Trump var kjörinn forseti í annað sinn í kosningum þann 5. nóvember 2024 og fer embættistakan fram í dag, mánudaginn 20. janúar.
Í bréfinu fagnar Halla forseti farsælu stjórnmálasambandi ríkjanna um áratuga skeið og áréttar að sem stofnaðilar að Atlantshafsbandalaginu deili Ísland og Bandaríkin bæði sameiginlegum gildum og hagsmunum.
Sjá einnig: Mogginn hnýtir í Höllu forseta – „Kurteisi kostar ekkert“
„Við Íslendingar metum mikils vináttu okkar við Bandaríkjamenn og sívaxandi gagnkvæm tengsl, meðal annars á sviði viðskipta, menntunar, menningar og ferðaþjónustu,“ segir í bréfinu.
Forseti vekur máls á því að Ísland njóti þeirrar gæfu að teljast friðsælasta land heims og vilji beita sínum áhrifum til góðra verka.
Sjá einnig: Höllu ekki boðið á innsetningu Trumps
Þá minnist forseti leiðtogafundarins í Höfða þegar Ísland varð vettvangur sögulegra viðræðna milli Ronalds Reagans og Mikaíls Gorbatsjovs í tilraun þeirra til að binda enda á kalda stríðið.
Enn sé ákall eftir friði í heiminum og nú sem fyrr þurfi til þess alþjóðlega skuldbindingu. Sjálf sé hún ævinlega reiðubúin að styðja við einlæga viðleitni til að stuðla að friði og réttlæti.
Að lokum segist forseti hlakka til áframhaldandi farsæls samstarfs milli þjóðanna og óskar Donald Trump velfarnaðar í embætti sem forseti Bandaríkjanna.