Dineout hefur opnað sinna.is, nýtt og notendavænt markaðstorg fyrir fjölbreytta þjónustu. Á sinna.is geta einstaklingar og fyrirtæki bókað tíma hjá fjölbreyttum þjónustuaðilum, þar á meðal hárgreiðslu-, snyrti- og nuddstofum, einkaþjálfurum, förðunarfræðingum og ljósmyndurum. Áhersla er lög á heilsu, útlit og vellíðan en á sinna.is er einnig í boðið fjölbreytt þjónusta á borð við ýmiskonar ráðgjöf, fræðslu og afþreyingu.
„Sinna.is gerir einstaklingum hátt undir höfði með því að bjóða einyrkjum og þjónustufyrirtækjum að koma starfsemi sinni á framfæri á myndrænan og notendavænan hátt,“ segir Inga Tinna Sigurðardóttir, forstjóri og eigandi Dineout.
Ný og öflug bókunarlausn
Bókunarferlið á sinna.is er afar einfalt og gerir notendum meðal annars kleift að bóka marga þjónustuflokka í einni bókun, panta fyrir fleiri en einn aðila í einu og leita að þjónustu eftir tímabilum sem henta hverjum og einum.
„Sinna.is færir tímabókanir upp á nýtt plan,“ segir Inga Tinna. „Í stað þess að eyða miklum tíma á veraldarvefnum í leit að ákveðinni þjónustu, er komið nýtt markaðstorg sem einfaldar fólki lífið og tengir það við áhugaverð fyrirtæki og einstaklinga. Hvort sem viðkomandi er að leitast eftir að komast í klippingu, bóka fermingarmyndatöku, fá ráðgjöf í þjálfun eða bóka fyrirlestur þá er eitthvað fyrir alla á sinna.is,” bætir hún við.
Dineout þjónustar yfir 500 fyrirtæki
Sinna.is er þróað af sama teymi og Dineout.is, stærsta markaðstorgi tengdu matarupplifun á Íslandi. Dineout þjónustar nú yfir 500 fyrirtæki í veitingarekstri og hefur byggt upp öflugar stafrænar lausnir svo sem tímabókunarkerfi, kassakerfi, rafræn gjafabréf, afsláttarkerfi og fleiri lausnir sem auka skilvirkni reksturs.
„Við erum spennt að vera mætt á þjónustumarkaðinn með nýjar áherslur og hugmyndir. Sinna stendur fyrir áreiðanleika og gæði eins og Dineout er þekkt fyrir. Við erum með það að markmiði að auka viðskipti þeirra aðila sem eru í samstarfi við okkur og kynna almenningi fyrir fjölbreyttu úrvali af þjónustuframboði.,“ segir Inga Tinna.