fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Eyjan

Flosi ætlar í formanninn: „Við þurfum að vera stöðugt á varðbergi“

Eyjan
Föstudaginn 31. janúar 2025 08:38

Flosi Eiríksson býður sig fram til formanns VR.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flosi Eiríksson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands og formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns VR.

Flosi tilkynnti þetta í yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni í morgun.

„Ég hef eiginlega alltaf haft mikinn áhuga á hag vinnandi fólks. Að við sem leggjum okkar af mörkum til samfélagsins með vinnuframlagi alla starfsævina, búum við öryggi, góð lífskjör og getum byggt börnunum okkar bjarta framtíð. Við getum með samstöðu og áræðni haft áhrif á samfélagið og hvernig gæðunum er skipt. Með þetta í huga hef ég ákveðið að bjóða mig fram til formanns VR,“ segir hann.

Flosi er þeirrar skoðunar að þörf sé á öflugri og kraftmikilli forystu til að leiða VR inn í framtíðina.

„VR er geysilega sterkt félag sem sameinar fólk í fjölbreyttum störfum og atvinnugreinum. Með afli sínu og samstöðu á félagið að vera leiðandi í að tryggja kjarabætur og réttindi með hagsmuni allra félagsmanna að leiðarljósi. VR á að hafa sterka rödd í samstarfi innan verkalýðshreyfingarinnar og veita stjórnvöldum þétt aðhald í efnahags- og velferðarmálum.“

Hann nefnir að í félaginu eigi að vera virkt samráð við félagsmenn og öflugt grasrótarstarf. Þannig sé hægt að tryggja að sjónarmið félagsmanna liggi til grundvallar í öllu starfi og áherslum félagsins og félagið vinni að sameiginlegu hagsmunum félagsmanna.

„Við þurfum að tryggja fjölbreytt atvinnutækifæri fyrir öll og gæta þess að tæknibreytingar af margvíslegu tagi verði til að bæta lífsgæði en ógni ekki afkomu og atvinnutækifærum fólks. Við þurfum líka að laga okkur að þeim breytta veruleika sem loftslagsbreytingar kalla yfir okkur og tryggja að hagsmunir og réttindi launafólks séu varin í þeim umbreytingum. Aðgengi og tækifæri til sí- og endurmenntunar er þar lykilþáttur. Margar áskoranir fylgja síbreytilegum vinnumarkaði og við þurfum að vera stöðugt á varðbergi til að bæta hag og treysta réttindi félagsmanna.“

Hann segir að það blasi við verkefni á öllum sviðum sem verður skemmtilegt að ráðast í með samhentum hópi og breiðri samstöðu.

„VR hefur þegar tekið ákveðna forystu í húsnæðismálum sem byggja þarf á til áframhaldandi uppbyggingar. Á breyttum vinnumarkaði þurfum við að halda áfram að treysta margvísleg félagsleg réttindi, tryggja afkomuöryggi og að félagsmenn njóti öryggis í sínum daglegu störfum og þegar veikindi og slys bera að höndum.“

Flosi er viðskiptafræðingur að mennt, og húsasmiður, og hefur verið félagsmaður í VR síðan 2006.

„Ég hef á þessum árum öðlast fjölbreytta reynslu á vinnumarkaði við störf mín hjá KPMG, Íslandsstofu, Starfsgreinasambandinu og Aton. Ég hef alla tíð verið virkur í félagsmálum m.a. sem bæjarfulltrúi í Kópavogi, í stjórn Landssímans og mörgu fleira og er núna formaður Knattspyrnudeildar Breiðabliks. Sem framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins fékk ég góða innsýn inn í starfsemi verkalýðshreyfingarinnar og öðlaðist dýrmæta reynslu af samskiptum aðila vinnumarkaðarins og kjaraviðræðum.“

Flosi segir að á þessum tímamótum sem nú eru í VR finnist honum mikilvægt að félagsmenn hafi skýran valkost um hvernig VR á að vaxa og sækja fram til að tryggja réttindi lífskjör.

„Við þurfum að huga að félagsfólki VR og hagsmunum þeirra. Við erum fast að 40 þúsund sem skipum félagið og forysta félagsins á að endurspegla þennan fjölbreytta hóp og þau baráttumál sem skipta okkur öll máli. Ég er tilbúinn að leggja fram mína þekkingu, reynslu og alla krafta til að vinna fyrir félagsfólk VR með hagsmuni þess og félagsins að leiðarljósi. Á næstu vikum mun ég kappkosta að hitta félagsmenn VR um land allt, kynna það sem ég brenn fyrir og heyra þeirra sjónarmið. Ég hlakka til samtalsins framundan og hvet félagsfólk til að hafa samband svo við getum rætt um það sem máli skiptir. Áfram VR.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sjálfstæðisflokkurinn sagður kasta grjóti úr glerhúsi – Þáði sjálfur 167 milljónir í styrk áður en skráningu var breytt

Sjálfstæðisflokkurinn sagður kasta grjóti úr glerhúsi – Þáði sjálfur 167 milljónir í styrk áður en skráningu var breytt
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir auðlindir landsins hafa verið gefnar á silfurfati og fyrirtækjum sparaðir 85 milljarðar með dularfullri frestun – „Vegleg gjöf“

Segir auðlindir landsins hafa verið gefnar á silfurfati og fyrirtækjum sparaðir 85 milljarðar með dularfullri frestun – „Vegleg gjöf“
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Nýr naflastrengur

Óttar Guðmundsson skrifar: Nýr naflastrengur
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Inga Sæland: Árásirnar á okkur grímulaust einelti – sjálfstæðismenn vilja fela eigin vandræði

Inga Sæland: Árásirnar á okkur grímulaust einelti – sjálfstæðismenn vilja fela eigin vandræði