fbpx
Föstudagur 28.júní 2024
EyjanFastir pennar

Steinunn Ólína skrifar: Glæpurinn gegn mannkyninu

Eyjan
Föstudaginn 28. júní 2024 06:00

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Mynd: Kári Sverrisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn nýi evrópski aðall er stétt stjórnmálamanna sem starfar um alla álfuna án rauntengingar við almenning í Evrópu. Margt er það fólkið sem gegnir æðstu embættunum sem aldrei hefur deilt kjörum með venjulegu fólki á vinnumarkaði.

Á Íslandi eigum við líka dæmi um stjórnmálafólk sem vegna vensla eða flokkuppeldis hefur hlotið ábyrgðarstöður í íslensku samfélagi og jafnvel aldrei haft annan starfa. Ísland er bara míkrómynd af heiminum.

Hinn evrópski stjórnmálaaðall á það sameiginlegt að lúta vilja konunga sem nú um mundir í okkar veröld eru þeir sem eiga allt. Fyrirtækja- og fjármagnseigendur.

Stjórnmálastéttir þjóna ekki lengur almenningi heldur peningaguðinum skilyrðislaust sem alltaf vill hámarka gróða sinn á kostnað sundraðs mannkyns. Úrkynjun stjórnmálastéttanna er lýðræðinu hættuleg.

Evrópsk stjórnvöld landanna í Nató, með heimsveldin Bretland og Bandaríkin í fararbroddi, ganga nú fram til hervæðingar Evrópu og fjármagna átök í Úkraínu og útrýmingar í Palestínu með skattfé borgaranna. Enginn vilji er til friðarviðræðna þrátt fyrir ákall fólks, því meðan þjóðarskattfé blæðir í vasa hermangaranna eru kóngarnir sáttir og stjórnmálaaðallinn heldur ímynduðum völdum sínum, því það er þeim nóg að hafa titla og stöður.

Stærstu fjölmiðlar heimsins eru í eigu fjármagnseigenda og allt efni þeirra vandlega valið ofan í okkur svo frásögnin sem við eigum að gleypa er á þann veg sem fjármagnseigendum hentar.

Facebook, X og Google ráða því svo hvaða efni við sjáum mest af og það eru vitaskuld þeir sem mest geta borgað sem tryggðan hafa sýnileika. Við fáum því enga raunmynd af stöðu mála og trúnað getum við ekki lagt á frásagnir slíkra því tilgangurinn er ekki fræðsla heldur tilraun til skoðanamyndandi heilaþvottar.

Siðblinda fyrirtækja sem fjármagna styrjaldir er gerð hversdagsleg. Af hverju á ég ekki að skipta við siðleysingja ef ég græði á því? Mantran um frelsi einstaklingsins sem hafi valdið til að græða á öllu og öllum án afleiðinga er hávær en mannskemmandi.

Þetta skynjar mannskepnan og þá er ekki skrýtið hversu mjög vinsæl utanstraums podcast- og umræðuþættir hafa orðið. Fólk dreymir og þráir samræður þar sem ólík sjónarhorn koma fram, þar sem fólk ræðir saman án þess að móðgast hvert við annað. Þar sem fólki er gefinn kostur á að mynda sér skoðanir sjálft án mötunar. Mannkynið vil nefnilega ekki aðskilnað fólks í milli heldur afturhvarf til þess er við sátum saman við eldinn og lærðum hvert af öðru lexíurnar og fengum sögurnar ómengaðar af stjórnsemi þeirra sem eiga og ráða vilja öllu.

Stærsti glæpur gegn mannkyninu er þó það hatur sem vísvitandi er alið á með aðgreiningum og veldur aðskilnaði hópa fólks. Trump þjónaði fjármagnseigendum vel og var þar mikilvæg brúða í leiknum. Ruddi sem segir hvað sem er, kann ekki mannasiði og hellir úr sér hatursfullum athugasemdum um hvað sem honum dettur í hug. Trump gerði hatursorðræðu hversdagslega og það hefur smitað samskipti fólks á milli að geta nú án þess að blikka afhjúpað hræðslu sem byggist í grunninn á vanmætti gagnvart ómanneskjulegum stjórnvöldum og umbreytt henni í stundarfróandi hatur í garð meðborgara sinna. Eins og það sé manneskjunni eðlilegt að koma illa fram við aðra? Það er ekki þannig, þvert á móti.

Það venst að sjá myndir af þeim hryllingi sem á sér stað víða um heim. Við deyfumst vegna ágangs miðla sem sýna okkur myndir sem miðlarnir vilja að við venjumst. Að það sé hluti af tilverunni að þjást og deyja, sem auðvitað er að hluta til satt og það jafnframt réttlætt að þjóðir taki sér vald yfir öðrum og framkalli ótímabæra þjáningu og dauða yfir öðru fólki. Á Íslandi á að gera það hversdagslegt að neita börnum eins og palestínska dregnum Yazan um aðstoð. Svei því pakki.

Ekkert af þessu er eðlilegt. Manneskjan er félagsvera og mannkynið þarf sjálft að verja sig gegn þeirri afmennskun sem vilji er fyrir hjá stjórnvöldum heimsins. Við verðum að láta af aðgreiningum og merkimiðum sem hin auðugu öfl hafa búið til í gegnum sína ritstýrðu veröld. Það er bara eitt kyn, mannkyn. Og mannréttindi heita mannréttindi vegna þess að þau eru fæðingarréttur okkar. Engin stjórnmálastétt hefur rétt til að skerða mannréttindi eða veita þau öðrum til handa. Það er einfaldlega þversögn í sjálfu sér.

Við þurfum ekki að hræðast hvert annað, öðru nær. Við þurfum hins vegar að veita viðnám og hafna frekari aðskilnaði fólks í milli, hafna frekari stýrðum illindum stjórnmálanna og eignatilfærslum til fárra og taka til varna fyrir ástina sem er manninum eðlislæg. Verja grunngildi mennskunnar, náungakærleikann og örlætið.

Alheimsöfl sem keppast við að segja þér að þú sért öðruvísi en annað fólk, eigir tilkall til einhvers og verðir að gera hitt eða þetta, eiga hitt eða þetta til að öðlast hamingjuna eru þvert á móti að reyna að hafa hana af okkur. Stærstu kaupmenn heimsins búa til margan óþarfann og svo er því haldið að okkur að þetta eða hitt verðum við að eignast. Skortstaðan er vísvitandi búin til í ritstýrðum auglýsingum þeirra ríkustu og undirliggjandi áætlunin er ekki bara að selja okkur eitthvað, heldur líka ala upp í okkur vanmátt og þar með minni sjálfstrú.

Þeir sem mest eiga vita að við látum betur að stjórn ef við erum aðgreind frá öðrum og hrædd.

Við erum hrædd vegna þess að alls staðar er réttur einstaklingsins til sjálfsbjargar í sátt við aðra lítilsvirtur. Heiminum er stýrt í þá átt að fáir eigi og ráði öllu og mannkynið að endingu verði algjörir þrælar kerfisheims þar sem fáir stjórna og drottna og aðrir þræla.

Við upplifum auðvitað vanmátt vegna alls þess sem haldið er að okkur að sé einhvers virði og við eygjum ekki að eignast eða auðnast. En hvað er dýrmætast? Góð samskipti við annað fólk og friður á jörð. Á því græðir ekki markaðurinn. En á því græðum við. Næg er heimavinnan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Steinunn Ólína skrifar: Verðmætamatið

Steinunn Ólína skrifar: Verðmætamatið
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Spurning um pólitísk eftirmál

Þorsteinn Pálsson skrifar: Spurning um pólitísk eftirmál
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Niður á jörðina aftur

Þorsteinn Pálsson skrifar: Niður á jörðina aftur
EyjanFastir pennar
28.05.2024

Svarthöfði skrifar: Skítabombur þá og nú

Svarthöfði skrifar: Skítabombur þá og nú
EyjanFastir pennar
22.05.2024

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar: Snillingar í lágkúrunni

Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar: Snillingar í lágkúrunni
EyjanFastir pennar
20.05.2024

Svarthöfði skrifar: „Geislavirka“ fórnarlambið, Katrín Jakobsdóttir

Svarthöfði skrifar: „Geislavirka“ fórnarlambið, Katrín Jakobsdóttir