Óhætt er að fullyrða að fjölmiðlahluti stórfyrirtækisins Sýnar, sem Vísir, Stöð 2 og Bylgjan tilheyra til að mynda, hafi nötrað undanfarna daga í kjölfar brotthvarfs þriggja öflugra starfsmanna á síðustu dögum. Tilkynnt var í byrjun vikunnar að Þóra Björg Clausen, dagskrárstjóri Stöðvar 2 væri að stíga til hliðar, en áður hafði verið tilkynnt um starfslok Evu Georgs Ásudóttur, sjónvarpsstjóra, og Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur, sem er ein þekktasta sjónvarpskona Stöðvar 2.
Mikið hefur verið hvíslað og skrafað hvað sé í gangi á Suðurlandsbrautinni og hvort brotthvarf áðurnefndra starfsmanna væri undanfari stórra breytinga. Þannig greindi Mannlíf frá því í síðustu viku að rætt væri um að leggja niður fréttastofu Stöðvar 2 og mögulega breyta nöfnum þekktra miðla í eigu fyrirtækisins.
Herdís brást við titringnum með því að senda starfsmönnum Sýnar bréf þar sem hún þvertók fyrir slíkar fyrirætlanir. Vissulega stæði yfir ferli við að innleiða stefnumótun fyrirtækisins og mannabreytingar væru hluti af öllum breytingaferlum. Þakkaði hún þremenningunum fyrir sitt framlag til fyrirtækisins og árnaði þeim heilla í nýjum verkefnum.
Þá útilokaði hún að þekkt vörumerki eins og Bylgjan, Vísir, FM957 og fleiri myndu hverfa af sjónarsviðinu en sagði að frekari skoðun stæði yfir varðandi vörumerkin Vodafone og Stöð 2. Ekki væri tímabært að ræða hvort einhverjar breytingar yrðu á þeim.
Sælt kæra samstarfsfólk,
Í tilefni fréttaflutnings Mannlífs í dag vil ég koma á framfæri leiðréttingum og útskýringum vegna rangfærslna sem þar koma fram. Það er mikilvægt fyrir mig að þið, samstarfsfólk mitt, hafið skýrar upplýsingar og traust á því sem er í gangi innan fyrirtækisins.
Eins og þið vitið höfum við undanfarið unnið saman að stefnumótun sem tók mið af sýn ykkar allra. Um 70 manns tóku beinan þátt í þessari vinnu fyrir hönd sinna sviða og við kynntum ykkur fyrstu drög á starfsmannadeginum í nóvember. Þessi stefna byggir á metnaði okkar til að efla Sýn sem öflugt fjölmiðla- og tæknifyrirtæki.
Ég vil leggja áherslu á að engin stefnubreyting hefur átt sér stað hvað varðar rekstur vefmiðla og útvarps. Ákvörðunin sem tekin var í apríl á síðasta ári um að halda þessum eignum innan fyrirtækisins stendur óbreytt.
Einnig vil ég leiðrétta að engin umræða hefur átt sér stað í minni tíð um lokun fréttastofu Stöðvar 2 eða niðurfellingu kvöldfrétta. Slíkar hugmyndir hafa einfaldlega ekki komið til umræðu.
Varðandi vörumerkin okkar þá eru þau mörg verðmæt og vel þekkt. Hluti af stefnumótunarvinnunni er skoðun og greining á virði vörumerkja í eigu Sýnar heilt yfir.
Víðtæk greining hefur nú þegar verið unnin og m.a. tekin viðtöl við viðskiptavini og starfsmenn Sýnar. Svo að það sé alveg skýrt þá er alls ekki fyrirhugað að hætta að nota vörumerki útvarps- eða vefmiðla Sýnar og hérna á ég við Bylgjuna, Vísi, FM, já og áfram mætti telja. Okkur hefur til að mynda aldrei dottið Sýn 989 í hug í stað Bylgjunnar en þetta er fjarri lagi og bara broslegt.
Frekari skoðun á vörumerkjunum Vodafone og Stöð 2 er ekki lokið og því er ekki tímabært að ræða hvað við munum gera hvað þetta varðar. En hérna munum við hlusta á viðskiptavini félagsins sem eru jú hjartað í öllu sem við gerum.
Mannabreytingar eru hluti af öllum breytingaferlum. Því miður höfum við þurft að kveðja tvær framúrskarandi samstarfskonur, Evu Georgs og Sigrúnu Ósk, sem hafa tekið ákvörðun um að láta af störfum. Mig langar að þakka þeim báðum fyrir ómetanlegt framlag þeirra til félagsins. Þær starfa áfram með okkur næstu vikurnar, og ég óska þeim alls hins besta í framtíðinni.
Framundan eru spennandi verkefni sem ég hlakka til að vinna með ykkur að. Ég er sannfærð um að við höfum alla burði til að gera Sýn að einu öflugasta fyrirtæki landsins þar sem við erum stolt af starfi okkar og okkur líður vel. Ég er alltaf til í samtal við ykkur ef eitthvað er óljóst.