Hræðilegar mælingar Vinstri grænna í skoðanakönnunum, sem sýna þá með allt niður í rúmlega 3 prósenta fylgi hafa vakið mikið umtal í þjóðfélaginu. Einkum hjá þeim sem eftir eru í flokknum eða hafa haft tengingu við hann á einhverjum tímapunkti.
Einkum er nefnt að ríkisstjórnarsamstarfið hafi haft þessi slæmu áhrif, sem og svik við ýmis málefni sem flokkurinn hafi staðið fyrir á árum áður, svo sem andstöðuna við NATO. Flokkurinn sé farinn að snúast algerlega um völd.
3 prósenta fylgi dugar ekki fyrir jöfnunarsæti í alþingiskosningunum og því allt útlit fyrir að flokkurinn myndi þurrkast út af þingi með slíka kosningu. En hver eru örlög þeirra stjórnmálaflokka sem hafa dottið út af þingi. DV leit yfir sviðið.
Eins og frægt er orðið slitu Björt framtíð ríkisstjórn sinni, Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar eftir að upp komst að Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benediktssonar, hefði skrifað undir meðmæli með því að dæmdur barnaníðingur fengi uppreista æru.
Allir flokkarnir í þessari ríkisstjórn töpuðu mönnum en Björt framtíð tapaði öllum sínum 4 þingsætum og fékk aðeins 1,2 prósent í kosningunum. Flokkurinn er enn þá til sem skel en hefur ekki boðið fram í undanförnum sveitarstjórnar eða alþingiskosningum. Má segja að hann sé lifandi dauður.
Eftir að hafa fengið ágætiskosningu í þremur alþingiskosningum í röð og náð að eignast borgarstjóra Reykjavíkur datt Frjálslyndi flokkurinn loks af þingi árið 2009. Fékk flokkurinn aðeins 2,2 prósent.
Innanflokksátök höfðu verið mikil í flokknum og í staðinn fyrir að beita sér einkum fyrir breytingu á kvótakerfinu eins og hann gerði í upphafi var flokkurinn farinn að snúast að mestu leyti um andstöðu við innflytjendur.
Flokkurinn hætti að bjóða fram, enda var hann stórskuldugur. Árið 2012 rann hann inn í Dögun, sem aldrei hefur náð manni inn á þing.
Hinn vinsæli stjórnmálamaður Vilmundur Gylfason klauf Alþýðuflokkinn árið 1982 og stofnaði Bandalag jafnaðarmanna. Árið 1984 fékk flokkurinn glimrandi kosningu og fjóra þingmenn kjörna sem hann leit þó á sem vonbrigði.
Vilmundur lést skömmu eftir kosningarnar og þingflokkurinn leystist upp á kjörtímabilinu, það er þingmennirnir fóru í aðra flokka. Bandalag jafnaðarmanna bauð hins vegar fram í kosningunum 1987 en beið afhroð. Fékk aðeins 0,1 prósent og mjög langt frá því að ná inn manni. Eftir það var hann aflagður.
Samtökin voru klofningsframboð Hannibals Valdimarssonar úr Alþýðubandalaginu árið 1969. Fengu þau kjörna menn í tvennum kosningum og tóku þátt í ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar.
Árið 1978 var hins vegar komið að endastöð. Fékk flokkurinn þá 3,3 prósent og missti sína tvo þingmenn. Árið 1979 voru Samtök frjálslyndra og vinstrimanna lögð niður.
Þjóðvarnarflokkurinn var þjóðernissinnaður flokkur á vinstri vængnum sem barðist einna helst fyrir úrsögn Íslands úr NATO og brotthvarfs bandaríska hersins. Hann náði ágætiskosningu í sínum fyrstu alþingiskosningum árið 1953 og fékk tvo menn kjörna.
Í kosningunum árið 1956 missti hann báða mennina og hlaut aðeins 4,5 prósent. En ólíkt áðurnefndum flokkum hættu Þjóðvarnarmenn ekki eftir það. Tvennar kosningar voru haldnar árið 1959 og bauð flokkurinn fram í báðum. Hann hafði þó ekki erindi sem erfiði, þrátt fyrir að hafa bætt við sig næstum heilu prósentustigi í seinni kosningunum. Árið 1963 rann Þjóðvarnarflokkurinn inn í Alþýðubandalagið.