fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Steinunn Ólína býður sig fram til forseta

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 4. apríl 2024 14:04

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Mynd: Kári Sverrisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona greindi frá því fyrir stuttu að hún býður sig fram til embættis forseta Íslands.

Fyrir fjórum dögum sagðist Steinunn Ólína ekki vera búin að gera upp hug sinn um framboð. Hins vegar hafi hún ákveðið að hún bjóði sig fram ef Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gefur kost á sér í embættið. 

Sjá einmitt: Steinunn Ólína býður sig fram ef Katrín Jakobsdóttir gerir það

Framboðsræða Steinunnar Ólínu í heild sinni:

Kæru vinir,

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í embætti forseta Íslands. Það geri ég vegna þess að mig langar að gera gagn og vegna þess að þið hafið hvöttuð mig til þess. Ég heyri að ykkur er alvara og það snertir mig djúpt.

Þið þekkið mig. Ég þekki ykkur. Ég hef mætt ykkur á götu, í vegasjoppum, á AA fundum, í leiklistinni og í sundi.

Þið stöppuðu í mig stálinu þegar ég var sorgmædd og einmana og þið kennduð mér líka að varðveita eldinn, elska heitt og að ekkert væri ómögulegt.

Það er mikið í húfi, því það skiptir máli hver gegnir embætti forseta Íslands.

Forseti er í forsvari fyrir þjóðina á ögurstundum, þegar hún mætir sem fulltrúi hennar til að sýna – að okkur má aldrei standa á sama. Forseti þarf því að vera víðsýnn og fordómalaus og standa með öllu fólki sem hér býr – í blíðu og stríðu.

Þessar forsetakosningar sýna að við verðum að eiga meira en samtal um stjórnarskrá okkar. Breytingar á henni hafa nú verið til umræðu í heilan mannsaldur. Langlundargeð okkar er sannarlega á heimsmælikvarða.

Þjóðin á heimtingu að því að á hana sé hlustað. Það er þingsins að búa svo um hnútana að þar sé ávallt verið að vinna að sameiginlegum hagsmunum fólksins í landinu svo forseti þurfi helst aldrei að skerast í leikinn.

Á Íslandi býr framúrskarandi fólk sem við getum verið stolt af. En við þurfum að efla fleiri til dáða. Við eigum vanda valið á vinum og mynda tengsl sem eru okkur til framdráttar sem þjóð.

Á Íslandi býr líka fólk sem aldrei hefur fengið að njóta sín. Það er sameiginlegt verkefni  að bæta þeirra stöðu svo allir íbúar landsins geti dafnað og blómstrað.

Ég lofa, verði ég forseti, að fylgjast vel með og sinna þessu stóra verkefni eftir bestu getu, ekki einu umfram annað, og inna embættisverkin af hendi af áhuga, samviskusemi og alúð.

Fyrir mér er það brýnt að við sameinumst nú um að byggja upp réttlátt og heilbrigt samfélag til framtíðar, fyrir okkur sjálf – en líka fyrir öll þau börn sem hér munu fæðast eftir okkar daga. Með því þökkum við því fólki sem byggði þetta land með sínu viti og striti. Forfeðrum og formæðrum sem gerðu okkur kleift að búa í friðsælu og fallegu landi.

Kannski er mér ætlað að fylla stærri skó í lífinu? Kannski ekki? Hvernig sem fer, þá verð ég söm eftir.

Ég mun nú láta á það reyna, hvort þið teljið mig þess verða að gegna embætti forseta Íslands. Með þátttöku í forsetakosningum velur fólk sinn forseta í trúnaði við sína samvisku.

Ég hef opnað fyrir undirskriftalista meðmælenda á island.is og bið þau sem vilja styðja mig að sýna það í verki svo kjörgeng geti talist, því safna þarf atkvæðum í öllum landsfjórðungum.

Það er stutt til kosninga og ég bið ykkur, ef þið hafið trú á mér, að slást í hópinn og biðla til annarra að styðja mig sömuleiðis.

Nú er vor í lofti, leyfum okkur að vera bjartsýn!

Verði mér treyst til að taka þetta embætti að mér heiti ég heilindum við ykkur og það sem okkur ætti að vera kærast: Landið okkar, Ísland.

Þakka ykkur fyrir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur