Flokkur fólksins er ekki hátt skrifaður hjá Brynjari Níelssyni, hæstaréttarlögmanni og fyrrverandi þingmanni, ef marka má skrif hans á Facebook.
Brynjar lætur gjarnan ýmislegt flakka í pistlum sínum og í gær lét hann Ingu Sæland og Flokk fólksins finna fyrir því.
„Tek eftir því að Flokkur fólksins er í einhverri undarlegustu montkeppni sem sést hefur um alllangt skeið. Þeir eiga ræðukónginn annað árið i röð en enginn man neitt hvað sá ágæti maður hefur sagt nema nokkrar dramatískar ræður um mikilvægi ÁTVR,“ segir Brynjar og vísar í fréttir þess efnis að Eyjólfur Ármannsson hafi verið ræðukóngur Alþingis á nýafstöðnum þingvetri.
„Þá er formaðurinn ræðudrottningin með því að halda alltaf sömu ræðuna, nánast á hverjum einasta þingfundi með dassi af svívirðingum um pólitíska andstæðinga sína, sem hlýtur að vera líka eitthvert met. Dramadrottning á betur við en ræðudrottning. Synd að önnur þjóðþing skuli ekki eiga svona skörunga,“ segir Brynjar kaldhæðinn.
Þá segir hann að þingmenn Flokks fólksins hafi lagt fram flestar tillögur og frumvörp sem þeir „gorta sig“ mikið af.
„Vill svo til að engar þeirra eru raunhæfar, sem er einnig met, og munu auka útgjöld ríkissjóðs um mörg hundruð milljarða á ári, sem þau virðast halda að hægt sé að fjármagna með hærri bankaskatti og veiðileyfagjöldum. Píratar eru bara farnir að líta sæmilega út í þessum samanburði.“