fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Eyjan

Bendir á að Ísland sé í raun ein stór hringavitleysa – hvað er allt þetta fólk að gera?

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 7. júní 2024 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Er tilvera okkar háð síbreytilegum reiknikúnstum embættismanna úti í bæ? spyr Ari Kr. Sæmundsen í aðsendri grein á Eyjunni.

Hann spyr hvort stýrivextir Seðlabankans muni lækka þegar verðbólgan lækkar með nýjum útreikningi á húsnæðislið vísitölu neysluverðs í samræmi við útreikninga í þeim löndum sem við berum okkur saman við.

Hann nefnir að ríkið kom inn með 80 milljarða pakka inn í síðustu kjarasamninga stéttarfélaga og Samtaka atvinnulífsins. Í þessu fólst m.a. fleiri íbúðir, fríar skólamáltíðir og mikilfenglegar breytingar á bótakerfinu. Ari spyr hvort mönnum hafi ekki dottið í hug að einfalda frekar skattakerfið, fækka skattþrepum og hækka skattleysismörkin. „Hvað kostar þetta millifærslukerfi og hvað vinna margir við það? Veit það nokkur? Hvað með að afnema undanþágur frá virðisaukaskatti og lækka hann? Ein og sama prósentan fyrir allt og alla. Hagstofan hlýtur að geta reiknað þetta út, svo ríkissjóður komi út á núlli. Hún eru svo góð í reikningi.“

Þá veltir hann fyrir sér hvernig á því stendur að einungis ríkið skuli hafa verið kallað að samningaborðinu, en ekki bankarnir: „Eru þeir alltaf stikkfrí? Það er reyndar kannski ekki skrítið að Ríkið skuli kallað til, við búum í e.k. sovéti, Ríkið alltumvefjandi. Ríkið er t.d. í fjármálastarfsemi, selur áfengi og nærföt, rekur ljósvakamiðil og ætlar nú að koma sér fyrir á tryggingamarkaði. Spurning hvenær Ríkið opnar bílasölu og fer að gefa út dagblað? Pravda?“

Ari rifjar upp sögu ráðherrahrókeringa í kjölfar þess að umboðsmaður Alþingis fann að embættisfærslum. Fjármálaráðherra hafi axlað ábyrgð með því að skipta um sæti við utanríkisráðherra. „Matvælaráðherra brýtur lög, en verst fimlega og segir lögin gömul og úrelt, ekki mark á þeim takandi. (Góð málsvörn ef maður skyldi einhvern tímann verða dreginn fyrir dóm.) Hann axlar enga ábyrgð og fer svo í veikindaleyfi. Óska honum góðs bata. Þáverandi forsætisráðherra tók að sér matvælaráðuneytið og stjórnaði forsætisráðuneytinu með vinstri hönd og matvælaráðuneytinu með þeirri hægri. Það fyrsta sem hægri höndin gerði var að skipa starfshóp til að lagfæra lögin, sem matvælaráðherra braut. Og nú er fjármálaráðherra aftur orðinn utanríkisráðherra, en utanríkisráðherra forsætisráðherra. Um leið fór innviðaráðherra í fjármálaráðuneytið og matvælaráðherra, kominn úr veikindaleyfi, í innviðaráðuneytið. Og svo var skipaður nýr matvælaráðherra, sem virðist við fyrstu sýn frekar ráðvilltur, ætlar t.d. að veita norskum laxeldisfyrirtækjum óheftan aðgang að íslenskum fjörðum. Þetta er kallað ráðherrakapall og þykir víst skemmtileg afþreying í stjórnarráðinu.“

Hann spyr hvað allir 700 starfsmenn stjórnarráðsins starfi við. Hvað þetta fólk sé eiginlega að gera úr því að fagráðuneytin þurfi í sífellu að skipa starfs- eða spretthópa til að greina úrlausnarefni og koma með tillögur. Eru starfsmenn stjórnarráðsins kannski „svo uppteknir við að gullhúða tilskipanir frá löggjafa Íslendinga, Evrópusambandinu (ESB), að þeir hafa ekki tíma til að vera að vasast í einhverjum tittlingaskít? Þess á milli er verið að „skoða“ mál. Það er einmitt eftirtektarvert að þegar verið er að þýfga ráðherra um um einhver mál, sem eru brýn og þarfnast úrlausnar, þá er alltaf verið að „skoða“ þau í viðkomandi fagráðuneyti, eða verið að skipa starfshóp, eða bíða eftir skýrslu frá starfshópi.“

Innstreymi „glæpalýðs“ til landsins er Ara hugleikið: „… mörg flugfélög uppfylla ekki þá lagalegu skyldu sína að upplýsa yfirvöld um hverjir eru um borð. Mönnum er vísað úr landi, en eru komnir aftur með næstu vél daginn eftir. Um 75% gæsluvarðhaldsfanga 2023 voru með erlent ríkisfang. En örvæntið ekki, þetta mál er í „skoðun“ í dómsmálaráðuneytinu. Tillaga: Við yfirheyrslur sýnum glæponunum mynd af gömlu síldarverksmiðjunni í Ingólfsfirði á Ströndum í vetrarbúningi og segjum þeim að þangað verði þeir sendir í afplánun verði þeir fundnir sekir. Sleppum þeim svo lausum og þeir forða sér með fyrstu vél og koma aldrei aftur.“

Ari kemur inn á fyrirhugaða sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka og jafnvel Landsbankanum. Hann segir fólkið sem gagnrýni það að með því sé verið að selja „gullgæsina“ vera sama fólkið og fárast yfir því gjaldtöku og ofurvöxtum bankanna. „Hvort er það, gullgæs eða okurbúlla?

Hann gagnrýnir losunarheimildakerfið og sölu upprunavottorða. Það kerfi hafi orðið til þess að vistvænn paprikuræktandi á Flúðum horfi upp á það að búið sé að selja undan honum vistvænu fullyrðinguna til framleiðanda á Spáni sem nú geti veifað upprunavottorði fyrir vistvænni íslenskri orku á meðan hann framleiðir áfram sínar paprikur með rafmagni sem framleitt er með olíubrennslu.

Ari kemur víða við og fer mikinn. Hann fjallar um rafbílavæðingu, skattlagningu á farþega- og farmflutninga til og frá Íslandi og sorpflokkun þar sem við séum að framleiða eina gróðurhúsalofttegund til að mynda aðra.

Það á að skattleggja Evrópubúa í drep í nafni loftlagsvár á meðan mestu umhverfissóðar heims yppa bara öxlum og glotta út í annað. Þeir vita fæstir hvar Ísland er eða er slétt sama hvað við erum að puða. Ísland er ekki einangrað vistkerfi, aðgerðir okkar eru dropi í hafið og við erum ekki og munum aldrei verða umhverfissóðunum fyrirmynd.“

Grein Ara í heild má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Óþekkt og almennt slugs orðið hluti af mannréttindum barna”

„Óþekkt og almennt slugs orðið hluti af mannréttindum barna”
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Ný-mjór

Óttar Guðmundsson skrifar: Ný-mjór
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Milljónir í stjórnarlaun en engir stjórnarfundir – óheyrilegur lögfræðikostnaður en engar tímaskýrslur

Lindarhvoll: Milljónir í stjórnarlaun en engir stjórnarfundir – óheyrilegur lögfræðikostnaður en engar tímaskýrslur
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu