á 100, eða bara 86, áður en lagt var í herferðina gegn Ingu Sæland og Flokki fólksins vegna formsatriða varðandi skráningu í firmaskrá. Sú árás breyttist snarlega í bjúgverpil sem kom rakleitt aftur beint framan í skrímslin þegar upplýst var að Sjálfstæðisflokkurinn hafði gert sig „sekan“ um nákvæmlega það sem skrímslin sögðu hryllilegan glæp hjá Flokki fólksins. Það er svo sem ekkert nýtt að sjálfstæðismenn telji sig hafna yfir þær reglur sem þeir ætla öðrum að fara eftir.

Svarthöfði er á því að sjálfsagt sé og sanngjarnt að sjálfstæðismenn fái áfallahjálp til að vinna úr því mikla áfalli sem fylgir því að verða allt í einu valdalausir. Eftir fyrstu áfallahjálp er síðan mikilvægt að þeir fari í gegnum vandað lífsleikninámskeið og læri að takast á við þennan nýja veruleika sem þeir standa frammi fyrir. Það er nefnilega fátt sem bendir til þess nú að staða þeirra breytist mikið, að minnsta kosti ekki til batnaðar, og Svarthöfði má sem kunnugt er ekkert aumt sjá án þess að finna til djúprar meðaumkunar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Markaðslaun fyrir kennara – hví ekki markaðskjör?

Svarthöfði skrifar: Markaðslaun fyrir kennara – hví ekki markaðskjör?
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Thomas Möller skrifar: Búðu þig undir ESB kosningar

Thomas Möller skrifar: Búðu þig undir ESB kosningar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Vestræn gildi andspænis lögmáli frumskógarins

Þorsteinn Pálsson skrifar: Vestræn gildi andspænis lögmáli frumskógarins
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar: Þankar um aga og uppeldi

Björn Jón skrifar: Þankar um aga og uppeldi
EyjanFastir pennar
23.12.2024

Orðið á götunni: Meiri músikk – minna mas!

Orðið á götunni: Meiri músikk – minna mas!
EyjanFastir pennar
22.12.2024

Björn Jón skrifar: Að festast í gíslingu ofstækisfólks

Björn Jón skrifar: Að festast í gíslingu ofstækisfólks