Listasafnsfélagið, hollvinafélag Listasafns Íslands, verður endurvakið á fundi sem haldinn verður í Listasafni Íslands, Fríkirkjuvegi 7, fimmtudaginn 9. janúar, kl. 17.
Allir eru velkomnir á fundinn og geta allir gerst stofnfélagar. Árgjald verður 5000 krónur.
Í fréttatilkynningu kemur fram að félagið mun starfa innan ramma laga 110/2021 um almannaheillafélög og er meginmarkmið þess að styðja við starfsemi Listasafns Íslands og bæta safnkost þess. Listasafnið hefur takmarkað fé til innkaupa en til að safnið geti orðið safn á heimsmælikvarða er mikilvægt að eignast fleiri lykilverk eftir íslenska og alþjóðlega listamenn. Félagið mun standa fyrir tveimur viðburðum á ári sem félagsmönnum verður sérstaklega boðið til ásamt því að safna fjármunum til að styrkja Listasafn Íslands.
Um árabil hafa fjölmargir listamenn og aðrir velunnarar stutt við safnið með listaverkagjöfum og fjárframlögum. Stærsta einstaka fjárframlag til safnsins kom frá Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssyni árið 1980 en núvirt nemur það hátt í milljarði. Þá er stutt síðan erfingar hjónanna Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur, sem kennd eru við Síld og fisk, færðu safninu um 1400 verk.
Nú þegar hefur tilvonandi félagi borist vilyrði um gjöf frá þeim Birgi Þór Bieltvedt og Eygló Björk Kjartansdóttur. Þau hafa boðið félaginu tilkomumikið verk eftir hinn þekkta sænska málara Andreas Eriksson en að sögn listamannsins er verkið unnið undir áhrifum frá íslenskri náttúru.
Forveri Listasafnsfélagsins sem hét sama nafni starfaði um tíma á sjötta áratugnum og gaf safninu verk eftir nokkra kunna erlenda samtímamenn en formaður stjórnar var Gunnlaugur Þórðarson lögfræðingur og listunnandi.
Á stofnfundinum mun Katrín Jakobsdóttir kynna nýtt félag. Þá mun nýr ráðherra menningarmála, Logi Einarsson, ávarpa fundinn og Ingibjörg Jóhannsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands, mun einnig halda stutt erindi.