Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður Morgunblaðsins og fyrrum ritstjóri DV, lætur mótmælendur heyra það í vikulegum pistli sínum í Morgunblaðinu í dag. Segir hún heift þessa fámenna hóps lítil takmörk sett, þau gangi fram með ófriði og telur hún að venjulegir borgarar séu komnir með upp í kok af yfirganginum.
Segir Kolbrún að nýjasta dæmið sé af 17. júní hátíðarhöldum í miðbæ Reykjavíkur en þar hafi Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra haldið ræðu. Þangað hafi fámenni og háværi hópurinn, sem sé með Bjarna í sigti sínu, mætt og látið öllum illum látum. Meðal annars var flugeldur sprengur, bílflautur þeyttar, blásið í flautur, baulað, hrópað og kallað.
„Mótmælendur hljóta að átta sig á því að þeir voru ekki fulltrúar þjóðarinnar á Austurvelli 17. júní á 80 ára afmælishátíð lýðveldisins. Þeir voru viðstöddum til mikils ama og leiðinda. En sjálfsagt stendur mótmælendum hjartanlega á sama. Boðskapurinn skiptir þá öllu máli. Mótmælendur vilja, eins og allir aðrir, frið á Gasa og til að koma þeim skilaboðum á framfæri stunda þeir svo mikinn ófrið að almenningur er orðinn uppgefinn á þeim. Það er einfaldlega ansi erfitt að taka mark á fólki sem er alltaf öskrandi og telur aðrar skoðanir en sínar eigin rangar og hættulegar. Þá fer boðskapurinn fyrir ofan garð og neðan hjá fólki. Það sér bara vanstilltan hóp vera að öskra og forðar sér,“ skrifar Kolbrún.
Þá segir hún það ömurlega staðreynd að forsætisráðherrann búi ekki við öryggi og þurfi á öryggisgæslu að halda.
„Það er þessu fólki að kenna, því sama fólki sem er stöðugt að tala um alheimsfrið en fer fram með ófriði. Það er engan veginn æskilegt að forsætisráðherra í litlu landi sem vill kenna sig við frið þurfi öfluga öryggisgæslu. Samt er það staðan,“ skrifar Kolbrún.
Þá gagnrýnir hún Pírata fyrir þá staðreynd að amast við öryggisgrindverkum á hátíðarhöldunum og ýja að því að það væri að frumkvæði yfirvalda. Segir hún Pírata sífellt verða skrýtnari stjórnmálaflokk.
„Engum líkar að grindverk hafi verið sett upp til að halda almenningi frá Austurvelli en það var ekki sett þar upp af tilefnislausu. Grindverkið er ekki þarna vegna fólsku lögreglunnar eða vegna þess að henni sé annt um að skapa hér lögregluríki. Það er þarna af illri nauðsyn.“
Segir Kolbrún það grafalvarlegt mál að ítrekað sé veist að Bjarna Benediktssyni, forsætisráðherra, og ætla megi að öryggi annarra ráðamanna sé einnig ógnað.
„Ofsi, reiði og ofstæki skapa hættu í hverju samfélagi. Skrýtið að reiðu mótmælendurnir skuli ekki koma auga á þessa eiginleika í eigin fari. Sennilega eru þeir alltof reiðir til að geta stundað sjálfskoðun. Það er verulegt áhyggjuefni að heiftin í samfélaginu sé svo mikill að forsætisráðherra landsins stafi hætta af. Einkennilegt er þegar látið er eins og þar sé Bjarni Benediktsson vandinn og gefið í skyn að hann hafi hreinlega kallað þetta yfir sig. Ofstækið liggur ekki hjá honum, það er annars staðar,“ skrifar Kolbrún.