fbpx
Mánudagur 20.janúar 2025
Eyjan

Hreinsanir halda áfram hjá Sýn – Yfir­maður aug­lýsinga­mála stígur til hliðar

Eyjan
Mánudaginn 20. janúar 2025 11:08

Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir hefur yfirgefið Sýn eins og þrjár aðrar öflugar konur á síðustu dögum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir, yfirmaður auglýsingamála Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, er hætt störfum hjá Sýn. Þetta herma öruggar heimildir DV. Kolbrún Dröfn hefur gríðarlega reynslu af sölu auglýsinga hjá fjölmiðlum. Hún starfaði í 13 ár hjá Morgunblaðinu en tók síðan við starfi sölustjóra hjá DV í nokkur ár. Eftir viðkomu hjá Billboard sem sölustjóri tók hún síðan við áðurnefndri yfirmannsstöðu hjá Sýn í ágúst 2021.

Tilkynnt var um brotthvarf Kolbrúnar Drafnar nú í morgun og er starfsfólk undrandi yfir vendingunum.

Fjórða konan sem hverfur á braut

Óhætt er að segja að gustað hafi um höfuðstöðvar Sýnar á Suðurlandsbraut undanfarnar vikur en Kolbrún Dröfn er fjórða öfluga konan sem hættir hjá fyrirtækinu. Fyrst var greint frá því að Eva Georgs Ásudóttir væri hætt sem sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 eftir tæplega tveggja áratuga starf og stuttu síðar að náin samstarfskona hennar, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, ein þekktasta sjónvarpskona stöðvarinnar hefði sömuleiðis ákveðið að segja skilið við starf sitt sem dagskrárgerðarmaður.

Sjá einnig: Hvað er í gangi hjá Sýn? Þriðja kanónan yfirgefur Suðurlandsbrautina

Nokkrum dögum síðan var greint frá því að Þóra Björg Clausen hefði sagt upp störfum sem dagskrárstjóri Stöðvar 2 eftir tíu ára starf.

Reyndi að slá á ólguna með bréfi og fundarhöldum

Brotthvarf þessara öflugu kvenna hefur valdið miklum titringi innan fjölmiðlahluta Sýnar og hefur starfsfólk óttast að þær séu undanfari stórra breytinga, eins og til að mynda lokun fréttastofu Stöðvar 2. Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, brást í síðustu viku við ólgunni með því að skrifa bréf til starfsmanna og funda með þeim þar sem línurnar voru lagðar og slíkar hugmyndir slegnar að mestu út af borðinu.

Sjá einnig: Forstjórinn reynir að slá á ólguna innan Sýnar með bréfi til starfsmanna – „Engin umræða hefur átt sér stað í minni tíð um lokun fréttastofu Stöðvar 2“

Sagði hún útilokað að þekkt vörumerki eins og Bylgjan, Vísir, FM957 og fleiri myndu hverfa af sjónarsviðinu en sagði að frekari skoðun stæði yfir varðandi vörumerkin Vodafone og Stöð 2. Ekki væri tímabært að ræða hvort einhverjar breytingar yrðu á þeim.

Þá hefur verið hvískrað um að staða Herdísar sjálfrar í forstjórastóli sé veik en hlutabréf félagsins hafa hrunið í verði og tiltrú fjárfesta á fyrirtækinu lítil.

Uppfært: Tvær öflugar hættu hjá Vodafone í fyrra

Mbl tekur upp frétt DV og bætir við að nýlega hafi tvær konur hætt störfum sem yfirmenn hjá Vodafone. Sessel­ía Birg­is­dótt­ir, sem var fram­kvæmda­stjóri fjar­skipta hjá Voda­fo­ne, lét af störfum í ágúst í fyrra. Hún var ráðin 5. janúar 2023 sem framkvæmdastjóri sölu-, þjónustu- og markaðsmála Vodafone. Sesselía sat í stjórn Sýnar hf. frá mars 2022 og vék úr stjórn við ráðninguna.

Krist­ín Friðgeirs­dótt­ir sem ráðin var sem fjár­mála­stjóri Sýn­ar hf. í júní árið 2021 lét af störfum um mánaðamótin febrúar/mars 2024.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Þórður Snær verður framkvæmdastjóri þingflokksins

Þórður Snær verður framkvæmdastjóri þingflokksins
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Þorgerður Katrín: Einfeldni í varnarmálum ekki í boði – þurfum að rækta sambandið við Bandaríkin

Þorgerður Katrín: Einfeldni í varnarmálum ekki í boði – þurfum að rækta sambandið við Bandaríkin
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Tímamóta-Dagur þakkar fyrir sig – „Og angurværi gaurinn – ég – til hægri, þakkar fyrir sig!“

Tímamóta-Dagur þakkar fyrir sig – „Og angurværi gaurinn – ég – til hægri, þakkar fyrir sig!“
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Mikilvægi faglegrar erlendrar úttektar á gjaldmiðlamálum

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Mikilvægi faglegrar erlendrar úttektar á gjaldmiðlamálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Búðu þig undir ESB kosningar

Thomas Möller skrifar: Búðu þig undir ESB kosningar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Katrín tekur við stjórnarformennsku af efnahags- og fjármálaráðherra

Katrín tekur við stjórnarformennsku af efnahags- og fjármálaráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir óvíst að Kristrúnu takist að halda Degi úti í horni til lengdar

Segir óvíst að Kristrúnu takist að halda Degi úti í horni til lengdar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Það má semja um aðildarskilmála að ESB – mörg dæmi sýna það og sanna

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Það má semja um aðildarskilmála að ESB – mörg dæmi sýna það og sanna