fbpx
Mánudagur 15.júlí 2024
Eyjan

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi

Eyjan
Fimmtudaginn 11. júlí 2024 15:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Coca-Cola á Íslandi hefur nýlega ráðið tvo nýja framkvæmdastjóra, þær Andreu Lilju Ottósdóttur í starf framkvæmdastjóra mannauðs og Sigrúnu Hallgrímsdóttur í starf framkvæmdastjóra vörustjórnunarsviðs.

„Ég er gríðarlega ánægð að fá Andreu og Sigrúnu inn í framkvæmdastjórn CCEP. Þær eru báðar öflugir og reynslumiklir leiðtogar, þekkja vel rekstur fyrirtækisins og þarfir viðskiptavina og starfsfólks. Þær eru frábær viðbót við framkvæmdastjórn fyrirtækisins og ég er full tilhlökkunar að takast á við verkefni framtíðarinnar ásamt þeim og okkar góða starfsfólki. “ segir Anna Regína Björnsdóttir forstjóri Coca-Cola á Íslandi.

Andrea tekur við mannauðsmálunum

Andrea Lilja Ottósdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra mannauðs hjá Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi og hefur þegar hafið störf. „Það er ómetanlegt tækifæri að fá að stíga inn í nýtt hlutverk og fá tækifæri til að þróast hjá fyrirtækinu.  Fram undan eru spennandi verkefni og uppbygging sem ég er full tilhlökkunar að takast á við. Hjá Coca-Cola starfar algjörlega frábært og öflugt starfsfólk sem það er heiður að fá að vinna með á hverjum degi. Það sem drífur mig áfram er ástríðan og metnaðurinn sem ég hef fyrir góðum vinnustað þar sem velferð, jafnrétti og vöxtur starfsfólks er forgangi“ segir Andrea Lilja.

Andrea hóf störf á mannauðssviði hjá Coca-Cola á Íslandi árið 2019.  Andrea Lilja hefur víðtæka reynslu af störfum við mannauðsmál og hefur hún starfað hjá alþjóðlegum fyrirtækjum síðan 2015. Fyrst hjá Rambøll verkfræðifyrirtæki í Noregi og síðar hjá Sixt Bílaleigu. Andrea lauk námi í mannauðsstjórnun frá Háskólanum í Osló árið 2016.

Sigrún ráðin í að stýra vörustjórnunarsviði

Sigrún Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra vörustjórnunarsviðs Sigrún leiddi vörustjórnunarsvið á árunum 2020-2022, áður en hún flutti til Bahrein og starfaði þar hjá Gulf Coca-Cola Beverages. Síðan hún flutti til Íslands aftur hefur hún starfað hjá BL og leitt þar vöru- og þjónustusvið. Áður starfaði Sigrún hjá Landspítalanum og Marel og hefur hún mikla reynslu af því að leiða teymi og stýra verkefnum og umbótum. Hún er með BS próf í matvælafræði frá HÍ og meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands.

„Það verður gaman að hefja aftur störf hjá Coca-Cola á íslandi og vinna áfram með þau sterku vörumerki sem Íslendingar elska, bæði alþjóðleg og íslensk. Hjá CCEP starfar sterkt teymi og er ég þakklát fyrir að fá að leiða það öfluga fólk sem starfar á vörustjórnunarsviði. Miklar og góðar breytingar hafa átt sér stað síðustu árin hjá fyrirtækinu og fleiri spennandi áskoranir eru fram undan. Ég er því full eftirvæntingar að hefja aftur störf hjá CCEP í ágúst“ segir Sigrún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna teflir öllu fram og segir Sjálfstæðisflokkinn geta gert margt betur – „Sorglegt að sjá víða að við förum ekki betur með fé“

Áslaug Arna teflir öllu fram og segir Sjálfstæðisflokkinn geta gert margt betur – „Sorglegt að sjá víða að við förum ekki betur með fé“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Erna Hrund stýrir útflutningi á Collab

Erna Hrund stýrir útflutningi á Collab
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Samfylkinguna hafa fórnað grunngildum og svara gagnrýni með gaslýsingum og hroka – „Dapurleg örlög jafnaðarflokks“

Segir Samfylkinguna hafa fórnað grunngildum og svara gagnrýni með gaslýsingum og hroka – „Dapurleg örlög jafnaðarflokks“