fbpx
Miðvikudagur 22.janúar 2025
Eyjan

Ole Anton BIeltvedt skrifar: Aðferðafræði fáránleikans – Húsnæðiskostnaður hækkar vísitölu, sem hækkar verðbólgu og vexti – afleiðingin: of dýrt að byggja til að lækka húsnæðiskostnað!

Eyjan
Fimmtudaginn 15. ágúst 2024 08:00

Ole Anton Bieltvedt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hef skrifað margar greinar um Seðlabankastjóra og Peningastefnunefnd og þeirra – fyrir mér – fáránlegu vinnubrögð. Ég hef margbent á það að hækkaðir vextir hækka allt verðlag, því allt þarf að fjármagna, sem gert er og framkvæmt, líka auðvitað viðskipti og verzlun, og þar með skrúfa hækkaðir vextir Seðlabanka upp kostnað, vísitölu, sem Seðlabanki notar svo aftur sem tilefni til að hækka vexti.

Það er með ólíkindum, að vel menntaðir menn, sem líka ættu að vera í tölu skynsamra og klárra manna, skuli standa fyrir þessu geðveikisspili!! Skilur þetta blessaða fólk ekki þá einföldu staðreynd, að þarna er verið að búa til stjórnlausan vítahring fáránleikans!?

Í Morgunblaðinu í dag er forsíðugrein með fyrirsögninni: Vaxtakostnaður alltof íþyngjandi“, undirfyrirsögn: „Þingvangur setur stóran reit á ís. Í texta stendur svo þetta:

Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri byggingafyrirtækisins Þingvangs, segir fyrirtækið hafa ákveðið að fresta uppbyggingu 140 íbúða í Hafnarfirði vegna mikils vaxtakostnaðar, en þeim bjóðist nú allt að 14% vextir. Starfsmenn hans hafi þannig reiknað út, að, ef fyrirtækið hefði hafið þessar framkvæmdir fyrir hálfu ári, þá myndi það í versta falli tapa sem svarar einni íbúð á tveggja til þriggja vikna fresti vegna vaxtakostnaðar frá ársbyrjun“.

Á 6. síðu, inni í blaðinu, er svo fyrirsögn þvert yfir síðuna: Vextir eru of háir til að byggja“.

Sem sagt; til að lækka byggingarkostnað og þar með húsnæðiskostnað í framfærsluvísitölu, þarf að byggja miklu meira, en Seðlabanki er búinn að hækka vexti svo mikið, einmitt vegna hækkunar húsnæðiskostnaðar í framfærsluvísitölu, að vextir eru orðnir svo háir að byggingarverktakar treysta sér ekki til að halda áfram með áformaðar byggingaframkvæmdir!

Í augnablikinu dettur mér ekkert annað í hug, en Hara-Kiri, kviðrista, sjálfsvíg, þó japanskt fyrirbrigði hafi verið, reyndar var hún ekki framkvæmd vegna heimsku, eins og hér er, heldur til að viðhalda virðingu og heiðri.

Katrín Jakobsdóttir, íslenzkufræðingur, með frönsku sem aukagrein, þá forsætisráðherra, valdi og skipaði Ásgeir Jónsson í starf Seðlabankastjóra árið 2019. Skipunartími hans er til 20. ágúst í ár. Ef auglýsa hefði átt stöðuna, hefði þurft að tilkynna Ásgeiri það í síðasta lagi 20. febrúar í ár, en Katrín var þá enn forsætisráðherra og hún gerði það ekki. Var greinilega hæstánægð með Ásgeir, eins og flest sín verk, sem reyndar stenzt litla skoðun.

Skipunartími Ásgeirs framlengist því sjálfkrafa í önnur 5 ár. Ef skuldarar landsins og íslenzka þjóðin eiga að lifa af, tryggja afkomu sína og velferð, jafnrétti og tilvistaröryggi, þarf hins vegar bráðnauðsynlega að víka Ásgeiri úr starfi. Bjarni Benediktsson, sem tók við starfi forsætisráðherra 9. apríl sl. getur auðvitað gert það, þó að það myndi kosta ríkið einhver útgjöld vegna síðbúinnar riftunar skipunar.

Það gæti þó aldrei orðið nema örlítið brot af því tjóni, sem Ásgeir er að valda skuldurum landsins og þjóðinni. Bezt væri svo að auglýsa starfið erlendis líka.

Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Aftur sektaðir af KSÍ
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kristrún Frostadóttir: Lítum á þingflokka ríkisstjórnarinnar sem einn stóran þingflokk – nýtt verklag við landsstjórnina

Kristrún Frostadóttir: Lítum á þingflokka ríkisstjórnarinnar sem einn stóran þingflokk – nýtt verklag við landsstjórnina
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Haraldur Ólafsson skrifar: Nei, Thomas, þetta er ekki svona

Haraldur Ólafsson skrifar: Nei, Thomas, þetta er ekki svona
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Grænlandsraunir

Óttar Guðmundsson skrifar: Grænlandsraunir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Andri Snær kemur Carbfix til varnar – „Ég hef þessa skoðun, get skipt um skoðun“

Andri Snær kemur Carbfix til varnar – „Ég hef þessa skoðun, get skipt um skoðun“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Tímamóta-Dagur þakkar fyrir sig – „Og angurværi gaurinn – ég – til hægri, þakkar fyrir sig!“

Tímamóta-Dagur þakkar fyrir sig – „Og angurværi gaurinn – ég – til hægri, þakkar fyrir sig!“
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Mikilvægi faglegrar erlendrar úttektar á gjaldmiðlamálum

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Mikilvægi faglegrar erlendrar úttektar á gjaldmiðlamálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fyrrum þingmaður segir okkur ekki ráða við þetta einfalda verkefni

Fyrrum þingmaður segir okkur ekki ráða við þetta einfalda verkefni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ásdís Rán útilokar ekki annað forsetaframboð

Ásdís Rán útilokar ekki annað forsetaframboð