fbpx
Fimmtudagur 30.janúar 2025
EyjanFastir pennar

Svarthöfði skrifar: Tilvistarkreppa sjálfstæðismanna – ráðast á Flokk fólksins

Svarthöfði
Þriðjudaginn 28. janúar 2025 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin. Svarthöfði hefur lengi fylgst með pólitíkinni og átti svo sannarlega von á því að Sjálfstæðisflokkurinn og aðrir málaliðar stórútgerðarinnar og fjármagnsins á Íslandi myndu svífast einskis í því að reyna að grafa undan trúverðugleika nýrrar ríkisstjórnar. Verður þó að viðurkennast að atlagan kemur fyrr og er ósvífnari en jafnvel reynsluboltinn Svarthöfði hafði reiknað með.

Nýrri ríkisstjórn hefur verið vel tekið, enda var fólk orðið þreytt á ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna, sem gerði fátt annað en safna skuldum og búa til orkuskort í landinu. Á sjö árum bættist ekki við eitt megavatt af orku og fyrir vikið missir þjóðin af nýrri tekjuöflun á hverjum einasta degi. Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar og Katrínar Jakobsdóttur var fátæktarstjórn almennings sem hlóð undir sægreifa og fjármagnið í landinu. Engin eftirsjá er að henni.

Morgunblaðið sá sóma sinn í því að kalla eftir því að Flokkur fólksins yrði sviptur ríkisstuðningi við stjórnmálaflokka og gert að endurgreiða stuðning nokkur ár aftur í tímann vegna þess formsatriðis að flokkurinn er skráður sem félagasamtök en ekki stjórnmálaflokkur. Vel að merkja þá fékk Flokkur fólksins 6,9 prósent atkvæða og fjóra þingmenn í kosningunum 2017. Árið 2021 fór fylgið upp í 8,8 prósent og þingmennirnir urðu sex. Í nóvember fékk flokkurinn svo 13,8 prósent og þingmennirnir eru tíu. Engum nema Morgunblaðinu og veruleikafirrtum formannsframbjóðendum í Sjálfstæðisflokknum dettur í hug að afneita því að Flokkur fólksins sé stjórnmálaflokkur.

Það kætti Svarthöfða mjög þegar í ljós kom að Sjálfstæðisflokkurinn, sem segist vera sá stjórnmálaflokkur sem sé kjölfestan í íslenskum stjórnmálum, var víst ekki stjórnmálaflokkur fyrr en fyrir tveimur eða þremur árum. Þáði hann styrki sem stjórnmálaflokkur áður en hann uppfyllti skilyrðin sem slíkur. Væntanlega þarf þá Valhöll að punga út 167 milljónum – plús dráttarvexti – af ofurgróða sínum við þéttingu byggðar á Valhallarreitnum til að endurgreiða þá oftöku á almannafé, verði öðrum flokkum gert að endurgreiða sína styrki. Þá má setja stórt spurningarmerki við lögmæti þess að flokkur, sem ekki var stjórnmálaflokkur, skyldi þiggja milljónatugi (sennilega hundruð milljóna á núverandi verðlagi) frá Landsbankanum og FL-Group fyrir hrun.

Svarthöfði er hins vegar ekki það barn að halda að Sjálfstæðisflokkurinn hafi fyrst orðið stjórnmálaflokkur árið 2023. Hann hefur verið það allar götur síðan 1929, þegar hann var stofnaður. Rétt eins og Flokkur fólksins hefur verið stjórnmálaflokkur allt frá stofnun, hvað sem líður einhverri skráningu í firmaskrá.

Svarthöfði er andvígur því að ríkið styrki og í raun fjármagni stjórnmálaflokka. Hann telur það andlýðræðislegt og best færi á því að flokkarnir sæju sjálfir um sína fjármögnun. Þá næðu þeir mögulega einhverju sambandi við kjósendur sína, nokkuð sem virðist fjarlæg fortíð hjá Sjálfstæðisflokknum.

Svarthöfði er hins vegar mjög meðvitaður um að lögin um styrk til stjórnmálaflokka voru sett til að styðja við starfandi stjórnmálaflokka og koma t.d. í veg fyrir að flokkar, sem vinna að hagsmunum öflugra sérhagsmunaafla, yrðu ríkjandi á kostnað hinna sem vinna að hagsmunum almennings. Allir stjórnmálaflokkar skila ársreikningum sínum til Ríkisendurskoðunar, líka þeir sem skráðir eru sem félagasamtök. Það var ekki andi laganna að klekkja á flokkum sem raunverulega eru stjórnmálaflokkar og sækja raunverulegt fylgi til kjósenda. En sjálfstæðismenn vilja ugglaust klekkja á flokknum sem rak þá úr ríkisstjórn og stefnir í að verða stærri en Sjálfstæðisflokkurinn í næstu kosningum.

Svo mætti íhuga þá staðreynd að greiðsla styrks er tvíþætt athöfn. Annars vegar afhending hans og hins vegar móttaka. Það er umhugsunarefni að þegar Sjálfstæðisflokkurinn uppfyllti ekki áðurnefnd skilyrði þá var það Bjarni Benediktsson sem greiddi út styrkinn fyrir hönd ríkissjóðs. Sami maður tók síðan á móti styrknum fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, flokksins sem er nú í alvarlegri tilvistarkreppu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Thomas Möller skrifar: Búðu þig undir ESB kosningar

Thomas Möller skrifar: Búðu þig undir ESB kosningar
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Grænland er land framtíðarinnar

Björn Jón skrifar: Grænland er land framtíðarinnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar: Þankar um aga og uppeldi

Björn Jón skrifar: Þankar um aga og uppeldi
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Pólitísk aflögun í íslenskum landsmálum

Sigmundur Ernir skrifar: Pólitísk aflögun í íslenskum landsmálum
EyjanFastir pennar
22.12.2024

Björn Jón skrifar: Að festast í gíslingu ofstækisfólks

Björn Jón skrifar: Að festast í gíslingu ofstækisfólks
EyjanFastir pennar
21.12.2024

Óttar Guðmundsson skrifar: Jólahugleiðing

Óttar Guðmundsson skrifar: Jólahugleiðing
EyjanFastir pennar
13.12.2024

Steinunn Ólína skrifar: Bríet Ísis Elfar

Steinunn Ólína skrifar: Bríet Ísis Elfar
EyjanFastir pennar
12.12.2024

Ágúst Borgþór skrifar: Saklaus maður sakaður mánuðum saman um svívirðileg kynferðisbrot

Ágúst Borgþór skrifar: Saklaus maður sakaður mánuðum saman um svívirðileg kynferðisbrot