fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Eyjan

Benedikt segir Repúblikanaflokkinn gjörbreyttan – „Repúblikanar voru almennt ekki ofstækisfullir furðufuglar“

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 23. ágúst 2024 16:15

Benedikt fer hörðum orðum um þróunina í Repúblíkanaflokknum. Mynd/samsett/Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi fjármálaráðherra, segir Repúblikanaflokkinn í Bandaríkjunum hafa breyst mikið á undanförnum árum. Flokksmenn séu í dag ofstækisfullir furðufuglar sem hafi ákveðið að hatur, óheiðarleiki og kvenfyrirlitning sé eðlileg hegðun.

„Hvað gerist þegar stór hluti þjóðar umhverfist?“ spyr Benedikt í harðorðri færslu á samfélagsmiðlum í dag. „Hættir að virða heiðarleika, sannsögli, stefnufestu eða samkennd, sameinast um hatur á ákveðnum hópum, hlær þegar gert er lítið úr góðu og heiðarlegu fólki, hampar þeim sem níðast á minni máttar, áreitir konur, neitar að viðurkenna úrslit kosninga, beinir stuðningsmönnum sínum gegn lýðræðinu?“

Á hann þá vitaskuld við Donald Trump fyrrverandi forseta sem reyndi að stela kosningunum árið 2020. Eftir kosningarnar réðust stuðningsmenn hans á þinghús Bandaríkjanna og sex manns létust.

Sameinaði frekar en sundraði

Benedikt rifjar upp þegar hann bjó í Bandaríkjunum á yngri árum. Skiptust á að vera í Hvíta húsinu, Repúblikanar og Demókratar. Það er í tíð Bandaríkjaforsetanna Gerald Ford, Jimmy Carter og Ronald Reagan.

Á þessum árum hafi bandaríska þjóðin verið að jafna sig á Víetnamstríðinu og Watergate hneykslinu. Vitaskuld hafi verið flokkadrættir en forystumenn flokkanna tveggja hafi getað talast við og samið um einstök mál. Þeir hafi vitað að það væri miklu meira sem sameinaði þá en sundraði.

Hatur og óheiðarleiki

„Um daginn fengum við heimsókn frá bandarískum kunningjum okkar. Þau töluðu um hvernig fjölskyldur hafa sundrast vegna þess að Repúblikanar hafa ákveðið að hatur, ósannindi, óheiðarleiki, sérhagsmunagæsla, kvenfyrirlitning og hroki sé eðlileg hegðun,“ segir Benedikt. „Fyrir 40 árum þekkti ég fólk úr báðum flokkum. Það var ekki sammála um stjórnmálastefnu, en Repúblikanar voru almennt ekki ofstækisfullir furðufuglar. Nánast allir studdu frjáls viðskipti og vestræna samvinnu.“

Benedikt telur að hann hefði sennilega orðið frjálslyndur Demókrati, hefði hann verið Bandaríkjamaður. Sú stefna hafi sennilega verið líkust stefnu Sjálfstæðisflokksins á þeim tíma. Þessu hefðu hins vegar margir Sjálfstæðismenn ekki áttað sig á og frekar haldið sig eiga samleið með Repúblikönum.

Öðlaðist trú á Harris

Flokksþingi Demókrata er nýlokið og Kamala Harris varaforseti orðin formlega frambjóðandi í komandi forsetakosningum. Benedikt segist hafa haft efasemdir um hana. Óttaðist hann að enginn góður frambjóðandi gæti fundist til að stöðva framgang Trump.

„Ég hafði rangt fyrir mér,“ segir Benedikt. „Í nótt horfði ég á flokksþing Demókrata og ræðu Harris. Hún flutti hana vel, með sýn um einingu, áframhaldandi bandalag vestrænna lýðræðisþjóða gegn hættulegri útþenslu Rússa og annarra einræðisþjóða.“

Hafi hún vitnað í móður sína sem hafi sagt: „Hættu að kvarta undan ástandinu, gerðu frekar eitthvað til þess að breyta því.“

„Gleði og ákveðni í því að halda fram veginn í stað þess að snúa aftur til fortíðar einkenndi ræðu varaforsetans og margra annarra sem töluðu á flokksþinginu,“ segir Benedikt að lokum. „Réttlæti, lýðræði og frelsi hafa verið í vörn. Vonandi tekst Kamölu að vinna þessa lotu. Byrjunin lofar góðu.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Arion banki sá að sér eftir að upp úr sauð á Fjármálatips

Arion banki sá að sér eftir að upp úr sauð á Fjármálatips
Eyjan
Í gær

Gunnar bendir á sláandi staðreynd um stýrivextina – „Hvergi í veröldinni er auður hinna ríku varinn af eins miklum ákafa“

Gunnar bendir á sláandi staðreynd um stýrivextina – „Hvergi í veröldinni er auður hinna ríku varinn af eins miklum ákafa“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kosningar: Lilja og Alma takast á um skatta og innviðafjárfestingu

Kosningar: Lilja og Alma takast á um skatta og innviðafjárfestingu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bregðast við stjórnarskrárbroti Alþingis – „Þetta er hið raunverulega andlit og arfleifð Sjálfstæðisflokksins“

Bregðast við stjórnarskrárbroti Alþingis – „Þetta er hið raunverulega andlit og arfleifð Sjálfstæðisflokksins“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ragnar segir tíma til kominn að þora að spyrja stóru spurninganna um lífeyrissjóðina – „Við erum þrælar eigin kerfis“

Ragnar segir tíma til kominn að þora að spyrja stóru spurninganna um lífeyrissjóðina – „Við erum þrælar eigin kerfis“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þingkosningar: Lilja segir ríkisstjórnina hafa fjárfest mikið í innviðum – Alma segir innviðskuldina ógna orkuskiptum

Þingkosningar: Lilja segir ríkisstjórnina hafa fjárfest mikið í innviðum – Alma segir innviðskuldina ógna orkuskiptum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 4 um ESB/evru: Þýzkaland tók evru fram yfir sitt ofursterka mark (DM) – hvað segir það okkur?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 4 um ESB/evru: Þýzkaland tók evru fram yfir sitt ofursterka mark (DM) – hvað segir það okkur?