fbpx
Þriðjudagur 27.ágúst 2024
Eyjan

Telja opinbert eftirlit hamla samkeppnishæfni Íslands – 3.750 manns sinna eftirliti hjá 49 opinberum stofnunum

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 27. ágúst 2024 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Opinbert eftirlit stendur samkeppnishæfni Íslands fyrir þrifum. Íþyngjandi útfærslur hafa verið valdar auk þess sem fjöldi og umsvif eftirlitsstofnana eru mikil samanborið við grannríki. Tækifæri eru til að ná markmiðum eftirlits með hagkvæmari hætti. 

Þetta kemur fram í nýrri úttekt Viðskiptaráðs á opinberu eftirlitsumhverfi á Íslandi.

Í úttektinni kemur fram að á Íslandi starfa 3.750 manns hjá 49 opinberum stofnunum sem sinna eftirliti. Tæplega 2.200 manns starfa við eftirlit á borð við löggæslu, tollgæslu og eftirfylgni með greiðslu skatta og gjalda, en sú tegund eftirlits nefnist stjórnsýslueftirlit. Þá starfa um 1.600 manns við svokallað sérhæft eftirlit. Starfsfólk þeirra stofnana framfylgir afmörkuðum eftirlitsreglum sem beinast að fyrirtækjum og einstaklingum.

Mynd: Viðskiptaráð

Eftirlitsstofnanir eru margar, umsvifamiklar og dýrar

Fyrirkomulag opinbers eftirlits er ekki eins og best verður á kosið. Algengast er að opinberum aðilum sé falið bæði reglusetningarvald og framkvæmd eftirlits þó svo að fleiri leiðir séu færar, t.d. útvistun eftirlits til faggiltra eftirlitsaðila. Í úttektinni kemur m.a. fram að:

  • Á Íslandi eru eftirlitsstofnanir mun stærri en á öðrum Norðurlöndum, hlutfallslega miðað við íbúafjölda. Til dæmis er hlutfallið þrefalt til sexfalt hærra þegar kemur að fjármála-, lyfja- og samkeppnis­eftirliti. Síðasta áratug hefur starfsfólki eftirlitsstofnana fjölgað um 29% samanborið við 21% fjölgun í einkageiranum.
  • Við val á útfærslu eftirlits hafa stjórnvöld í of miklum mæli falið opinberum aðilum framkvæmd þess. Hagkvæmari leiðir eins faggilding hafa verið vannýttar þrátt fyrir jákvæða reynslu af slíkri útfærslu.
  • Um sex af hverjum tíu eftirlitsstofnunum hafa færri en 50 starfsmenn. Fyrir vikið fer of hátt hlutfall rekstrarkostnaðar í stoðþjónustu og stjórnun, auk þess sem gæði þjónustu og möguleikar til sérhæfingar eru tak­markaðri.
Mynd: Viðskiptaráð

Tíu tillögur að hagkvæmara eftirliti

Viðskipta­ráð hefur mótað tíu tillögur að bættu fyrirkomulagi eftirlits sem auka hagkvæmni án þess draga úr samfélagslegum ábata. Þannig leiða þær til betri nýtingar skattfjár og aukins athafnafrelsis, sem er undir­staða verðmæta­sköpunar og bættra lífskjara til langs tíma litið. Tillögurnar eru í þremur flokkum:

  • Bætt lagaumgjörð: Einungis verði stofnað til eftirlits á grundvelli úttektar á hreinum ábata samfélagsins af slíku fyrirkomulagi. Eins skuli umfang og tegund eftirlitsins taka mið af áhættu eftirlitsskyldu starfseminnar. Dæmi um tillögu hér er að úttektir eftirlitsaðila taki mið af hlítingu og að reglufylgni leiði til lægri tíðni eftirlits.
  • Færri eftirlitsstofnanir: Stofnanaumhverfi eftirlits verði einfaldað með betri nýtingu skattfjár, minni skörun og hagfelldari framkvæmd að leiðarljósi. Dæmi um tillögu í þessum flokki er sameining Neytenda­stofu, Fjarskiptastofu og Samkeppniseftirlits í eina stofnun.
  • Aukin faggilding: Stjórnsýslu- og framkvæmdaþættir eftirlits verði betur aðskildir og framkvæmd útvistað með faggildingu í meiri mæli. Dæmi um tillögu er að heilbrigðis­nefndir sveitarfélaga verði lagðar niður. Í stað þeirra verði stjórnsýslu­þáttur heilbrigðiseftirlits færður til eftirlitsstofnana og framkvæmdaþáttur til einkaaðila með faggildingu.

Úttekt Viðskiptaráðs má lesa í heild sinni hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Málefni flóttafólks, orkumál og loftslags- og umhverfismál ekki ofarlega á baugi hjá kjósendum

Málefni flóttafólks, orkumál og loftslags- og umhverfismál ekki ofarlega á baugi hjá kjósendum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Leiðarahöfundur Morgunblaðsins kastar grjóti úr glerhúsi

Orðið á götunni: Leiðarahöfundur Morgunblaðsins kastar grjóti úr glerhúsi
Eyjan
Fyrir 1 viku

„Það er ekki hægt að réttlæta þetta lengur gagnvart skattgreiðendum“

„Það er ekki hægt að réttlæta þetta lengur gagnvart skattgreiðendum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Eymdarleg samkoma hjá Vinstri grænum

Orðið á götunni: Eymdarleg samkoma hjá Vinstri grænum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Það má jafnt virða söguna og læra af henni

Sigmundur Ernir skrifar: Það má jafnt virða söguna og læra af henni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Skólamál: Á bilinu 4-600 börn á skólaskyldualdri eru alls ekki í skóla hér á landi

Skólamál: Á bilinu 4-600 börn á skólaskyldualdri eru alls ekki í skóla hér á landi