Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hún tilkynnti opinberlega að hún sækist eftir að hljóta útnefningu Demókrataflokksins sem forsetaframbjóðandi, ýttu Repúblikanar áróðursherferð sinni gegn henni úr vör með myndbandi. Í því var hún kölluð „róni“ og „misheppnaður varaforseti“.
En í nýrri hljóðupptöku, sem var lekið til Washington Post, má heyra hvað Repúblikönum finnst í raun og veru um Harris.
Á upptökunni ræðir JD Vance, varaforsetaefni Trump, við hóp stuðningsmanna, sem styrkja Repúblikana fjárhagslega, um þróun mála.
„Þetta var óvænt pólitískt högg sem hæfði okkur öll,“ sagði hann að sögn Washington Post.
Á upptökunni heyrst hann segja að Harris sé ekki með „eins mörg lík í farteskinu og Biden“ og að „augljóst sé að hún glími ekki við hlutina á sama hátt og Biden“. Þetta veldur Repúblikönum margvíslegum vanda sagði hann síðan.
Þetta er ekki í samræmi við það sem Vance hefur sagt á opinberum vettvangi. Má þar nefna að daginn eftir að Biden tilkynnti að hann dragi sig í hlé, sagði Vance að „þetta breyti engu“ hvað varðar sigurmöguleika Repúblikana eða fyrir kosningabaráttu þeirra.