fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Eyjan

Sigríður Andersen: Stjórnmálin snúast orðið um skráningar og að haka í box – atvinnulífið fer ekki varhluta af því

Eyjan
Föstudaginn 31. janúar 2025 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögum um stjórnmálaflokka var breytt rétt fyrir kosningar 2021 til að banna nafnlausan áróður. Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, segist telja að rótin að því hafi verið sú að Katrín Jakobsdóttir hafi tekið mjög inn á sig nafnlausan áróður sem beitt var gegn henni í einhverjum kosningum. Óvíst sé hversu raunhæft sé að banna slíkt. Hún segir stjórnmálin í vaxandi mæli snúast um einhverjar skráningar og að haka í box. Gagnsæi sé í hávegum haft í orði en staðreyndin sé sú að atvinnulífið hafi ekki farið varhluta af þessari auknu skriffinnsku. Sigríður er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Eyjan - Sigridur Andersen - 1
play-sharp-fill

Eyjan - Sigridur Andersen - 1

„Þetta er nú kannski bara spegilmynd af þróun stjórnmála undanfarinn áratug þar sem mikið er farið að snúast um einhverjar skráningar, aukið gagnsæi – það sem menn segja, þeir segja það í orði – aukið gagnsæi og þetta, og haka í box og, guð minn góður, atvinnulífið hefur ekki farið varhluta af þessu og það eru engin grið gefin gagnvart fjármálafyrirtækjum eða bara fyrirtækjunum í landinu ef þau skila ekki inn ársreikningum, eða hvað það er, og haka ekki í boxin. Það er einhvern veginn allt farið að snúast um þetta,“ segir Sigríður.

„Nú, svo árið 2021, rétt fyrir kosningar, ákveður ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að breyta lögum um starfsemi stjórnmálaflokka. Rótin að því var nú, held ég, markmið hennar að koma einhvern veginn í veg fyrir nafnlausan áróður. Hún hafði sjálf persónulega tekið mjög inn á sig einhvern nafnlausan áróður gegn henni fyrir einhverjar kosningar. Ég held að það hafi öðrum þræði verið það sem vakti fyrir henni; að leggja blátt bann með lögum við nafnlausum áróðri. Svo geta menn velt því fyrir sér hversu raunhæft það er.“

Sigríður segir að prjónað hafi verið í kringum þetta vers kyns gagnsæisreglur um stjórnmálaflokka og láta þá skila inn skjölum hægri vinstri. „Stjórnmálaflokkar hafa alltaf skilað inn ársreikningi og um það gilda bara reglur eins og um félagasamtök og annað, það er að segja gert ársreikninga og borið undir félagsmenn og þar fram eftir götunum.“

Þetta hefur verið sent til Ríkisendurskoðunar sem fer yfir þessa reikninga, gerir athugasemdir ef hún telur þörf á, óskar eftir skýringum, áður en hún samþykkir þá.

„Um stjórnmálaflokka hefur það gilt nokkuð lengi að þeir þurfa að skila inn ársreikningum til ríkisendurskoðanda. Þetta er nú líka kannski til marks um það hversu víða er verið að dreifa öllu svona. Hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri er að gera, því miður, í stjórnsýslunni oft og tíðum í þessum málum. En það er rétt, stjórnmálaflokkarnir skila til ríkisendurskoðanda ársreikningum sínum. Stjórnmálaflokkar sækja síðan um listabókstaf til dómsmálaráðuneytisins og eru þar á einhverri skrá yfir stjórnmálaflokka.

Svo er Landskjörstjórn. Hún var sett á laggirnar líka vegna þess að það þótti ekki nógu fínt einhvern veginn að hafa þetta inni í dómsmálaráðuneytinu, einhver svona yfirstjórn, það þurfti að búa til nýja stofnun, Landskjörstjórn, sem starfar allt árið, bara milli kosninga líka.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Svarthöfði skrifar: Tilvistarkreppa sjálfstæðismanna – ráðast á Flokk fólksins

Svarthöfði skrifar: Tilvistarkreppa sjálfstæðismanna – ráðast á Flokk fólksins
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón urðar yfir Ingu – „Verður hún þá búin að fremja fleiri afrek í þágu þjóðarinnar?“

Jón urðar yfir Ingu – „Verður hún þá búin að fremja fleiri afrek í þágu þjóðarinnar?“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Eldhugur í nýrri framkvæmdastjórn ESB – litlu ríkin í stórum hlutverkum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Eldhugur í nýrri framkvæmdastjórn ESB – litlu ríkin í stórum hlutverkum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Trump dregur Bandaríkin út úr WHO og opnar dyrnar fyrir ráðherra með klikkaða kórónuveirukenningu

Trump dregur Bandaríkin út úr WHO og opnar dyrnar fyrir ráðherra með klikkaða kórónuveirukenningu
Hide picture