Jón Gnarr settist niður með Ólafi Arnarsyni í sjónvarpsviðtali á Eyjunni til að ræða forsetaframboð sitt og þá hluti sem hann stendur fyrir. Veislur eru ekki hans sterka hlið og hann vill miklu frekar vera úti meðal þjóðarinnar en sitja fínar veislur. Hann vill létta stemninguna og tala kjark í þjóðina. Hann segir þjóðarstolt vera mikilvægt en að þunn lína sé milli þess og þjóðernishyggju. Hægt er að horfa á þáttinn hér á Eyjunni og á Hringbrautarrás Sjónvarps Símans.
Hér má sjá stuttan bút úr þættinum:
„Ég verð náttúrlega sko fyrst og fremst ég eins og fólk hefur kynnst mér. Ég er ekki að fara að breyta mér, breyta persónuleika mínum og verða á einhvern annan hátt en ég hef verið,“ segir Jón.
„Ég held að ég sé svona í grunninn fyrst og fremst svona alþýðlegur maður fólksins en ég held að ég muni leitast við að vera í nánara samtali við þjóðina heldur en hefur þekkst áður og svo mun ég líka reyna að létta stemningu og tala kjark í fólk, mér finnst það mjög mikilvægur hluti af hlutverki forseta Íslands.
Hér má sjá þáttinn í heild:
Jón segist miklu frekar sjá sig sem forseta sem fari um landið, sé á landinu, en að hann verði mikið í veislum. „Það er ekki mín sterka hlið að vera í veislum. Ég mun vissulega gera það, bara vegna þess að ég er kurteis maður og kann mannasiði, mæta í veislur sem mér er boðið í og bjóða á Bessastaði fólki.“
Hann segist brenna fyrir barnamenningu. „Mig langar til að láta að mér kveða á því sviði. Svo langar mig líka að nota þessa stöðu til að benda á svo margt þjóðlegt sem fólk er kannski ekki alltaf meðvitað um í sambandi við söguna okkar, í sambandi við tungumálið, og við erum á umbrotatímum þar sem er þunn lína milli þjóðarstolts og þjóðernishyggju. Mig langar til þess að hjálpa til við að sú umræða fari aldrei út í óefni og við megum vera stolt af því hver við erum sem þjóð og stolt af því að saga okkar tengist hlutum eins og víkingaöldinni og menningu víkinga án þess að það sé eitthvað sem gæti hugsanlega orðið eitthvað óþægilegt.“