Orðið á götunni er að fólk sé í áfalli eftir að hafa horft á leiðtoga borgarstjórnarflokkanna í Silfri RÚV í gærkveldi. Þvílíkt samansafn af ráðþrota fólki sem veit ekkert hvort það er að koma eða fara. Ekkert þeirra hafði neinar nothæfar lausnir fram að færa.
Samtal leiðtoganna minnti lengst af á innantómt röfl í saumaklúbbi. Upphrópanir og fliss. Hvað er eiginlega í gangi þarna?
Orðið á götunni er að borgarstjórn sé eins og eyðimörk eftir að Dagur hvarf af vettvangi fyrir skömmu. Hann var slíkur yfirburðamaður í borgarstjórn að allt virðist hrynja þegar hann sleppir taumhaldinu.
Ætli almenningur geri sér ljóst að þessir átta borgarfulltrúar sem sátu í Silfrinu og blöðruðu stjórnlaust eru með starfskjör á vettvangi borgarmála sem nema 1,5 til 2,5 milljónum króna á mánuði! Stjórnendalaun hjá fólki sem kann greinilega ekki að stjórna neinu.
Fyrir nokkrum árum var borgarfulltrúum fjölgað úr 15 í 23 sem hefur alls ekki bætt stöðuna. Þá var seta í borgarstjórn gerð að fullu starfi sem var greinilega óheillaskref. Áður sinntu menn þessu samhliða störfum sínum úti í þjóðfélaginu með farsælum hætti, voru starfandi læknar, kennarar, forstjórar eða verkalýðsleiðtogar – og allt gekk miklu betur.
Ætla má að allir flokkar hljóti að skipta algerlega um frambjóðendur fyrir næstu kosningar til borgarstjórn eftir 15 mánuði. Silfrið í gær var afhjúpandi.
Orðið á götunni er að nú þurfi kraftaverk til að mynda meirihluta sem sæti út kjörtímabilið. Einar Þorsteinsson er rúinn trausti eins og flokkur hans, Hildur Björnsdóttir fer fyrir þríklofnum Sjálfstæðisflokki og Samfylkingin er nú höfuðlaus her í borginni og þannig mætti áfram telja.