Griffin, sem er forstjóri Citadel, ræddi málin á Semafor World Economy Summit í Washington í síðustu viku og sagði að tollastefna Trump, með að leggja á tolla og fresta þeim síðan, sé að eyðileggja Bandaríkin sem vörumerki sem hægt sé að treysta.
„Bandaríkin voru meira en bara þjóð. Þetta er vörumerki. Þetta er heimsþekkt vörumerki, hvort sem það er menningin okkar, fjárhagslegur styrkur okkar, hernaðarmáttur okkar. Við erum að eyðileggja þetta vörumerki núna,“ sagði hann að sögn CNN.
Hann líkti þessu við það þegar neytandi kaupir vöru vegna þess að hann treystir vörumerkinu. Á fjármálamörkuðunum sé ekkert vörumerki jafn þekkt og bandaríski ríkissjóðurinn, sterkur dollarinn og lánstraust ríkissjóðs. Ekkert vörumerki komist nærri þessu en nú sé verið að stefna þessu í hættu.
Trump og stjórn hans þurfa nú að takast á við hættumerki varðandi kreppu og hagfræðingar spá alvarlegum samdrætti í hagvexti í Bandaríkjunum. Uppsagnir eru hafnar í bíla- og tækniiðnaðinum og nýlega spáði Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn samdrætti í alþjóðaviðskiptum vegna stefnu Trump. Komum erlendra ferðamanna til Bandaríkjanna hefur fækkað mikið.
En embættismenn stjórnarinnar segja að mörg erlend ríki, þar á meðal Kína, séu við það að beygja sig fyrir Bandaríkjunum og gera samning við stjórn Trump en hins vegar hafa engir slíkir samningar verið gerðir.
Meira að segja helsta bandalagsþjóð Bandaríkjanna, Kanada, hefur snúið baki við Bandaríkjunum. Mark Carney, forsætisráðherra, sagði í ræðu í mars að „gamla sambandinu við Bandaríkin sé lokið“ og að Bandaríkin séu „ekki lengur traustur bandamaður“.