Íslenska lággjaldaflugfélagið Play hefur sent íslenskum stjórnvöldum tillögur sínar að hagræðingu í opinberum rekstrum. Tillöguna má finna í Samráðsgátt hins opinbera en þar kemur fram að flugfélagið fagni framtakinu og að einfalt sé að spara tugi milljóna króna á ári með því að endurhugsa flugmiðakaup hins opinbera.
Tillögur Play eru tvær og hljóma svo:
1) Að ríkisstofnanir kaupi alltaf ódýrasta flugmiðann fyrir starfsmenn sem ferðast til og frá Íslandi
vegna vinnu.
2) Að fjárhagslegur ávinningur af vildarpunktafríðindum vegna slíkra ferðalaga renni til ríkisins, hins
eiginlega kaupanda flugmiðanna.
Í rökstuðningi með tillögunum er bent á að Play sé yfirleitt með hagstæðari verð en Icelandair en bjóði ekki upp á vildarpunktasöfnun. Eins og alþjóð veit renna punktarnir persónulega til starfsmanna og því hafi þeir hagsmuni af því að fljúga með Icelandair og láta hið opinbera borga hærra verð fyrir miðann.
„Margar aðrar ástæður geta legið að baki því að velja eitt flugfélag umfram önnur, t.d. brottfarartími, en persónuleg söfnun starfsmanna á vildarpunktum er óeðlilegur hvati og leiðir til þess að ríkið greiðir mun hærri upphæð fyrir flugferðir opinberra starfsmanna en þörf krefur,“ segir í greinargerðinni.
Þá er dregið upp dæmi um flugferðir Alþingismanna árið 2023.
„Samkvæmt frétt Morgunblaðsins keypti Alþingi flugmiða af Icelandair fyrir 20,9 milljónir króna það árið en einungis fyrir 500 þúsund krónur af Play. Er munurinn ríflega fjörutíufaldur. Ekki er hægt að rökstyðja að verð, áfangastaðir eða flugtími Play réttlæti slíkan mun. Play flýgur til þeirra borga í Evrópu sem Alþingismenn ferðast mest til. Brottfarartímar Play til Evrópu eru að jafnaði um klukkustund fyrr á morgnanna sem ætti alls ekki að réttlæta dýrara val á flugsæti, sérstaklega ekki þegar farið er með fé skattborgara. Farmiðakaup Alþingismanna eru aðeins brot af heildarinnkaupum ríkisins á flugmiðum.“
Flugfélagið telji því ríkið geta sparað tugi milljóna með því „að hætta að greiða einkaáskrift opinberra starfsmanna að óþarflega dýru vildarkerfi.“