„Ef einhver telur að ég sé ekki hæfur til að gegna formannsembætti, þá eiga þau rök að byggja á málefnalegum grunni, ekki útlits- eða aldurstengdum fordómum,“
segir Bjarni Þór Sigurðsson, sem er í kjöri til formanns VR. Kjöri lýkur á hádegi á föstudag.
Bjarni Þór sem er 66 ára segir í grein sinni á Vísi að honum hafi nýlega borist áreiðanleg vitneskja úr nokkrum áttum, þar sem félagar í VR hafa fengið símtöl frá kosningateymi Höllu Gunnarsdóttur, keppinautar hans í formannskjörinu.
„Í símtalinu var hamrað á því að ég væri of gamall til að gegna formannsembættinu. Það er engu líkara en þetta sé beinlínis hluti af handriti sem úthringjarar í kosningavélinni hennar Höllu eru látnir lesa upp þegar þeir biðja kjósendur að kjósa hana.“
Segir Bjarni Þór að eftir því sem nær dragi kjöri verði sífellt ljósara að aldursfordómar eru raunverulegt og alvarlegt vandamál í íslensku samfélagi jafnvel innan verkalýðshreyfingarinnar sjálfrar.
„Lýðræðislegar kosningar í VR virðast nú litaðar af áróðri sem beinist að aldri mínum sem frambjóðanda fremur en stefnu minni og hæfni. Ég hef starfað í verkalýðshreyfingunni í nær tvo áratugi, m.a. sem varaformaður VR í fjögur ár og stjórnarmaður í Lífeyrissjóði verslunarmanna í fimm ár, þar sem ég hef m.a. barist fyrir réttlátari húsnæðismarkaði. Þá ef hef ég setið miðstjórn ASÍ og starfað vettvangi samtakanna sem formaður húsnæðisnefndar ASÍ.“
Segir hann að svo virðist sem Halla hafi ekkert við símtöl stuðningsmanna hennar að athuga.
„Það vekur athygli að Halla, sem hefur lengi verið viðloðandi Vinstrihreyfinguna grænt framboð, þar sem hún hefur talað fyrir jafnrétti, virðist ekki hafa neitt við þessa taktík að athuga. Þvert á móti virðist hún nota aldursfordóma sem vopn í kosningabaráttunni. Þetta er í hrópandi mótsögn við þau gildi sem hún segist standa fyrir.“
Skorar Bjarni Þór á alla félagsmenn VR að hafna neikvæðri orðræðu sem þessari og kjósa út frá málefnum og hæfni, ekki ómálefnalegum fordómum.
„Við sem stöndum fyrir jöfnum tækifærum og gegn fordómum, eigum ekki að þegja þegar aðferðir sem þessar eru notaðar til að útiloka fólk.
Aldur á ekki að vera mælikvarði á getu fólks til að leiða stéttarfélag. Þekking, reynsla og staðfesta skipta sköpum, ekki hvaða ártal er í fæðingarvottorði þínu.“