fbpx
Þriðjudagur 08.apríl 2025
Eyjan

Telur sægreifana ætla að ná yfirráðum yfir Stöð 2, Vísi og Bylgjunni

Eyjan
Mánudaginn 7. apríl 2025 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sægreifarnir eru búnir að átta sig á því að Morgunblaðið og undirmiðlar þess hafa ekki sama vægi og áhrif og áður. Trúverðugleiki Morgunblaðsins er verulega laskaður. Aðeins síðasta árið hefur Morgunblaðið tapað forsetakosningum, þingkosningum, stjórnarmyndun og formannskosningu í Sjálfstæðisflokknum. Blaðið er því engan veginn jafn áhrifamikill miðill og áður var.

Í nýjum Náttfarapistli á Hringbraut skrifar Ólafur Arnarson að grunur leiki á því að sægreifar, ásamt viðskiptafélögum sínum, hyggist nú ná undir sig fjölmiðlafyrirtækinu Sýn sem m.a. á og rekur Stöð 2, Bylgjuna og Vísi.is

Morgunblaðið og tengdir miðlar eru í eigu sægreifa í Vestmannaeyjum og á Sauðárkróki sem styðja Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn. Þetta hefur öllum verið ljóst um árabil. Vitað er að útgefendur Morgunblaðsins hafa lengi haft löngun til að eignast Bylgjuna og Vísi.is en samkeppnisyfirvöld og Fjölmiðlanefnd munu aldrei samþykkja það. Það verður því að skoða aðrar leiðir og hjáleiðir til að ná völdum í Sýn sem er næststærsti fjölmiðill landsins, næst á eftir RÚV, sem er áhrifamesti fjölmiðill landsins styrktur með milljarða ríkisframlögum árlega. Það er staða sem enginn getur keppt við. Ekkert bendir til að breyting verði þar á enda hafa ríkisstjórnir sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hafa átt aðild að ekki hreyft við RÚV.“

Ólafur bendir á að Guðbjörg Matthíasdóttir og fjölskylda í Vestmannaeyjum eigi undir ýmsum nöfnum meirihluta í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, og Kaupfélag Skagfirðinga á 20 prósent hlutafjár og einn mann í stjórn félagsins. Vestmanneyingar séu taldir ráða hinum fjórum stjórnarsætunum. „Morgunblaðið hefur verið notað grímulaust í hagsmunagæslu fyrir hagsmuni eigendanna, stutt gjafakvótakerfið heilshugar og það fyrirkomulag að veiðileyfagjald væru reiknuð allt of lág árum og áratugum saman og einnig talað fyrir þungu styrkjakerfi í landbúnaði.

Hann segir Morgunblaðið hafa hamast gegn andstæðingum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar, stutt ríkisstjórnir þessara flokka og nú djöflist blaðið á móti ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Þá hafi blaðið barist gegn meirihluta borgarstjórnar allt frá því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Reykjavíkurlistinn ruddu Sjálfstæðisflokknum úr meirihluta í borginni

Á tæpu ári hafa Sjálfstæðisflokkur og Framsókn með afgerandi stuðningi Morgunblaðsins og peningaafla flokkanna tapað öllum orrustum og stríðum: Síðastliðið sumar duldist engum að þessir flokkar og málgagn þeirra studdu Katrínu Jakobsdóttur eindregið í forsetakjöri. Allir forystumenn flokkanna stóðu með henni, Morgunblaðið fór hamförum gegn mótframbjóðendum hennar og peningaöflin kostuðu langdýrustu kosningabaráttuna. Katrín tapaði samt og Halla Tómasdóttir var kjörin forseti með afgerandi hætti.

Í Alþingiskosningunum þann 30. nóvember sl. fór Morgunblaðið mikinn í stuðningi sínum við Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn og sumir starfsmenn blaðsins fengu óáreittir að sýna andstæðingum þessara flokka beinlínis dónaskap í þáttum og viðtölum. Árvakur beitti öllu afli sínu en allt kom fyrir ekki. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut verstu kosningu í sögu sinni, 19 prósenta fylgi, sem leiddi til þess að bæði formaður og varaformaður flokksins ákváðu að víkja úr embættum sínum og formaðurinn gekk svo langt að kveðja íslensk stjórnmál eftir langa baráttu. Enn verri var útreið Framsóknar sem hlaut fylgi rúmlega 7 prósenta þjóðarinnar og missti átta þingsæti og er nú fimm þingmanna smáflokkur. Meðal þeirra sem féllu af þingi voru þrír ráðherrar. Það er einsdæmi.

Þessu til viðbótar segir Ólafur Morgunblaðið hafa reynt að trufla stjórnarmyndunarviðræður Kristrúnar Frostadóttur og stundað árásir á stjórnina og þó sérstaklega Flokk fólksins á þeim rúmlega 100 dögum sem stjórnin hefur setið.

Um mánaðamótin febrúar og mars hafi svo Morgunblaðið tapað formannskjöri í Sjálfstæðisflokknum er fulltrúi sægreifanna og blaðsins, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, tapaði fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Áslaug, sem er dóttir stjórnarformanns Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, hafi fyrir fram verið talin sigurstrangleg.

Í ljósi alls þessa eru flokkseigendur og sægreifar sem mestu ráða í Sjálfstæðisflokknum að átta sig á því að Morgunblaðið og undirmiðlar þess duga ekki til að hafa þau áhrif á gang mála í samfélaginu sem þeir kysu. Framangreind dæmi sýna það. Morgunblaðið er komið með óorð á sig fyrir rangt mat á aðstæðum og oft og tíðum dónalega framkomu við menn og málefni. Þeir sem þekkja söguna segja eitthvað á þá leið að það sé af sem áður var þegar afburðamenn eins og Matthías Jóhannessen stýrðu blaðinu af festu, víðsýni og sanngirni. Það er löngu liðin tíð sem fjarlægist sífellt samhliða hnignun Morgunblaðsins. Menn eru að verða úrkula vonar um að úr þessu megi bæta með afgerandi hætti.

Ólafur segir ekkert benda til annars en að helstu eigendur Sýnar séu tilbúnir að selja hluti sína á góðu yfirverði núna en gengi þeirra hefur hríðfallið og stendur nú í um 26 eftir lækkanir síðustu daga. Fyrir tæpu ári stóðu hlutirnir í 47. Meðal stærstu eigenda er Skel, fjárfestingafélag sem Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnar.

Hann segir þær fjárhæðir sem um er að ræða ekki verða fyrirstöðu fyrir réttu sægreifana, sem verði raunar að vera einhverjir aðrir en eigendur Árvakurs þar sem samkeppnisyfirvöld myndu aldrei leyfa eigendum Morgunblaðsins að eignast Sýn.

Sjálfir hafa þeir næg fjárráð til að kaupa og styðja við stórt fjölmiðlafyrirtæki verði það til þess að efla áróður þeirra á tímum þegar ekkert gengur við að halda völdum og sótt er að gjafakvótakerfi þeirra og fleiri forréttindum í sjávarútvegi. Þá munu peningar ekki skipta þá máli.

Hann segir eftirtektarvert að Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (áður LÍÚ) skuli nú sest í stjórn Sýnar. Ekki sé vitað til þess að hún hafi reynslu af fjölmiðlum sem geti gagnast fyrirtækinu. Hún sé hins vegar með 5,5 milljónir á mánuði fyrir að gráta örlög sjávarútvegsins í tíma og ótíma. Hann spyr hverjir hafi valið hana til setu í Stjórn sýnar. „Hvaða fyrirboði er það? Hún gerir varla mikið ein í fimm manna stjórn. Er henni ætlað að stjaka við forstjóra félagsins, Herdísi Fjeldsted, eða er hún einungis að undirbúa innkomu nýrra meirihlutaeigenda sem gætu gert breytingar „til batnaðar“ á ritstjórnarstefnu miðlanna?

Hægt er að lesa Náttfara í heild hérna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Sægreifar panta skipulegar árásir úr öllum áttum á fyrirhugaða hækkun veiðileyfagjalda

Orðið á götunni: Sægreifar panta skipulegar árásir úr öllum áttum á fyrirhugaða hækkun veiðileyfagjalda
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Vill láta kjósa um ESB-viðræður strax á þessu ári – Bandaríkin hafi snúið heimsmyndinni á hvolf

Vill láta kjósa um ESB-viðræður strax á þessu ári – Bandaríkin hafi snúið heimsmyndinni á hvolf
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Logi Einarsson: Stafræna byltingin og gervigreind skapa stórkostleg tækifæri til verðmætasköpunar á Íslandi

Logi Einarsson: Stafræna byltingin og gervigreind skapa stórkostleg tækifæri til verðmætasköpunar á Íslandi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Framtíðin er björt hjá okkur, ef . . .

Thomas Möller skrifar: Framtíðin er björt hjá okkur, ef . . .
Eyjan
Fyrir 1 viku

Trump fagnaði og sagði að áætlun hans væri að ganga upp – Setja Kínverjar honum stólinn fyrir dyrnar?

Trump fagnaði og sagði að áætlun hans væri að ganga upp – Setja Kínverjar honum stólinn fyrir dyrnar?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Þú kaupir af Guðbjörgu í hverri viku – umframhagnaður sægreifa fer í að kaupa upp atvinnulífið

Orðið á götunni: Þú kaupir af Guðbjörgu í hverri viku – umframhagnaður sægreifa fer í að kaupa upp atvinnulífið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Spyr hvort RÚV reki fréttastofu eða stundi skipulagt einelti

Spyr hvort RÚV reki fréttastofu eða stundi skipulagt einelti
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum húskarlar sem þiggja löggjöf sína eins og hverja aðra ölmusu

Sigmundur Ernir skrifar: Við erum húskarlar sem þiggja löggjöf sína eins og hverja aðra ölmusu