Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, hefur átt í útistöðum við Morgunblaðið um nokkurt skeið og hann er allt annað en sáttur við vinnubrögð blaðsins eins og kemur fram í pistli hans á Facebook í morgun. Morgunblaðið hefur verið í fararbroddi í umfjöllun um uppsafnaða orlofsgreiðslu til Dags, sem nam tæplega 10 milljónum króna, þegar hann lét af störfum sem borgarstjóri fyrr á árinu. Telur Dagur að blaðið hafi farið offari í umfjölluninni og hafi virt að vettugi móttrök, til að mynda þá staðreynd að aðrir bæjarstjórar í nágrannasveitarfélögum hafi fengið sambærilegt uppgjör. Í Staksteinum blaðins í dag var þó bent á að búið væri að taka fyrir slíkt í hinum bæjarfélögunum og í raun Reykjavík líka, „bara ekki fyrr en eftir að Dagur hafði fengið þetta smáræði,“ skrifaði Davíð Oddsson, nafnlaus höfundur Staksteina. Þá var því einnig velt upp hvort gjörningurinn væri í raun löglegur.
Við þetta er Dagur allt annað en sáttur.
„Morgunblaðið er staðráðnara en nokkru sinni fyrr í að verða að athlægi og verður hlægilegra og hlægilegra með hverjum deginum. Í staðinn fyrir að leiðrétta (vísvitandi?) rangar fréttir sínar um orlofsmál í samræmi við hefðbundin vinnubrögð í blaðamennsku og siðareglur Blaðamannafélagsins nær hallærisgangurinn nýjum hæðum í blaði dagsins,“ skrifar Dagur.
Eins og áður segir hefur borgarstjórinn fyrrverandi verið sérstaklega ósáttur við nafnlaus skrif Davíðs Oddssonar, ritstjóra blaðsins. Fyrir tæpri viku síðan sagði Dagur að leiðari blaðsins væri einhver sá vanstilltasti og orðljótasti sem hann hafði lesið og í dag sakar hann blaðið um að hafa nappað mynd af sér í leyfisleysi og birta sér til háðungar.
Veltir Dagur því upp hvort að ekki væri réttast að Morgunblaðið myndi greiða myndasmiðinum fyrir birtinguna og gæti sú upphæð runnið í gott málefni.
„Þetta er því miður eitt af mörgu sem undirstrikar það niðurlægingarskeið sem þetta gamla blað er að ganga í gegnum. Ónefnin og lágkúran í leiðurum er annar kapituli. En svo hugsað sé í lausnum: Kannski á myndasmiðurinn að fá greitt fyrir þessa myndbirtingu? Veit einhver um það? Væri alla vega sniðugt ef sú greiðsla gæti runnið til Unicef og í neyðarsöfnun vegna barnanna á Gaza en ég hljóp til styrktar þeim á laugardaginn. Aðstandendum Morgunblaðsins sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur,“ skrifar Dagur.